Skoðun

Merkið stendur þó maðurinn falli

Birgir Dýrfjörð skrifar

Stofnum sannleikssjóð fyrir Ásthildi Lóu

Í upphafi ofsóknanna á Ásthildi Lóu Þórsdóttur vakti ég athygli á að gjörningur hennar braut ekki nein lög í landinu, - það var aldrei neitt afbrot, níðið var bara rætinn uppspuni um ekki neitt.

Blaðamenn og aðrir sem fjölluðu um málið hefðu ekki þurft annað en opna tölvuna sína.

Þar segir frá þeim breytingum á lögum Nr. 61 / 2007 að kynferðislegur lágmarksaldur er hækkaður úr 14 í 15 ár. Sjálfræði um kynlíf hefst því við 14 ára aldur.

Hefðu fréttamenn og konur unnið vinnuna sína þá hefðu ofsóknir gegn Ásthildi Lóu aldrei orðið til.

Þá hefði öllum sem kunna að lesa verið ljóst, að Ásthildur Lóa hafði ekki framið neitt lögbrot.

Auðvitað hafa blaðamenn almennt lesskilning, en ekki allir því miður. Þar að auki eru of margir í þeirra hópi sem gefa bara skít í sannleikann og njóta þess best að laxera yfir fólk.

Þeir blaðamenn og konur og reyndar fleiri eru þau sem oftast eyðileggja siðaða umræðu.

Venjulegu fólki ofbýður rógurinn og níðið og miskunnarleysið í að förinni að Ásthildi Lóu.

Meira að segja samtök sem hafa það að markmiði að styðja og vera skjól þeirra kvenna og barna, sem sem ofsótt eru, meira að segja þau tóku sér refsivönd í hönd til að hýða konuna.

Ég er hér að vitna til ummæla Drífu Sædal talskonu Stígamóta um yfirlýsinguna sem kom frá Ásthildi Lóu um hennar mál

Þar segir orðrétt: „Stígamót: Gamalkunnugt stef í yfirlýsingu Ásthildar Lóu“ „Ásthildur Lóa Þórsdóttir segist í yfirlýsingu í morgun ekki hafa höndlað aðstæður í samskiptum við barnsföður sinn sem var á unglingsaldri. Talskona Stígamóta (Drífa Snædal) segir yfirlýsinguna vera gamalkunnugt stef hjá fólki sem eigi í kynferðissambandi við börn.“

Þessi gildishlaðna yfirlýsing er vatnsgusa framan í ofsótta manneskju sem leitaði skjóls.

Sannleikssjóð fyrir Ásthildi Lóu

Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur hefur lagt til að Ásthildur Lóa fari í mál við ofsóknarliðið sem að henni hefur sótt. Það finnst mér góð hugmynd.

Málaferli kosta mikla peninga og þeir eru örugglega ekki til í vösum Ásthildar Lóu, því legg ég til að almenningur safni í sjóð til að kosta málaferli Ásthildar gegn því ógeðslega fólki og stofnunum sem ábyrgðina bera á aðförinni að mannorði hennar og annarra.

Það er allra hagur að stöðva það ógeðfellda lið sem ástundar mannorðsníð eins og það sem Ásthildur Lóa hefur mátt þola af hálfu fólks, sem virðist innansleikt eins og hundadallur, af allri samúð og sjálfsvirðingu.

Höfundur er rafiðnaðarmaður.




Skoðun

Sjá meira


×