Körfubolti

Joshua: Orka og undir­búningur skiluðu þessum sigri

Árni Jóhannsson skrifar
Keflavík - Valur Bikarinn Karla Vetur 2025. Joshua Jefferson
Keflavík - Valur Bikarinn Karla Vetur 2025. Joshua Jefferson Vísir / Diego

Joshua Jefferson er í því hlutverki að koma inn af bekknum í liði Vals eins og staðan er núna en hann heldur betur skilaði frábæru framlagi í sigri Vals á Keflavík í undanúrslitum VÍS bikarsins. Joshua skoraði 20 stig og Valur vann mínúturnar hans með 21 stigi.

Joshua var spurður að því hvort þetta hafi verið eins auðvelt á vellinum eins og þetta leit út fyrir að vera úr stúkunni.

„Heldur betur ekki. Það hefur verið mikill undirbúningur og farið yfir smáatriðin í undanfara leiksins. Þeir eru með frábært lið og þó þeir hafa verið að eiga við allskonar hluti þá er þetta erfiður andstæðingur. Við framkvæmdum okkar leikplan betur og þess vegna kannski leit þetta út fyrir að vera auðvelt.“

Valsmönnu óx ásmegin í öðrum leikhluta og í raun kláruðu þeir leikinn þá. Sjálfstraust þeirra var vel merkjanlegt en sjálfstraust Keflvíkinga minnkaði með hverju skotinu sem fór ekki ofan í. 

„Við vorum bara einbeittir og horfðum í smáatriðin. Við horfum á mikið af myndböndum, smáatriðin sem við pössuðum, áætlun Finns og orkan okkar sem skiluðu sigrinum í kvöld.“

Joshua Jefferson er á leiðinni til baka eftir erfið meiðsli sem hann varð fyrir í fyrra þegar hann sleit krossaband í hné. Í leiknum í kvöld sendi hann fimm þriggja stiga körfur niður í níu tilraunum og leit afskaplega vel út. Valur vann mínúturnar hans með 21 stigi og hann var með 20 framlagspunkta. Hvernig er líðan hans á þessum tímapunkti?

„Ég hef verið blessaður að hafa komist aftur á völlinn. Ég er þakklátur Val að hafa trú á mér og taka mig aftur inn þannig að ég get sýnt hvað ég get og reyna að vinna annan titil með bræðrum mínum. Líkaminn er síðan í frábæru standi.“

Á laugardaginn er það bikarúrslitaleikur við KR. Valsmenn líta vel út á þessum tímapunkti þannig að sjálfstraustið hlýtur að vera í botni á leiðinni í það verkefni.

„Að sjálfsögðu. Við fáum mikið sjálfstraust úr því hvernig við undirbúum okkur fyrir hvern leik. Við förum aftur að teikniborðinu, Finnur teiknar upp áætlun fyrir okkur og það er undir leikmönnum komið að framkvæma hana eftir bestu getu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×