Fjölnisstelpur einu stigi frá fyrsta sigrinum Haukar unnu sinn annan leik í röð í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 81-80 sigur á botnliði Fjölnis í Grafarvogi. Snæfell vann á sama tíma sinn annan leik í röð á heimavelli þegar liðið landaði fjórtán stiga sigri á Grindavík, 65-51. Körfubolti 10. nóvember 2010 20:59
Butler tryggði Hamar sigur í Keflavík Jaleesa Butler var hetja Hamars sem vann góðan þriggja stiga sigur á Keflavík í æsispennandi leik í kvöld, 72-69. Körfubolti 10. nóvember 2010 20:53
Taplausu liðin keppa um toppsætið í kvöld Það verður stórleikur í kvennakörfunni í kvöld þegar Keflavík tekur á móti Hamar í Toyota-höllinni í Keflavík í 7. umferð Iceland Express deildar kvenna. Bæði lið hafa unnið fyrstu sex leiki sína og spila því um toppsætið í leiknum í kvöld. Körfubolti 10. nóvember 2010 16:45
Rúnar Ingi: Erum búnir að vera spila langt undir getu Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson átti góðan leik í kvöld þegar Njarðvík vann 110-94 sigur á Stjörnunni í Garðbæ og sló Garðbæinga út úr 32 liða úrslitum bikarsins. Körfubolti 4. nóvember 2010 21:50
Bæði Grindavíkurliðin skipta um bandaríska leikmenn Grindvíkingar hafa ákveðið að skipta um bandaríska leikmenn í báðum meistaraflokksliðum sínum í Iceland Express deildunum. Karlakaninn, Andre Smith, fer heim af persónulegum ástæðum en kvennakananum, Charmaine Clark, var sagt upp vegna þess að hún stóð ekki undir væntingum. Þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkur. Körfubolti 4. nóvember 2010 12:15
Sverrir Þór: Hún er gríðarlega mikilvæg fyrir okkur Fjögurra leikja sigurganga Njarðvíkur í Iceland Express deild kvenna endaði með fjórtán stiga tapi á móti Hamar í Hveragerði í kvöld. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur, sagði að sýnar stelpur hafi gert það besta út hlutunum eftir að hafa misst stigahæsta leikmann sinn, Dita Liepkalne, meiddan af velli eftir aðeins 54 sekúndur. Körfubolti 3. nóvember 2010 21:37
Ágúst: Við getum spilað miklu betur en þetta Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var sáttur með sigurinn á Njarðvík í Iceland Express deild kvenna í kvöld en vonast þó eftir að liðið spili betur í toppslagnum á móti Keflavík í næsta leik. Körfubolti 3. nóvember 2010 21:26
Iceland Express-deild kvenna: Úrslit kvöldsins Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld og má með sanni segja að úrslit kvöldsins hafi verið eftir bókinni. Körfubolti 3. nóvember 2010 21:01
Umfjöllun: Kristrún með stórleik í öruggum sigri Hamars Hamarskonur héldu sigurgöngu sinni áfram í Iceland Express deild kvenna með öruggum fjórtán stiga sigri á Njarðvík í Hveragerði í kvöld, 72-58. Hamar er búið vinna sex fyrstu leiki sína og við hlið Keflavíkur á toppnum. Körfubolti 3. nóvember 2010 20:50
Bandarískur leikstjórnandi til Hauka Haukar hafa styrkt sig fyrir átök vetrarins í Iceland Express deild kvenna en félaigð hefur samið við bandaríska leikstjórnandann Katie Snodgrass. Körfubolti 2. nóvember 2010 15:42
Keflavíkurkonur áfram með fullt hús eftir stórsigur á Haukum Kvennalið Keflavíkur vann 30 stiga sigur á Haukum í lokaleik fimmtu umferðar Iceland Express deildar kvenna í kvöld og er búið að vinna alla leiki sína eins og lið Hamars úr Hveragerði. Körfubolti 31. október 2010 22:15
Slavica tryggði Hamar sigur á Íslandsmeisturunum Hamar vann þriggja stiga sigur á KR, 79-76, í æsispennandi og dramatískum leik í Hveragerði í Iceland Express deild kvenna í dag. Snæfell vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið vann 66-50 sigur á botnliði Fjölnis. Körfubolti 30. október 2010 17:28
Njarðvík upp í annað sætið Njarðvík skellti sér upp í annað sæti Iceland Express deildar kvenna með sigri á Grindavík í kvöld, 67-54. Körfubolti 27. október 2010 22:38
KR lagði Snæfell KR-stúlkur unnu fínan sigur á ungu liði Snæfells í Vesturbænum í gær en stelpurnar úr Hólminum bíða enn eftir fyrsta sigri sínum í vetur. Körfubolti 25. október 2010 06:00
IE-deild kvenna: Sigrar hjá KR og Njarðvík Tveir leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í dag. Njarðvík vann fínan útisigur á Haukum og KR vann öruggan sigur á Snæfelli vestur í bæ. Körfubolti 24. október 2010 18:44
Hamar vann góðan sigur í Grindavík Kvennalið Hamars sótti tvö góð stig suður með sjó í dag er liðið lagði Grindavík í Röstinni. Grindavík stóð ágætlega í Hamri en Hvergerðingar lönduðu þó sigri að lokum. Körfubolti 23. október 2010 19:15
Njarðvíkurkonur burstuðu Fjölni í Ljónagryfjunni Njarðvík vann sinn annan leik í röð í Iceland Express deild kvenna þegar liðið vann 40 stiga sigur á Fjölni, 90-50, í lokaleik þriðju umferðar í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 20. október 2010 21:00
Haukar töpuðu stórt í Hveragerði Hamar gerði sér lítið fyrir og vann stórsigur á bikarmeisturum Hauka í Iceland Express deild kvenna í kvöld, 89-58. Körfubolti 17. október 2010 20:52
Fyrsti sigur KR á tímabilinu KR vann öruggan sigur á Grindavík í eina leik dagsins í Iceland Express-deild kvenna, 68-49. Körfubolti 16. október 2010 17:21
Keflavík, Hamar og Haukar öll með fullt hús í kvennakörfunni Keflavík, Hamar og Haukar eru öll með fullt hús eftir aðra umferðina í Iceland Express deild kvenna en Íslandsmeistarar KR hafa hinsvegar tapað tveimur fyrstu leikjum sínum eftir tap á heimavelli á móti Keflavík í stórleik dagsins. Haukar byrjuðu daginn á því að fara á toppinn með stórsigri á Grindavík en Keflavík og Hamar bættust í hópinn seinna um daginn. Körfubolti 9. október 2010 17:45
Haukakonur unnu auðveldan sigur á Grindavík Haukakonur létu ekki fjarveru þjálfarans, Hennings Henningssonar, hafa áhrif á sig þegar þær unnu sinn annan leik í röð í Iceland Express deild kvenna á Ásvöllum í dag. Haukar unnu þá 24 stiga sigur á Grindavík, 60-36, og eru eins og er á toppi deildarinnar. Umferðin klárast síðan seinna í dag. Körfubolti 9. október 2010 15:03
Haukar lögðu KR-inga Fyrsta umferð Iceland Express-deild kvenna fór fram í kvöld þar sem Haukar unnu til að mynda góðan sigur á KR á heimavelli. Körfubolti 6. október 2010 21:22
Charmaine Clark til Grindavíkur: Góður staður til að blómstra Kvennalið Grindavíkur hefur styrkt sig með bandarísku stelpunni Charmaine Clark sem lauk námi við University of Miami síðasta vor. Clark er mætt til landsins og spilar sinn fyrsta leik í kvöld þegar Grindavík tekur á móti nýliðum Fjölnis í Röstinni í fyrstu umferð Iceland Express deildar kvenna. þetta kom fyrst fram á karfan.is. Körfubolti 6. október 2010 12:30
Ida Tryggedsson stoppaði stutt í Grindavík Danski leikmaðurinn Ida Tryggedsson stoppaði stutt i Grindavík en hún fór af landi brott í gær tveimur dögum áður en Grindavíkurliðið spilaði sinn fyrsta leik í mótinu. Grindavík mætir Fjölnir í 1. umferð Iceland Express deildar kvenna á morgun. Körfubolti 5. október 2010 16:00
Haukar láta Alyshu Harvin fara eftir þrjá leiki Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka hefur ákveðið að leysa Alyshu Harvin undan samning við kvennalið félagsins en þetta kemur fram á heimasíðu Hauka. Körfubolti 5. október 2010 15:00
Jón Halldór: Liðið mitt lítur vissulega vel út „Þetta er nú svolítið fyndið að það sé alltaf verið að spá fyrir hvert tímabil því þetta rætist sjaldnast. Við ætlum að láta þessa rætast enda er kominn tími á það því það er langt síðan að við unnum síðast," sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkurkvenna sem var spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna en hún var kynnt á kynningarfundi fyrir Iceland Express deildir karla og kvenna í dag. Körfubolti 4. október 2010 16:00
Keflavík og KR spáð Íslandsmeistaratitlunum í körfunni Kvennalið Keflavíkur og karlalið KR munu fagna Íslandsmeistaratitlinum í körfunni næsta vor ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna í árlegri spá sem var kunngerð nú áðan á kynningarfundi Iceland Express-deilda karla og kvenna fyrir tímabilið 2010-2011. Haukar og Tindastól munu falla hjá körlunum en Fjölnir fellur hjá konunum. Körfubolti 4. október 2010 13:43
KR-konur eru meistarar meistaranna KR tryggði sér í kvöld titilinn meistararar meistaranna er KR lagði Hauka, 72-58. Leikurinn fór fram í Stykkishólmi. Körfubolti 3. október 2010 19:00
Keflavíkurkonur unnu Lengjubikarinn Keflavík er Lengjubikarmeistari í kvennaflokki eftir sigur á Íslandsmeisturum KR í úrslitaleik í Laugardalshöll. Körfubolti 26. september 2010 14:53
Keflavík og KR tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna Það verða Íslandsmeistarar KR og Keflavík sem mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna en undanúrslit keppninnar fóru fram í kvöld. Keflavík vann tíu stiga sigur á Hamar í Hveragerði á sama tíma og KR vann tveggja stiga sigur á bikarmeisturum Hauka í DHL-höllinni. Körfubolti 21. september 2010 16:56