

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Orri einn sá verðmætasti meðal ungra leikmanna á Norðurlöndum
Íslenski landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson hefur verið að stimpla sig inn hjá bæði FC Kaupmannahöfn og íslenska landsliðinu á þessu ári.

„Síðasti dans“ Messi og Ronaldo aftur á dagskrá
Inter Miami hefur nú staðfest það að liðið muni eftir allt saman taka þátt í Riyadh bikarnum í Sádí Arabíu í febrúar næstkomandi.

Íslandsvinirnir í Puma slíta samstarfi sínu við mótherja Íslands
Þýski íþróttavöruframleiðandinn Puma hefur ákveðið að hætta samstarfi sínu við ísraelska knattspyrnusambandið. Núgildandi samningur er fram á næsta ár.

Fyrrverandi leikmaður Liverpool spilaði allan ferilinn með heilaæxli
Skoski knattspyrnumaðurinn Dominic Matteo segir frá glímu sinni við krabbamein í heila í nýju viðtali við Guardian en hann fór í aðgerð fyrir fjórum árum þar sem meinið var fjarlægt.

Erdogan búinn að tjá sig um hnefahöggið á fótboltavellinum
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, er meðal þeirra sem hafa komið fram opinberlega og fordæmt árás forseta fótboltaliðs á dómara eftir leik í tyrknesku úrvalsdeildinni.

Forsetinn sló dómarann í andlitið og öllum fótboltaleikjum frestað
Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur stöðvað allar deildi í landinu eftir skammarlegt kvöld fyrir tyrkneska fótboltann.

Glódís Perla á toppinn eftir sigur í Íslendingaslag
Bayern München er komið á topp þýsku úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu eftir sannfærandi sigur á Bayer Leverkusen í kvöld. Ein íslensk landsliðskona var í sitthvoru byrjunarliðinu.

Pochettino vill að eigendur Chelsea opni veskið í janúar
Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá Chelsea á yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir eða fúlgum fjár í alls 14 leikmenn síðasta sumar þá virðist leikmannahópur liðsins einkar illa samansettur og vill Mauricio Pochettino, þjálfari liðsins, að eigendur félagsins opni veskið í janúar.

Fyrirliði Lyngby: Held þetta sé verst dæmdi leikur sem ég hef spilað
Marcel Rømer, fyrirliði Íslendingaliðs Lyngby í knattspyrnu, var vægast sagt ósáttur eftir að liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar. Hann segir síðari leik liðsins gegn Fredericia þann verst dæmda á hans ferli en Lyngby missti mann af velli eftir 27 sekúndur.

Mourinho lét boltastrákinn færa markverði Roma miða
José Mourinho er engum líkur og sýndi það enn og aftur í leik Roma og Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.

Sjáðu öll tvö hundruð mörk Salah fyrir Liverpool
Mohammed Salah varð um helgina aðeins fimmti leikmaður sögunnar til að skora tvö hundruð mörk fyrir Liverpool í öllum keppnum.

Fótbrotnaði í bikarúrslitaleiknum
Molde tryggði sér norska bikarmeistaratitilinn í fótbolta um helgina en einn leikmaður liðsins gat þó ekki fagnað með liðsfélögum sínum.

Segir að andrúmsloftið sé ekki eitrað í klefa Man. United eins og stundum áður
Scott McTominay segir að hann og leikmenn Manchester United standi þétt að baki knattspyrnustjóra sínum Erik ten Hag en fram undan hjá liðinu er leikur upp og líf og dauða í Meistaradeildinni. United mætir Bayern München annað kvöld.

Hafrún Rakel í Bröndby: „Passa mjög vel inn í leikstíl liðsins“
Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur skrifað undir samning til tveggja ára við danska félagið Bröndby.

Mikael baunar á stuðningsmenn Brøndby
Landsliðsmaðurinn í fótbolta, Mikael Neville Anderson, skaut létt á stuðningsmenn Brøndby eftir tilraun þeirra til að trufla undirbúning AGF fyrir mikilvægan leik.

Ísland mætir Serbíu í umspilinu en óvíst hvar
Í dag kom í ljós hvaða lið verður andstæðingur stelpnanna okkar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta í lok febrúar, í umspilinu í Þjóðadeild UEFA.

Stálheppinn Brynjólfur brosti breitt að lokum
Brynjólfur Willumsson átti sinn þátt í að fullkomna magnað ævintýri norska knattspyrnuliðsins Kristiansund í gær en var á sama tíma hársbreidd frá því að reynast skúrkur dagsins.

Íslensku stelpurnar vita það í hádeginu hvaða þjóð þær mæta í umspilinu
Í dag verður dregið um mótherja Íslands í umspili Þjóðadeildar kvenna í fótbolta. Íslensku stelpurnar spila þá um áframhaldandi sæti í A-deild keppninnar.

Vonast eftir því að Haaland verði búinn að ná sér fyrir HM félagsliða
Pep Guardiola bindur vonir við það að norski framherjinn Erling Haaland geti hjálpað Manchester City að verða heimsmeistari félagsliða í fyrsta sinn.

Lineker með samviskubit: Þetta er að eyðileggja leikinn
Knattspyrnugoðsögnin og sjónvarpssérfræðingurinn Gary Lineker hefur verið ötull talsmaður myndbandsdómgæslu í gegnum tíðina en nú virðist hann vera búinn að sjá nóg af vitleysu og mistökum með útfærslu VAR.

Konur eru ekki litlir karlar
Sólveig Þórarinsdóttir, sjúkraþjálfari og doktorsnemi, er ein þeirra sem stendur að baki rannsókn sem vakið hefur athygli og stuðlað að góðum breytingum í norska kvennaboltanum. Rannsóknin snýr að heilsufari leikmanna í deildinni en þekking okkar á kvennaknattspyrnunni er afar takmörkuð. Hún hefur staðið í skugganum á karlaknattspyrnunni og aðeins 7% gagna í knattspyrnuheiminum byggja á reynslu okkar og þekkingu af kvennaknattspyrnu.

Zlatan óvænt orðaður við sitt fyrsta þjálfarastarf
AC Milan er í vandræðum í ítalska fótboltanum og tapaði enn einum leiknum um helgina. Ítalskir fjölmiðlar eru farnir að velta því fyrir sér hvort breytingar séu í farvatninu í Mílanó.

Leik hætt eftir að stuðningsmaður lést í stúkunni
Leik Granada og Athletic Bilbao í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, var hætt eftir að stuðningsmaður annars liðsins lést í stúku Nuevo Los Carmenes-leikvangsins á sunnudag.

United horfir til bláa hluta borgarinnar í leit að nýjum miðjumanni
Ef marka má fréttir enska götublaðsins The Sun þá er Kalvin Phillips, miðjumaður Englands- og Evrópumeistara Manchester City, efstu á óskalista Manchester United.

Katalónía er hvít og rauð
Girona gerði sér lítið fyrir og lagði Barcelona á útivelli í toppslag La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, í dag. Lokatölur 4-2 gestunum í vil.

Rómverjar sáu rautt í jafntefli gegn Fiorentina
Roma fékk Fiorentina í heimsókn í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti og lauk leiknum með 1-1 jafntefli þar sem Roma nældi sér í tvö rauð spjöld.

Malard allt í öruggum sigri Man United
Manchester United lagði Tottenham Hotspur örugglega 4-0 þegar liðin mættust í Lundúnum í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu.

Hákon Rafn orðaður við annað lið í Belgíu
Það stefnir allt í að landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson yfirgefi herbúðir sænska knattspyrnufélagsins Elfsborg á næstunni en hann er ítrekað orðaður við félög í Belgíu sem og víðar.

Mikael í undanúrslit á meðan Íslendingalið Lyngby er úr leik
Íslendingalið Lyngby komst ekki í 8-liða úrslit dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. AGF, lið Mikaels Neville Anderson, er hins vegar komið áfram í undanúrslit.

Tottenham aftur á sigurbraut eftir stórsigur
Tottenham Hotspur hafði leikið fimm leiki án sigurs þegar Newcastle United heimsótti þá í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var hins vegar ekki að sjá á frammistöðum beggja liða í dag en Tottenham vann gríðarlega sannfærandi 4-1 sigur þar sem mark gestanna kom undir lok leiks.