Gríska stórleikkonan Irene Papas er látin Gríska leikkonan Irene Papas, sem birtist í stórmyndum á borð við Grikkjanum Zorba og Byssunum á Navarone, er látin, 96 ára að aldri. Menning 14. september 2022 13:12
Hilmar Örn Kolbeins er látinn Baráttumaðurinn Hilmar Örn Kolbeins er látinn. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 5. september. Innlent 14. september 2022 11:31
Rannsakandinn í máli Bill Clinton er látinn Bandaríski lögmaðurinn Kenneth Starr, sem fór fyrir rannsókninni sem leiddi til ákæruferlis á hendur Bill Clinton Bandaríkjaforseta á árunum 1994 til 1998, er látinn, 76 ára að aldri. Erlent 14. september 2022 07:36
Fyrrum bardagakappi hjá UFC látinn aðeins 34 ára að aldri MMA-heimurinn var í áfalli um helgina er það fékkst staðfest að kanadíski bardagakappinn Elias Theodorou væri látinn. Sport 13. september 2022 14:00
Rapparinn PnB Rock skotinn til bana Bandaríski rapparinn PnB Rock var í gær skotinn til bana á veitingastað í borginni Los Angeles. Morðingjarnir reyndu að fá skartgripi rapparans áður en þeir skutu hann. Erlent 13. september 2022 12:19
Leikstjórinn Jean-Luc Godard er látinn Einn af risum franskrar kvikmyndagerðar, leikstjórinn Jean-Luc Godard, er látinn, 91 árs að aldri. Menning 13. september 2022 08:52
Rithöfundurinn Javier Marias fallinn frá Spænski rithöfundurinn og þýðandinn Javier Marias er látinn, sjötugur að aldri. Meðal þekktra bóka eftir Marias má nefna þríleikinn Tu rostro mañana, eða Andlit þitt á morgun, og bókina Ástir sem kom út á íslensku fyrir um tíu árum síðan. Menning 12. september 2022 08:05
Anna Guðný Guðmundsdóttir er látin Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari er látin 64 ára að aldri eftir erfiða en aðdáunarverða baráttu við veikindi. Anna Guðný var lykilmaður í klassísku tónlistarlífi landsins áratugum saman og af mörgum talin besti meðleikari landsins. Innlent 11. september 2022 23:56
Magnús Norðdahl er látinn Magnús Norðdahl, flugstjóri og fimmfaldur Íslandsmeistari í listflugi lést á heimili sínu á fimmtudaginn, 94 ára að aldri. Innlent 10. september 2022 17:17
Elísabet II Bretlandsdrottning er látin Elísabet önnur, drottning Bretlands er látin. Hún var 96 ára gömul. Heilsu drottningarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún lést í kastala sínum í Skotlandi. Erlent 8. september 2022 17:31
Fréttaþulurinn Bernard Shaw er látinn Bandaríski fréttaþulurinn Bernard Shaw, sem starfaði lengi sem aðalfréttaþulur bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er látinn, 82 ára að aldri. Viðskipti erlent 8. september 2022 14:27
María Guðmundsdóttir Toney er látin María Guðmundsdóttir Toney, fyrrverandi landsliðskona á skíðum, er látin eftir baráttu við krabbamein. Innlent 7. september 2022 18:12
Hryllingshöfundurinn Peter Straub er látinn Bandaríski hryllingshöfundurinn Peter Straub er látinn, 79 ára að aldri. Menning 7. september 2022 09:57
Breski sjónvarpsmaðurinn Bill Turnbull er látinn Hinn ástsæli breski sjónvarpsmaður, Bill Turnbull, er látinn, 66 ára að aldri. Turnbull var einna helst þekktur fyrir að stýra morgunþætti BBC í sjónvarpi, BBC Breakfast, um fimmtán ára skeið. Lífið 1. september 2022 08:53
Stjórnarformaður olíurisa látinn eftir fall út um sjúkrahúsglugga Ravil Maganov, stjórnarformaður rússneska olíu- og gasrisans Lukoil, er látinn eftir að hafa fallið út um glugga á sjúkrahúsi í rússnesku höfuðborginni Moskvu í morgun. Erlent 1. september 2022 08:17
Camilo Guevara er látinn Camilo Guevara, sonur byltingarleiðtogans Che Guevara, er látinn, sextíu ára að aldri. Camilo lést eftir að hafa fengið hjartaáfall vegna blóðtappa í lungum. Erlent 31. ágúst 2022 20:41
Suðurafríska leikkonan Charlbi Dean er látin Suðurafríska leikkonan og fyrirsætan Charlbi Dean, sem fór meðal annars með hlutverk í verðlaunamyndinni Triangle of Sadness og sjónvarpsþáttaröðinni Black Lightning, er látin. Dean varð 32 ára. Lífið 31. ágúst 2022 12:46
„Greiddi leiðina fyrir frjálsa Evrópu“ Leiðtogar þjóða og alþjóðastofnana, núverandi og fyrrverandi, víðs vegar um heim hafa minnst Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, sem lést í gær, 91 árs að aldri. Erlent 31. ágúst 2022 07:41
Míkhaíl Gorbatsjov er látinn Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, er látinn 91 árs að aldri. Gorbatsjov hafði verið að glíma við veikindi í langan tíma og lést á spítala í Moskvuborg í dag. Erlent 30. ágúst 2022 20:46
Sopranos-leikarinn Bob LuPone er látinn Bandaríski leikarinn Robert „Bob“ LuPone, er látinn, 76 ára að aldri. LuPone gerði garðinn frægan sem leikari á Broadway í New York en einnig fyrir hlutverk sitt í þáttunum vinsælu, Sopranos. Lífið 30. ágúst 2022 07:06
„Frumbygginn í holunni“ er látinn Maður sem hefur ávallt verið kallaður „frumbygginn í holunni“ og bjó í Amason-regnskóginum allt sitt líf er látinn. Hann var síðasti meðlimur ættbálks síns sem enn var á lífi. Erlent 28. ágúst 2022 22:24
Fyrrverandi konditor Hvíta hússins er látinn Roland Mesnier, fyrrverandi konditor Hvítahússins, lést á föstudaginn eftir skammvinn veikindi, 78 ára að aldri. Mesnier matreiddi ljúffengt góðgæti ofan í fimm Bandaríkjaforseta á ævi sinni. Erlent 28. ágúst 2022 21:05
Eiríkur Guðmundsson borinn til grafar í dag Menningargeirinn syrgir nú einn sinn allra besta mann. Fjölmiðlar verða ekki samir eftir fráfall Eiríks Guðmundsonar; menningarumfjöllun almennt verður það ekki heldur né sjálfur skáldskapurinn. Ekki verður betur skilið á fjölda minningargreina sem birtast bæði í Morgunblaðinu í dag og á samfélagsmiðlum. Innlent 26. ágúst 2022 11:14
Veitingastaðareigandinn úr Beverly Hills er látinn Joe E. Tata, sem lék Nat, eiganda Peach Pit veitingastaðarins, í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210, er látinn. Tata var orðinn 85 ára gamall en hafði glímt við Alzheimer frá árinu 2014. Bíó og sjónvarp 25. ágúst 2022 22:35
Nánasti samstarfsmaður Stanley Kubrick er látinn Breski leikarinn Leon Vitali, sem þekktur er að hafa verið nánasti samstarfsmaður leikstjórans Stanley Kubrick, er látinn, 74 ára að aldri. Lífið 22. ágúst 2022 11:16
Magnea Hrönn Örvarsdóttir er látin Magnea Hrönn Örvarsdóttir, listakona og fyrrverandi blaðamaður, er látin fimmtíu ára að aldri. Innlent 21. ágúst 2022 19:58
Ingvar Gíslason er látinn Ingvar Gíslason, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og ráðherra, er látinn, 96 ára að aldri. Innlent 19. ágúst 2022 07:28
„Madame Butterfly“ er látin Japanski fatahönnuðurinn Hanae Mori, sem þekkt var sem „Madame Butterfly“ í tískuheiminum, er látin, 96 ára að aldri. Mori er sögð vera fyrsti japanski hönnuðurinn sem hafi slegið rækilega í gegn í heimi hinnar frönsku hátísku. Tíska og hönnun 18. ágúst 2022 08:39
Leikstjórinn Wolfgang Petersen allur Þýski kvikmyndaleikstjórinn Wolfgang Petersen er látinn, 81 árs að aldri. Hann var best þekktur fyrir kvikmyndir á borð við Das Boot, Air Force One og The Perfect Storm. Erlent 16. ágúst 2022 21:04
Pop Idol stjarnan Darius látinn rétt rúmlega fertugur Söngvarinn og leikarinn Darius Campbell Danesh er látinn aðeins 41 árs gamall. Danesh skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann tók þátt í hæfileikaþáttunum Popstars og Pop Idol fyrir tveimur áratugum síðan. Lífið 16. ágúst 2022 17:01