Sigur hjá Stjörnunni eftir maraþonleik og vítaspyrnur Stjarnan vann sigur á Sturm Graz í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir framlengdan leik og vítakeppni. Úrslit réðust ekki fyrr en í níundu umferð vítaspyrnukeppninnar. Fótbolti 9. september 2023 14:28
Juventus úr leik í Meistaradeildinni eftir vítakeppni Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Juventus eru úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið tapaði í dag gegn Frankfurt eftir vítakeppni. Fótbolti 9. september 2023 14:02
„Tími til kominn að njóta lífsins og fá sér nokkra bjóra“ Eden Hazard virðist vera að íhuga að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Hazard er félagslaus sem stendur og í heimildamynd um belgíska landsliðið er hann greinilega farinn að hugsa um framtíðina án fótboltans. Fótbolti 9. september 2023 13:33
Neymar orðinn sá markahæsti en knattspyrnusambandið viðurkennir ekki metið Neymar varð í nótt markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins í knattspyrnu þegar hann skoraði tvö mörk í 5-1 sigri liðsins gegn Bólivíu. Fótbolti 9. september 2023 12:30
„Þessir strákar verða að stíga upp og gerast leiðtogar í liðinu“ Fyrrum landsliðsmennirnir Lárus Orri Sigurðsson og Kári Árnason kalla eftir að menn stígi upp innan íslenska landsliðsins og taki á sig leiðtogahlutverk. Þeir eiga erfitt með að benda á leiðtoga innan leikmannahópsins í dag. Fótbolti 9. september 2023 12:01
Antony í viðtali í brasilísku sjónvarpi: Ofbeldi gagnvart konum er 100 prósent rangt Brasilíski knattspyrnumaðurinn kom fram í brasilískum sjónvarpsþætti í gær og neitaði ásökunum um ofbeldi sem birst hafa gagnvart honum. Manchester United segjast taka ásökununum alvarlega. Enski boltinn 9. september 2023 11:30
„Við verðum að gera betur“ Hákon Arnar Haraldsson skoraði mark Íslands í tapinu gegn Lúxemborg í gær. Hann sagði liðið hafa fengið færi til að skora fleiri mörk í leiknum. Fótbolti 9. september 2023 11:00
Heilindi fótboltans geti verið í hættu Forráðamenn þýsku félaganna Dortmund og Bayern München hafa kallað eftir skýrara og harðara regluverki þegar kemur að eigu eignarhaldsfélaga á fleira en einu fótboltaliði. Skýrsla frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, segir heilindi Evrópuboltans geta verið í hættu. Fótbolti 9. september 2023 10:00
Segir að Henderson yrði leiður ef stuðningsmenn sneru baki við honum Búist er við að Jordan Henderson verði í byrjunarliði Englands sem mætir Úkraínu í undankeppni EM í dag. Gareth Southgate vonast til að stuðningsmenn standi við bakið á liðinu í leiknum. Enski boltinn 9. september 2023 09:31
Ýtti við Eddie Howe og fær nú fangelsi Stuðningsmaður Leeds var í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ýtt við Eddie Howe knattspyrnustjóra Newcastle í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í vor. Enski boltinn 9. september 2023 09:02
Dagskráin í dag: Undankeppni EM, upphitun fyrir Bestu deildina og UFC Það kennir ýmissa grasa á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag. Englendingar verða í eldlínunni í undankeppni EM og þá verður upphitunarþáttur fyrir Bestu deild kvenna sýndur. Fótbolti 9. september 2023 06:00
Brynjar Ingi kallaður inn í landsliðshópinn Brynjar Ingi Bjarnason hefur verið kallaður inn í landsliðshóp karla í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Bosníu og Hersegóvínu á mánudagskvöldið. Fótbolti 8. september 2023 23:16
Åge Hareide: Getum ekki gefið svona mörg færi á okkur Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir lærisveina sína hafa gert of mörg mistök og gefið of mörg færi á sér þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Lúxemborg á útivelli í undankeppni EM 2024 í kvöld. Fótbolti 8. september 2023 22:01
Sjáðu mörkin þegar Lúxemborg fór illa með strákana okkar Íslenska landsliðið í knattspyrnu fór fýluferð til Lúxemborg því liðið beið lægri hlut gegn heimamönnum í undankeppni EM í kvöld. Fótbolti 8. september 2023 21:51
Umfjöllun: Lúxemborg - Ísland 3-1 | Martröð í Lúxemborg Íslenska karlalandsliðið mátti þola ósigur á útivelli gegn Lúxemborg í kvöld. Liðið var slappt bæði andlega og líkamlega. Ísland lenti snemma undir og komst aldrei í takt við eitt eða neitt og úr varð martraðakenndur leikur sem fellur í gleymskunnar dá sem fyrst því það er leikur á mánudag. Lúxemborg vann 3-1 og hefði getað unnið stærra. Það er mikið að hugsa um fyrir Åge Hareide þessa dagana. Fótbolti 8. september 2023 21:43
„Ég rétti upp höndina og tek ábyrgð á þessu“ Guðlaugur Victor Pálsson tók fulla ábyrgð eftir tap Íslands gegn Lúxemborg í kvöld. Hann sagði frammistöðuna ekki hafa verið boðlega og sagði að liðið yrði af læra af mistökum sínum. Fótbolti 8. september 2023 21:42
Einkunnir leikmanna íslenska liðsins: Hörður Björgvin átti slakt kvöld Frammistaða íslensku leikmannanna í tapinu gegn Lúxemborg ytra í undankeppni EM 2024 í kvöld var ekki upp á marga fiska. Varnarlína íslenska liðsins var hvað eftir annað grátt leikin, of mikið bil var á milli línanna hjá liðinu og ekki tókst að skapa nógu mörg færi. Fótbolti 8. september 2023 21:35
Alfreð: Ég býst við því að gera betur í svona færum Alfreð Finnbogason leiddi sóknarlínu Íslands í kvöld þegar liðið tapaði fyrir Lúxemborg 3-1 á útivelli í undankeppni EM 2024. Hann var að sjálfsögðu svekktur með ýmsa hluti í leiknum og þá sérstaklega það að leikmenn Íslands hafi ekki verið skarpir í báðum teigum leiksins. Fótbolti 8. september 2023 21:20
Portúgalir og Skotar í góðri stöðu eftir leiki kvöldsins Sex leikir fóru fram í kvöld í undankeppni EM í Þýskalandi á næsta ári. Skotar unnu öruggan sigur á Kýpur og þá vann Portúgal útisigur gegn Slóvakíu í riðli Íslands. Fótbolti 8. september 2023 21:05
„Við gefum þeim mörk og erum ekki að klára færin okkar“ Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði íslenska landsliðsins var svekktur eftir tapið gegn Lúxemborg í kvöld. Hann sagði liðið hafa gert mistök á báðum endum vallarins. Fótbolti 8. september 2023 20:59
Íslenska þjóðin á X-inu: „Svo sem alltaf verið meiri handboltaþjóð“ Íslenskir fótboltaáhugamenn létu skoðun sína á frammistöðu íslenska karlandsliðins í leik liðsins gegn Lúxemborg í undankeppni EM 2024 á samfélagsmiðlinum X-inu. Fótbolti 8. september 2023 19:36
Arnar braut engar reglur og Víkingar sleppa við refsingu Knattspyrnudeild Víkinga hlýtur enga refsingu vegna samskipta Arnars Gunnlaugssonar þjálfara liðsins við varamannabekk Víkinga í leik gegn Val þann 20. ágúst. Arnar var í leikbanni í leiknum. Fótbolti 8. september 2023 19:35
Arnór Ingvi valinn leikmaður mánaðarins í Svíþjóð Arnór Ingvi Traustason var í dag valinn besti leikmaður ágústmánaðar í sænsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 8. september 2023 19:31
Van Dijk fékk auka leik í bann Virgil Van Dijk fyrirliði Liverpool fékk í dag einn auka leik í leikbann vegna framkomu sinnar í garð dómara í leiknm gegn Newcastle. Hollendingurinn var auk þess sektaður duglega. Enski boltinn 8. september 2023 18:46
Sextán ára unglingur skoraði í risasigri Spánverja Spánverjar voru í miklu stuði í kvöld þegar þeir mættu Georgíu á útivelli í undankeppni Evrópumótsins á næsta ári. Spænska liðið vann 7-1 sigur og fer upp í annað sæti A-riðils. Fótbolti 8. september 2023 18:03
Byrjunarlið Íslands: Þrjár breytingar síðan gegn Portúgal Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Lúxemborg nú á eftir síðan í síðasta leik gegn Portúgal. Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson fá tækifæri í byrjunarliðinu. Fótbolti 8. september 2023 17:33
Framrúðan brotin öðru sinni: „Vildi að þeir kynnu að skjóta“ Tom Cairney, leikmaður Fulham í ensku úrvalsdeildinni, virðist þurfa að athuga betur hvar hann leggur bifreið sinni á æfingasvæði félagsins. Öðru sinni brotnaði framrúða á bíl hans eftir skot frá leikmanni liðsins. Enski boltinn 8. september 2023 16:47
Samherjar Sanchos hafa enga samúð með honum Samherjar Jadons Sancho hjá Manchester United hafa litla sem enga samúð með honum. Enski boltinn 8. september 2023 16:01
„Þetta er náttúrulega ekki boðlegt“ Fyrrum handboltakonan og alþingismaðurinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var gestur Helenu Ólafsdóttur í Bestu upphituninni fyrir umferð helgarinnar í Bestu deild kvenna. Farið var um víðan völl og meðal annars snert á aðstöðumálum sem hafa verið í deiglunni í vikunni. Íslenski boltinn 8. september 2023 15:38
Rubiales ákærður og kallaður til skýrslutöku Saksóknaraembætti á Spáni hefur lagt fram ákæru á hendur Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, eftir að Jenni Hermoso, leikmaður landsliðs Spánar, tilkynnti málið formlega á þriðjudag. Fótbolti 8. september 2023 14:40