Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Lovísa Arnardóttir skrifar 3. maí 2025 20:07 Buffet sagði börnin sín þau einu sem vissu af ákvörðun hans að stíga til hliðar við lok árs. Vísir/AP Warren Buffet hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum sem forstjóri fyrirtækis síns, Berkshire Hathaway, við lok þessa árs. Buffet tilkynnti á ársfundi fyrirtækisins að Greg Abel myndi taka við af honum. Buffet er fjórði ríkasti maður heims. „
Ég held að það sé tímabært að Greg verði forstjóri fyrirtækisins,“ sagði Buffet á fundinum en hann er sjálfur orðinn 94 ára gamall. Hann sagði á fundinum börnin sín þau einu sem hafi vitað af því að hann ætlaði að hætta. Abel sjálfur virtist á fundinum ekki vita af því að hann ætti að taka við. Í frétt BBC um málið kemur fram að Buffet sé ein afkastamesti og árangursríkasti fjárfestir í heimi. Hann byggði fyrirtækið sjálfur upp og er áætlað að það sé virði um 870 milljarða breskra punda. Í fréttinni segir jafnframt að Buffet hafi handvalið Abel sem arftaka sinn fyrir fjórum árum en ekki gefið neitt upp um það á þeim tíma hvenær hann myndi hætta. Berkshire Hathaway á um sextíu fyrirtæki eins og tryggingafyrirtækið Geico, Duracell batterí og veitingahúsakeðjuna Dairy Queen. Þá á fyrirtækið einnig hlut í Apple, Coca Cola, Bank of America, American Express og fleiri fyrirtækjum. Buffet var í síðasta mánuði á vef Bloomberg sagður fjórði ríkasti maður heims og er virði hans talið nema 154 milljörðum Bandaríkjadala. Hann hefur síðustu ár gefið milljarða í góðgerðatarf. Hann þénaði fyrst pening sex ára gamall, keypti sín fyrstu hlutabréf ellefu ára gamall og skilaði fyrsta skattframtalinu sínu 13 ára gamall. Þrátt fyrir að vera einn ríkasti maður heims hefur Buffet búið í sama húsinu í Omaha í meira en 65 ár. Tilkynningin kemur stuttu eftir að Buffet gagnrýndi tollaákvarðanir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Buffet sagði að Bandaríkin ættu ekki að nota „viðskipti sem vopn“.
Bandaríkin Mest lesið „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Viðskipti innlent Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Viðskipti erlent Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Viðskipti innlent „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Atvinnulíf Fokdýr jólagjöf til dætranna reyndist eintóm blekking Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Neytendur Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja Kemur til móts við bílaframleiðendur vegna tolla Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Gefur eftir í tollastríði við Kína ESB sektar Apple og Meta um rúma hundrað milljarða Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör Spá minni hagvexti um nær allan heim vegna tolla Bandaríkjastjórnar Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Heimsskortur á pistasíum vegna Dúbaí-súkkulaðis Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Hlutabréfaverð í Asíu hækkar Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Prada kaupir Versace á 183 milljarða króna Evrópusambandið frestar tollahækkunum Kauphallir rétta úr kútnum Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Trump-tollar tóku gildi í nótt Bjartara yfir við opnun markaða Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn Sjá meira