Ríkisstjórnin láti í sér heyra eftir mannskæðar árásir Kjartan Kjartansson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 18. mars 2025 09:26 Mótmælendur með fána Palestínu fylgdust með þegar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mætti til ríkisstjórnarfundar á Hverfisgötu í morgun. Vísir Nokkrir tugir stuðningsmanna Palestínumanna komu saman til mótmæla fyrir utan ríkisstjórnarfund við Hverfisgötu í morgun. Einn þeirra segir ríkisstjórnina þurfa að láta kröftuglega í sér heyra eftir að Ísraelsher felldi á fjórða hundrað manns í árásum á Gasaströndina í nótt.
Félagið Ísland-Palestína hafði boðað til mótmælanna í morgun áður en til árása Ísraela í nótt kom. Mótmælin eiga að þrýsta á ríkisstjórnina að taka frumkvæðið að viðræðum um efnahagslegar og pólitískar þvinganir gegn Ísrael á vettvangi Norðurlandanna. Fréttamaður Vísis sem var á staðnum segir að um sextíu mótmælendur hafi verið saman komnir fyrir utan ríkisstjórnarfundinn og gert hróp að ráðherrum þegar þeir mættu til hans. Mótmælendurnir voru meðal annars með gjallarhorn og hrópuðu slagorð til stuðnings Palestínumönnum eins og „Leyfið Gasa að lifa“. Sveinn Rúnar Hauksson, fyrrverandi formaður Félagsins Ísland-Palestína, kallaði ísraelska ráðamenn stríðsglæpamenn í viðtali. Þeir sem hefðu látist í nótt og í morgun hafi að miklu leyti verið konur og börn Hundruð væru slösuð til viðbótar við þá sem féllu. Þá væru sjúkrahús á Gasa illa í stakk búin að taka við þeim særðu þar sem Ísraelar hafi lokað á alla flutninga nauðsynja eins og vatns, matvæla og lyfja undanfarnar vikur. „Það er ákaflega mikilvægt núna að ríkisstjórnin láti frá sér heyra og það kröftuglega og standi við gefin fyrirheit um að gripið verði til refsiaðgerða,“ sagði Sveinn Rúnar.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Þau þurfi að finna hvar þau eigi heima í veröldinni Innlent Ríkisstjórnin láti í sér heyra eftir mannskæðar árásir Innlent Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“ Innlent Ljósmóðir ákærð fyrir að framkvæma þungunarrof í Texas Erlent Nafn mannsins sem lést í bílslysinu á Hrunavegi Innlent Brynjólfur Bjarnason er látinn Innlent Sérsveitinni flogið til Bolungarvíkur Innlent Geimfararnir snúa aftur eftir níu mánaða dvöl í geimnum Erlent Yfir 235 létust í árásum Ísraels á Gasa í nótt Erlent Þrír Danir látnir eftir flugslys í Sviss Erlent Fleiri fréttir Taldi mann kominn til landsins til að vinna henni mein Tveir bílar og hestakerra skullu saman við Selfoss Stjórnmálamenn kasti frá sér heitu kartöflunni Sérsveitinni flogið til Bolungarvíkur Vilja leita að olíu ef stjórnvöldum er ekki alvara með orkuskiptum Taka þurfi fastar á börnum sem beita ofbeldi Þingmanni blöskrar svör Rósu Breyta stuðningi við Grindvíkinga Má bera eiganda Gríska hússins út Heilbrigðisráðherra kom sjúklingi til bjargar í flugi Grindvíkingum sem standa illa tryggður frekari stuðningur Gæti hætt en ekki viss: „Ég vinn bara mjög langa vinnudaga“ Ríkisstjórnin láti í sér heyra eftir mannskæðar árásir Brynjólfur Bjarnason er látinn Þau þurfi að finna hvar þau eigi heima í veröldinni Paul Watson heitir að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar „Ófremdarástandi“ Sjálfstæðisflokksins ljúki með uppbyggingu nýs fangelsis Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“ Þjóðin verði að átta sig á að fimmtungur sé ekki íslenskumælandi Fyrirvarinn verði örfáar mínútur „Allt það besta og allt það versta“ sé í skólum landsins Samkeppniseftirlitið ætlar að skoða kvörtun verkalýðsfélaga Heiða Björg hættir sem formaður SÍS Menningarráðherra hvetur opinber fyrirtæki til að að bjóða upp á ensku Bein útsending frá Úkraínu, alvarlegar ásakanir og uppáhalds dagur Íra Nafn mannsins sem lést í bílslysinu á Hrunavegi „Með hverju eldgosinu styttist í goslokahátíðina“ Villa í tækjabúnaði misgreindi jarðskjálfta Steig út úr strætó og fékk gangstéttarhellu í höfuðið Einn af hverjum fimm Íslendingum með heyrnarskerðingu Sjá meira