Innlent

Njósnahópar hafi stór­aukið virkni sína á Ís­landi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður CERT-IS, fjallaði um netárási í íslensku netumdæmi.
Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður CERT-IS, fjallaði um netárási í íslensku netumdæmi. Vísir/Anton Brink

Forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS segir netárásum sem stofnunin sinnir árlega fara fjölgandi. Gagnagíslatökur hafi tvöfaldast milli ára, fjórða árið í röð. Stofnunin fylgist með fótsporum njósnahópa sem hafi „stóraukið“ virkni sína undanfarið og beini sjónum sínum að yfirvöldum og framleiðslufyrirtækjum.

Embætti ríkislögreglustjóra stendur fyrir ráðstefnu um öryggis- og varnarmál í dag og kynnti ríkilögreglustjóri stöðumat um öryggisáskoranir á Íslandi. Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS, flutti fyrirlestur um netárásir á opinberar stofnanir og fyrirtæki á Íslandi.

„Við erum að sjá umtalsverða fjölgun mála frá 2023 borið saman við 2024,“ sagði Guðmundur í kynningu sinni um fjölda netárása sem stofnunin tekst á við. 

Í fyrra sinnti netöryggissveitin 1.747 málum, árið 2023 voru þau 1.266 og þau voru 700 árið 2022. Á tveimur árum hafi mál á borði sveitarinnar meira en tvöfaldast. „Þessi vöxtur er í takt það sem við erum að sjá okkur nánustu kollegum,“ sagði Guðmundur og nefndi helst Norðurlönd og lönd á Balkansskaga.

Gagnagíslatökuárásir tvöfaldist enn milli ára

„Meirihluti allra mála eru hefðbundin svindlmál þar sem verið er að klekkja á einstaklingum en ekki tölvukerfunum sjálfum,“ sagði Guðmundur. 

Það þýddi að heilt yfir væru þær hugbúnaðar- og vélbúnaðarvarnir sem eru keyptar inn til að verja upplýsingatæknikerfi þokkalega öflug og góð. Netglæpamenn horfi á að það sé auðveldara að komast inn fyrir varnirnar með því að klekkja á starfsfólki og öðrum einstaklingum sem eru fyrir innan þær frekar en að brjótast í gegnum varnirnar sjálfar.

„Við erum að sjá vöxt í öllum málum og þessar alvarlegustu og leiðinlegustu fyrir fórnarlömbin, gagnagíslatökuárásir, eru að tvöfaldast milli ára, fjórða árið í röð,“ sagði Guðmundur.

Einyrkjar, skipulagðir glæpahópa og „hæfir ógnarhópar“

Guðmundur sagði mikinn mun á ólíkum árásarhópum og sömuleiðis viðbrögðum og vörnum við þeim. Einyrkjar og skipulagðir glæpahópar stundi netglæpi fyrst og fremst í fjárhagslegum tilgangi, taki gögn í gíslingu og krefjist lausnargjalda.

Fórnarlömb eigi aldrei að greiða lausnargjald í slíkum tilvikum, slíkt fjármagni hópana og greiðsla sé jafnframt ekki trygging fyrir endurheimtingu gagnanna.

Þessir hópar séu gjörólíkir svokölluðum „hæfum ógnarhópum“ sem séu einnig kallaðir APT-hópar (e. advanced persistent threat). Þeir hafi mikla þekkingu á upplýsingatækni og gervigreind, aðgengi að tæknilegum tölvukerfum og eru vel fjármagnaðir, jafnvel óbeint eða beint af stjórnvöldum og stundi njósnir.

„Við erum að sjá stóraukna virkni þessara hópa, innan Íslands og í vestur- og norður-Evrópu,“ segir Guðmundur.

Njósnir um stjórnvöld og fyrirtæki

Fyrir fjórum árum hafi CERT-IS ekki verið orðið meðvitað um starfsemi slíkra hópa í íslensku netumdæmi. Líklega hafi þeir stundað njósnir án meðvitundar CERT-IS og íslenskra yfirvalda.

Guðmundur segir að síðustu fjögur ár hafi farið mikil vinna í að bæta sýn CERT-IS á netumdæmið í samstarfi við rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu á Íslandi, lögregluna og aðrar aðila innan stjórnsýslunnar. Fyrir vikið hafi netöryggissveitin orðið vör við fótspor eftir slíka hópa og netárásir þeirra á íslenskar stofnanir. 

„Eðli njósnanna er margþætt en njósnir um stjórnvöld snúast fyrst og fremst um að fá upplýsingar um ákvarðanir. Eðli APT-hópa inni í fyrirtækjum snúast um iðnaðarnjósnir til að komast yfir hugvitsupplýsingar,“ segir Guðmundur.

Íranir og Norður-Kóreubúar eflst í netárásum

Samkvæmt greiningu á netárásarmálum í Norður-Evrópu séu helstu skotmörk árásanna stjórnvöld og framleiðsluaðilar.

„Hóparnir koma að mestu leyti frá Rússlandi, Norður-Kóreu, Kína og svo Íran. Langmesta virknin er frá þessum upprunalöndum. Þar er sú breyting búin að eiga sér stað síðastliðin tvö ár að Íran og Norður-Kórea eru engir eftirbátar Rússar og Kínverja,“ segir Guðmundur.

Þá sé merkilegt að Rússar séu jafnframt stærsta fórnarlamb kínverskra ógnarhópa. Rússneskir hópar séu fjölmargir og sem dæmi hafi komið upp á einni viku, frá 4. til 10. mars, 45 atvik á Norðurlöndum sem mátti rekja til rússneskra ógnarhópa.

„Þetta er það sem við þurfum að vera í stakk búin til að takast á við. Því í netheimum eru hefðbundin landamæri ekki virk,“ segir Guðmundur.


Tengdar fréttir

Netöryggissveitin flutt í utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið og Fjarskiptastofa undirrituðu í dag samkomulag um flutning á starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS í starfstöð ráðuneytisins. Á næstu vikum flyst því starfsemi netöryggissveitarinnar frá starfstöð Fjarskiptastofu við Suðurlandsbraut og í húsnæði utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í Reykjavík.

Æfðu viðbrögð við svörtustu sviðsmyndinni

Það er afar brýnt að kunna að bregðast við svörtustu sviðsmyndinni sem upp gæti komið ef netsamband við Ísland rofnar segir sviðstjóri hjá CERT-IS. Stefnt er að því að fara í raunprófanir til að æfa viðbragð við slíku ástandi og hvernig eina og takmarkaða varanetsamband Íslands um gervihnött yrði nýtt í neyð.

Tölvuárásin til rannsóknar og enn unnið að viðgerð

Tölvuárásin sem gerð var á Toyota á Íslandi í nótt er til rannsóknar hjá starfsmönnum Syndis, OK og tölvudeild Toyota. Enn er unnið að því að byggja tölvukerfin upp á ný og fyrirbyggja frekari skaða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×