

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Netglæpamenn herja á félagasamtök
Lögreglunni hefur nýlega borist ábendingar varðandi millifærslusvindl þar sem verið er að reyna að draga fé út úr félagsamtökum með því að fá forsvarsmenn þeirra til að millifæra peninga.

Braust inn og borðaði afgangana
Karlmaður var handtekinn í nótt eftir að hann braust inn í hús í Bústaðahverfinu og gerði sig heimankominn þar.

Ófrísk kona flúði slagsmál ölvaðra manna í heimahúsi í Sandgerði í dag
Lögregla var kölluð til þegar ágreiningur varð á milli drukkinna manna á heimili í Sandgerði rétt eftir hádegi í dag.

Lögreglan lokar veginum um Heiðmörk vegna hálku
Glerhálka er í Heiðmörk og þurfti að aðstoða bíla sem voru þar fastir í dag.

Löggutíst: Lögreglan segir frá öllum verkefnum á Twitter
Í kvöld ætlar lögreglan að vera með Twitter-maraþon, eða svokallað löggutíst.

Tugmilljóna tölvubúnaði stolið úr gagnaveri
Tölvubúnaði að verðmæti um 20 milljónir króna var stolið úr húsnæði að Heiðartröð í Ásbrú í Reykjanesbæ aðfaranótt 6. desember.

Handtekinn fyrir húsbrot og heimilisofbeldi
Þá er hann einnig grunaður eignaspjöll, akstur undir áhrifum fíkniefna og að hafa ekið sviptur ökuréttindum

Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald vegna stunguárásar á Austurvelli
Gert á grundvelli almannahagsmuna.

Handslökkvitækin dugðu ekki til
Eldur kom upp í bifreið við Víkingsheimilið í Fossvogi á áttunda tímanum í gærkvöldi.

Ferðamaður flaug sérstaklega aftur til Íslands til að sækja þýfi sem lögreglan hafði upp á
Endurheimti ljósmyndabúnað upp á tæpa milljón krónur og ljósmyndir úr Evrópuferð hans og eiginkonunnar.

Dráttarbíll lokar veginum við Jökulsárlón
Bifreiðin rann til í mikilli hálku og skorðaðist við ristahlið á veginum.

Lögreglan skoðar allar leiðir mögulegar við rannsókn á óhugnanlegri árás
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er engu nær í rannsókn sinni vegna árásar á tíu ára stúlku skammt frá miðbæ Garðabæjar síðdegis á mánudag.

Búið að bera kennsl á mann sem fannst látinn í Fossvogsdal
Fannst í skurði við læk nálægt vinnusvæði í dalnum.

Réttur barna til öryggis þarf að vega þyngra en réttur foreldris til umgengni
Systir manns sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega á þremur dætrum sínum vill að heimilt verði að fylgjast með þeim sem hafa framið kynferðisbrot og eiga lögheimili með einstaklingum undir 18 ára aldri.

Sími og skilríki nægja ekki lögreglu við rannsókn á líkfundi í Fossvogsdal
Þetta þarf að liggja alveg ljóst fyrir, segir lögregla.

Ökumaður olli vatnstjóni í Hafnarfirði
Ökumaðurinn missti stjórn á bifreið sinni á Hvaleyrarbraut í gærkvöldi.

Annþór laus við ökklabandið
Annþór Kristján Karlsson, sem undir lok árs 2012 var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir hættulegar líkamsárásir, losnaði við ökklabandið sitt í gær.

Grunaður um tilraun til manndráps: Grunur um að maðurinn sé ekki sá sem hann segist vera
Lögreglan hefur grun um að erlendur karlmaður sem grunaður er um tilraun til mandráps, með því að hafa ráðist á fyrrverandi kærustu sína aðfaranótt 3. desember, sé ekki sá sem hann hafi kvaðst vera.

Líkfundur í Fossvogsdal
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkfund í Fossvogsdalnum í Reykjavík.

Grunaður um tilraun til manndráps: Áverkavottorð þýsks réttarmeinafræðings lykilgagn í málinu
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að erlendur karlmaður sem grunaður er um tilraun til manndráps skuli sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna til 3. janúar næstkomandi.

Fær tjónið ekki bætt eftir skammtímaútleigu: „Íbúðin í rúst og mannaskítur upp á veggjum“
Íslensk stúlka skilaði íbúð af sér í hræðilegu ástandi eftir fimm daga skammtímaleigu í Reykjavík og eigendurnir fá milljón króna tjónið ekki bætt.

Þjófar létu til skarar skríða í skjóli jólatónleika
Tveir menn voru handteknir í gærkvöldi í miðbæ Ísafjarðar grunaðir um að hafa látið greipar sópa í anddyri Ísafjarðarkirkju á sama tíma og tónleikar voru haldnir í kirkjunni.

Fjórar líkamsárásir í miðborginni
Lögreglan segir nóttina hafa verið mjög rólega á höfuðborgarsvæðinu.

Laug til um hópslagsmál til að fá far með lögreglunni
Tilkynnt hópslagsmál á Melatorgi voru ekki alveg í samræmi við raunveruleikann.

Leita konu sem ók á fimmtán ára stúlku
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók á gangandi vegfaranda í Skógarseli í Breiðholti um klukkan 8:30 í gærmorgun.

Fjölmargir stútar undir stýri í nótt
Ölvaðir ökumenn einkenndu nóttina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Stal og slóst við öryggisverði
Öryggisverðir höfðu lent í átökum við mann sem reyndi þjófnað úr versluninni.

Innbrotsþjófar staðnir að verki í Árbæ
Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en alls rötuðu 25 mál inn á hennar borð.

Ók inn í hágreiðslustofu í Hraunbæ
Bíl var ekið inn í hársnyrtistofu í Hraunbæ á tíunda tímanum í gærkvöld.

Ekkert lát á kókaínflóði
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á hátt í 31 kíló af fíkniefnum sem reynt hefur verið að smygla til landsins það sem af er ári.