Innlent

Svört skýrsla komi ekki á ó­vart

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ásthildur Lóa Þórsdóttir er menntamálaráðherra.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir er menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Umboðsmaður Alþingis telur neyðarvistun barna í fangaklefa í Hafnarfirði brjóta gróflega gegn réttindum barna. Barnamálaráðherra segir niðurstöðuna ekki koma á óvart. 

Síðan í október í fyrra hefur Barna- og fjölskyldustofa notað fangaklefa í lögreglustöðinni í Hafnarfirði sem neyðarvistunarúrræði. Neyðarvistunin var fram að því á meðferðarheimilinu Stuðlum en þar var eldsvoði í október þar sem sautján ára piltur lést.

Í gær birtist kolsvört skýrsla frá Umboðsmanni Alþingis. Fangageymslan sé ekki viðeigandi vistunarstaður en ekkert þar bendi til þess að vista eigi barn í viðkvæmri stöðu þar. Úrræðið beri öll merki um að þar eigi að vista fullorðna við hátt öryggisstig, en þar eru hvorki gluggar, klukkur né speglar.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra segist fagna skýrslunni. Niðurstaða umboðsmanns komi ekki á óvart.

„Eins og ég er margoft búin að segja, eftir að Stuðlar brunnu voru engin úrræði sem stóðust öryggiskröfur. Þess vegna hefur þetta úrræði verið notað í neyð. Og það er miður að það hafi þurft að gera það,“ segir Ásthildur. 

Neyðarvistunin á Stuðlum átti ekki að vera tilbúin fyrr en undir lok þessa árs. Hins vegar er búið að flýta vinnunni og álman ætti að opna í byrjun apríl. Þó einungis tvö herbergi.

„Þetta átti ekki að vera tilbúið fyrr en í lok árs. Þetta hefur okkur tekist að gera, að ýta þessu fram. Þannig að okkur voru gefnar fjórar til sex vikur til að ljúka þessum tveimur herbergjum sem eru gríðarlegar framfarir. Nú á þetta eftir tvær vikur að vera tilbúið og ég vona að það standist. Þá verður hægt að hætta að nota Flatahraun,“ segir Ásthildur. 

Það þarf að bæta úrræði fyrir börn í vanda.

„Neyðarúrræði er neyðarúrræði. Að vera með varaneyðarúrræði, ég veit ekki hvað maður á að segja um það. En það þarf fleiri úrræði og það þyrfti helst að bæta við herbergjum á Stuðlum svo við lendum ekki í þessu aftur. Eftir brunann var þetta það eina sem fannst sem fullnægði öryggiskröfum,“ segir Ásthildur. 

Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, hefur ekki svarað ítrekuðum skilaboðum og símtölum fréttastofu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×