Læknir ekki séð aðra eins áverka á þrjátíu ára starfsferli Bráðalæknir sem tók á móti konu sem Kristján Markús Sívarsson er sakaður um að hafa beitt margvíslegu ofbeldi segist varla hafa séð annað eins dæmi um áverka í starfi sínu sem læknir. Áverkarnir sem konan var með voru að sögn læknisins óteljandi og mjög umfangsmiklir. Innlent 6. mars 2025 07:02
Átta ungmenni handtekin í Seljahverfi Átta ungmenni voru handtekinn í Seljahverfi í gærkvöldi eða nótt í tveimur aðskildum málum. Innlent 6. mars 2025 06:30
Bílarnir dregnir upp úr sjónum Búið er að draga á land bílana tvo sem fóru í sjóinn við Akraneshöfn í óveðrinu á mánudagsmorgun þegar stærðarinnar alda gekk yfir höfnina. Tveir menn fóru einnig í sjóinn og liggur annar þeirra þungt haldinn á gjörgæslu. Innlent 5. mars 2025 16:35
Líkamsárásir, skemmdarverk og klifurslys Þrír voru handteknir fyrir líkamsárás á höfuðborgarsvæðinu í nótt, í þremur aðskildum málum. Innlent 5. mars 2025 06:59
„Steinhissa“ þegar honum var birt ákæra „Ég er ekki að skilja hvernig ég á að geta misþyrmt manneskju dögum saman, án þess að lögreglan komi. Ég er þekktur og er undir eftirliti,“ sagði Kristján Markús Sívarsson við aðalmeðferð sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Kristján er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa um nokkurra daga skeið beitt konu miklu ofbeldi á heimili hans í nóvember síðastliðnum. Innlent 4. mars 2025 09:01
Sérsveitaraðgerð í Kópavogi Sérsveit Ríkislögreglustjóra viðhafði nokkurn viðbúnað í Kópavogi eftir að útkalla barst um klukkan 13:30. Innlent 3. mars 2025 14:39
Kona féll fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholti Lögregla var kölluð til í Breiðholti um hádegisbil í dag vegna konu sem féll niður af svölunum í fjölbýlishúsi. Um var að ræða konu á sextugsaldri sem er látin. Ekki er grunur um refsiverða háttsemi. Innlent 3. mars 2025 12:48
Aldan hrifsaði bíla og fólk út í sjó Tveir lentu í sjónum við höfnina á Akranesi í morgun þegar stærðarinnar alda gekk yfir höfnina. Þeir komust úr sjónum af sjálfsdáðum en talsverður viðbúnaður var hjá viðbragðsaðilum. Annar þeirra var fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús. Innlent 3. mars 2025 10:27
Sóttu mann í ógöngum á Hólmatindi Björgunarsveitir á Austurlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út eftir boð bárust frá manni sem hafði lent í ógöngum á Hólmatindi um klukkan 20:30 í gærkvöldi. Innlent 3. mars 2025 08:12
Lokuðu mann inni á meðan beðið var eftir lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt þar sem starfsmenn höfðu komið að manni inni á afgirtu svæði í Hafnarfirði. Innlent 3. mars 2025 06:39
Tvær bílveltur með stuttu millibili Tvær bílveltur urðu á höfuðborgarsvæðinu með stuttu millibili en vegir urðu víða flughálir við skyndilega og mikla snjókomu. Annar bíllinn valt við Álfabakka og hinn úti við Kollafjörð. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 2. mars 2025 17:59
Grjóthnullungar á stærð við mannfólk í átt að ferðamönnum Aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi segir engan hafa slasast er sjór gekk inn á bílastæði við Reynisfjöru í gær. Ábúendur á svæðinu segjast aldrei hafa séð annað eins en grjóthnullungar á stærð við mannfólk bárust með öldunni í átt að gangandi vegfarendum. Innlent 1. mars 2025 11:57
Amma gerandans svarar ákalli föður Bryndísar Klöru Dagný Hængsdóttir Köhler, amma drengsins sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt í fyrra, segist vilja svara kalli föður Bryndísar Klöru og gerast riddari kærleikans. Dagný kallar eftir því í aðsendri grein að betur sé hugað að börnum sem upplifa áföll. Dóttursonur hennar og dóttir hafi bæði upplifað áföll sem hafi markað líf þeirra og gjörðir. Hún vilji ekki draga úr ábyrgð eða afsaka, heldur stuðla að breytingum. Innlent 1. mars 2025 08:02
Tvö ung börn í bíl ölvaðs ökumanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ölvuðum ökumanni sem reyndist án ökuréttinda í Reykjavík í nótt. Í bílnum voru tvö ung börn. Innlent 1. mars 2025 07:26
Ákærðir fyrir fullt af fíkniefnum í bala Tveir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa í vörslum sínum tæplega 6,6 kíló af amfetamíni og tæp 900 grömm af kókaíni. Innlent 1. mars 2025 07:02
„Fyrir óæft auga mætti halda að þetta væri venjulegt barn“ Þeim málum fer fjölgandi hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem gervigreind kemur við sögu. Nær ómögulegt getur verið að greina á milli hvað er raunverulegt og hvað ekki að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Einn var handtekinn hér á landi í vikunni í tengslum við alþjóðlega aðgerð sem varðar barnaníðsefni búið til með gervigreind. Innlent 28. febrúar 2025 20:00
Sigu um borð og tóku yfir stjórn íslensks skips Tveir stýrimenn Landhelgisgæslu Íslands sigu í gær úr þyrlu Landhelgisgæslunnar um borð í íslenskt skip norður af landi og tóku yfir stjórn þess. Innlent 28. febrúar 2025 15:45
Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Eigandi reiðhjóls sem sótt var í Reykjavíkurhöfn fyrr í vikunni af kafara er kominn í leitirnar. Eigandinn hafði ekki hugmynd um að hjólið væri horfið úr bakgarðinum fyrr en eiginkona hans rak augun í mynd af hjólinu á Facebook. Hann segir hjólið það eina sinnar tegundar hér á landi. Lífið 28. febrúar 2025 15:32
Notuðu rafvopn til að yfirbuga ógnandi mann með hamra Lögreglan beitti rafvopni í þriðja sinn hér á landi síðastliðinn mánudag. Vopninu var beitt í Hafnarfirði, í Helluhverfinu, gegn manni sem neitaði að fylgja fyrirmælum lögreglu. Innlent 28. febrúar 2025 15:13
Íslendingur handtekinn vegna barnaníðsefnis sem var búið til af gervigreind Einn Íslendingur var handtekinn í aðgerðum Europol vegna rannsóknar á hópi manna sem er sagður hafa átt þátt í dreifingu á barnaníðsefni sem var búið til af gervigreind. Innlent 28. febrúar 2025 11:46
Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Framkvæmdastjóri Lyfjablóms á von á því að ákæra verði gefin út á hendur Þórði Má Jóhannessyni fjárfesti vegna viðskiptagjörninga þess síðarnefnda sem forstjóri Gnúps fjárfestingarfélag. Hann stefnir á að fara með mál sitt á hendur Þórði og fyrrverandi ráðherra til endurupptökudómstóls. Viðskipti innlent 27. febrúar 2025 11:57
Konan er fundin Konan sem Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsti eftir í morgun er fundin. Ekki hafði sést til hennar í rúma viku. Innlent 27. febrúar 2025 10:32
Ölvaður, réttindalaus og með barn í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ökumanni í gærkvöldi eða nótt sem var bæði réttindalaus og grunaður um ölvun við akstur. Þá var barn í bílnum. Innlent 27. febrúar 2025 06:21
Spyr sig hvort eftirlitsnefnd hafi unnið hratt í „þágu tiltekinnar niðurstöðu“ Eftirlitsnefnd með störfum lögreglu ætlar að horfa aftur á myndbandsupptökur frá mótmælum í fyrra að sögn formanns nefndarinnar og nú til að meta ýmis neikvæð ummæli lögreglu. Innlent 26. febrúar 2025 22:07
Skoðaði staðsetningu stúlkunnar hátt í 150 sinnum fyrir árásina Pilturinn sem sætir ákæru eftir hnífstunguárás á menningarnótt skoðaði staðsetningu einnar stúlkunnar sem fyrir árásinni varð hátt í hundrað og fimmtíu sinnum á degi árásarinnar. Forstjóri Persónuverndar hvetur börn og fullorðna til vitundar um hætturnar sem því geta fylgt að deila viðkvæmum upplýsingum á borð við staðsetningu með öðrum. Innlent 26. febrúar 2025 19:00
Þjófurinn reyndist sofandi inn á baði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um að brotist hefði verið inn í fyrirtæki. Löregluþjónar fóru á vettvang, ræddu við starfsmenn og ætluðu að skoða upptökur úr öryggismyndavélum fyrirtækisins en kom þá í ljós að innbrotsþjófurinn var enn þar inni. Innlent 26. febrúar 2025 18:07
Leggjast aftur yfir myndefnið Formaður Nefndar um eftirlit með lögreglu segir nefndarmenn ekki hafa heyrt orðfæri lögreglumanna við mótmæli í Skuggasundi í maí í fyrra. Til standi að fara aftur yfir myndefni úr búkmyndavélum og skoða málið betur. Innlent 26. febrúar 2025 11:19
Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo einstaklinga eftir slagsmál í miðbænum í nótt. Þá var einn handtekinn eftir að nágrannar höfðu tilkynnt hvorn annan nokkrum sinnum. Innlent 26. febrúar 2025 07:01
Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og starfsmaður greiningardeildar CCP, gerir upp tíma sinn í lögreglunni og hvað það var sem hann tók helst úr því starfinu. Meðal eftirtektarverðra tíu atriða sem Tryggvi tekur út úr starfinu er að konur á miðjum aldri séu þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna. Innlent 25. febrúar 2025 16:30
Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Varaformaður Landssambands lögreglumanna segir sambandið ekki geta sagt til um einstaka ummæli lögreglumanna á mótmælum í Skuggasundi þann 31. maí í fyrra. Ummælin hafi verið viðhöfð í aðstæðum þar sem spennustig var hátt. Það verði gott fyrir lögreglumenn líka að vita hvar mörkin liggja. Innlent 25. febrúar 2025 16:04