Fótbolti

Argentína rústaði Brasilíu og er komin á HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Argentínumenn fagna sigrinum á Brasilíumönnum og sætinu á HM 2026.
Argentínumenn fagna sigrinum á Brasilíumönnum og sætinu á HM 2026. getty/Marcelo Endelli

Heimsmeistarar Argentínu rústuðu Brasilíu, 4-1, í undankeppni HM 2026 í nótt. Argentínumenn eru komnir á HM þarnæsta sumar á meðan vandræði Brasilíumanna halda áfram.

Þrátt fyrir að Lionel Messi og Lautaro Martínez hafi verið fjarri góðu gamni átti argentínska liðið ekki í neinum vandræðum gegn því brasilíska. Sigur Argentínu er sá stærsti á Brasilíu síðan 1964.

Leikurinn var aðeins fjögurra mínútna gamall þegar Julián Alvarez kom Argentínu yfir. Átta mínútum síðar tvöfaldaði Enzo Fernández forskot heimamanna.

Á 26. mínútu minnkaði Matheus Cunha muninn í 2-1 eftir slæm varnarmistök Cristians Romero.

Ellefu mínútum síðar jók Alexis Mac Allister muninn aftur í tvö mörk og á 71. mínútu gulltryggði Giuliano Simeone sigur Argentínu með sínu fyrsta landsliðsmarki.

Eftir markalaust jafntefli Úrúgvæ og Bólivíu fyrr um daginn var ljóst að Argentína var örugg með sæti á HM 2026. Liðið er í efsta sæti Suður-Ameríkuriðilsins með 31 stig eftir fjórtán leiki.

Á meðan er Brasilía í 4. sæti með 21 stig og pressan á þjálfaranum Dorival Júnior er talsverð. Brassar hafa aðeins unnið sjö af sextán leikjum undir hans stjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×