Tískan við þingsetningu: Hverjir voru í hverju? Á hverju hausti mæta þingmenn landsins í sínu fínasta pússi til þingsetningar og var dagurinn í dag engin undantekning þar á. Tískuunnendur bíða gjarnan spenntir eftir því að sjá hvaða klæðnað embættismenn velja fyrir tilefnið. Tíska og hönnun 10. september 2024 20:02
„Píratar hafa lengi verið mikið áhugamál hjá mér“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mun sitja í þingsal umkringdur Pírötum þennan þingvetur. Píratar hafa lengi verið sérstakt áhugamál Sigmundar sem kveðst spenntur að halda áfram að rannsaka þá og vonandi „koma þeim inn á rétta braut“. Lífið 10. september 2024 19:48
Hvatti þingmenn til málamiðlana og samninga Forseti Íslands segir skipta miklu að stjórnmálaflokkar geti þrátt fyrir ólík sjónarmið og kapp um hylli kjósenda gefið eftir og náð sameiginlegri lendingu í þágu þjóðarinnar. Lýðræðið krefðist málamiðlana. Innlent 10. september 2024 19:40
„Það þarf neyðaraðgerðir við þessu neyðarástandi“ Mótmæli Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasambands Íslands (KÍ) fóru fram í dag. Fólk lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir vind, kulda og að mótmælin hafi verið boðuð með stuttum fyrirvara, fjölmennti á Austurvöll og lét vel í sér heyra. Innlent 10. september 2024 19:33
Ríkisútgjöld aukast um tugi milljarða á næsta ári Útgjöld ríkisins aukast um 55 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Innlent 10. september 2024 19:21
Niðurstaðan í máli Helga Magnúsar „á brúninni“ Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja vararíkissaksóknara ekki úr starfi þrátt fyrir hegðun hans var á „brúninni“ að mati sérfræðings í vinnurétti. Ómögulegt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunni fyrir opinbera starfsmenn almennt. Innlent 10. september 2024 19:02
Bein útsending: Krefjast aðgerða fyrir heimilin strax Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli klukkan 16. Á sama tíma hefst fyrsti þingfundur vetrarins. Streymt verður frá mótmælunum á Vísi. Innlent 10. september 2024 15:35
„Litla þjóð sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast“ Setning þingsins var að þessu sinni söguleg. Guðrún Karls Helgudóttir tók við embætti biskups Íslands nýverið og kom að hinni kirkjulegu athöfn. Og Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti landsins, ávarpaði þingið fyrsta sinni og kom hún víða við í ræðu sinni. Innlent 10. september 2024 14:53
Halla valdi drapplitað fyrir þingsetninguna Halla Tómasdóttir forseti Íslands setti Alþingi í fyrsta sinn í dag. Mikil tilhlökkun ríkir gjarnan yfir klæðaburði embættismanna á þessum degi og valdi Halla að versla við Frú Hrafnhildi fyrir tilefnið. Tíska og hönnun 10. september 2024 14:22
Sigmundur veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta „Ég er búinn að vera í þessum bransa í 15 ár og mér er til efs að ég hafi nokkru sinni séð eins gott fjárlagafrumvarp, það nálgast það að geta heitið fullkomið,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, inntur eftir viðbrögðum við nýju fjárlagafrumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í morgun. Innlent 10. september 2024 13:29
Svona var setning Alþingis með nýjum forseta og biskup Setningarathöfn Alþingis hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Innlent 10. september 2024 12:49
Sjö ára kláðinn: Engin vandamál, bara lausnir Þing verður sett að nýju í dag að afloknu hefðbundu sumarhléi. Skoðun 10. september 2024 12:33
Viðbúinn átökum á Alþingi í vetur Það er viðbúið að átakavetur sé framundan í stjórnmálum að sögn forseta Alþingis, sem vonar þó að þingstörf fari fram með skikkanlegum hætti. Síðasti þingvetur fyrir alþingiskosningar hefst í dag þegar þing verður sett síðdegis. Yfir tvö hundruð mál eru á þingmálaskrá. Innlent 10. september 2024 12:17
Ríkisstjórn í megrun en borðar jafn mikið og hreyfir sig ekkert Ríkisstjórnin axlar enga ábyrgð á verðbólgunni að mati formanns flokks Fólksins sem gefur nýju fjárlagafrumvarpi falleinkunn. Þingmaður Viðreisnar segir ráðherra í engum takti við raunveruleikann. Innlent 10. september 2024 12:08
Stéttaskipt tjáningarfrelsi Í gær, mánudaginn 9. september sl. kom niðurstaða dómsmálaráðherra í máli vararíkissaksóknara, Helga Magnúsar Gunnarssonar. Vararíkissaksóknari eins og flest vita var áminntur og sendur í leyfi fyrir ítrekaða orðræðu, deilingar og „like“ á samfélagsmiðlum. Skoðun 10. september 2024 12:03
Fjármálaráðherra segir engar kollsteypur í fjárlagafrumvarpinu Útgjöld ríkissjóðs halda áfram að aukast að raungildi á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í morgun. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við markmið Seðlabankans um hjöðun verðbólgu og lækkun vaxta. Innlent 10. september 2024 11:45
Segir þrásetu ríkisstjórnarinnar stórskaðlega Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sér fátt eitt jákvætt í nýju fjárlagafrumvarpi. Þráseta ríkisstjórnarinnar sé þegar farna að valda verulegum skaða í efnahagsmálum. Innlent 10. september 2024 11:37
Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári. Neytendur 10. september 2024 10:32
Þrettán nýjar heimildir ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra fær ýmsar nýjar heimildir verði fjárlagafrumvarp hans samþykkt á Alþingi eins og reikna má fastlega með. Þar má meðal annars finna leyfi til að vinna með losunarheimildir, selja fasteignir í sveitum, kaupa húsnæði fyrir Rannsóknarnefnd samgönguslysa og stofnun sjóðs um verk Jóns Leifs. Innlent 10. september 2024 10:12
Dómsmálaráðherra hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir þungu fargi létt af sér eftir að dómsmálaráðherra tilkynnti að hann yrði ekki leystur frá störfum. Hann segist þó ekki ánægður með rökstuðning dómsmálaráðherra og að hún hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu. Ríkissaksóknari segir ekki unnt að upplýsa um næstu skref að svo stöddu. Innlent 10. september 2024 09:36
Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs Gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs dragist saman um sextán milljarða króna á milli ára og nemi 41 milljarði króna árið 2025 samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þar er boðað aðhald til þess að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Viðskipti innlent 10. september 2024 09:31
Svona var kynning Sigurðar Inga á fjárlagafrumvarpinu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra boðar til fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 09 í dag. Á fundinum kynnir ráðherra fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025. Innlent 10. september 2024 08:31
Gætu þurft að taka fram fyrir hendur Seðlabankans Stjórnvöld verða að grípa inn í, hafi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki hug á því að lækka vexti í bráð. Þetta segir þingmaður Flokks fólksins sem hvetur fólkið til þess að mótmæla við þingsetningu á morgun. Innlent 9. september 2024 23:17
Segja að ekkert muni breytast nema fólkið sýni samstöðu Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. Innlent 9. september 2024 20:02
„Þetta er auðvitað bara einhver bull nálgun“ „Við þurfum að vera með kerfi hér sem að tryggir að við sköpum sem mest verðmæti fyrir þjóðarbúið sem heild. Ef það gerist þannig að hér eru sjávarútvegsfyrirtæki sem að geta með hagnaði sínum fjárfest í öðrum atvinnugreinum. Ég bara lít ekki á það sem vandamál því ég lít á þetta sem hvern annan atvinnurekstur. Innlent 9. september 2024 17:44
Geta haldið bæjum á Reykjanesi frostfríum með nýfundnum jarðhita Jarðhitaleit á Reykjanesi sem var flýtt vegna hættunnar á að eldhræringarnar þar yllu heitavatnsleysi hefur borið árangur umfram væntingar. Þrjár rannsóknarborholur eru sagðar nýtanlegar hver með sínum hætti. Innlent 9. september 2024 16:03
Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu. Innlent 9. september 2024 15:39
Bein útsending: Hættunni á heitavatnslausum Suðurnesjum afstýrt Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, kynna í dag árangur af sérstakri jarðhitaleit á Reykjanesi. Innlent 9. september 2024 15:25
Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp Öllu starfsfólki hótelsins Northern Light Inn var sagt upp síðustu mánaðamót eða alls 25 manns. Friðrik Einarsson eigandi hótelsins kallar eftir því að rekstrarstyrkir stjórnvalda til fyrirtækja í Grindavík verði endurskoðaðir. Hann geti aðeins greitt laun með því að hafa hótelið lokað. Á meðan það er lokað verði bókunarstaða áfram léleg. Viðskipti innlent 9. september 2024 14:48
Auðlegðarskattur hefði skilað 37 milljörðum í fyrra Auðlegðarskattur, eins og sá sem lagður var á í nokkur ár eftir efnahagshrunið árið 2008, hefði skilað ríkissjóði rétt tæplega 37 milljörðum króna í kassann í fyrra. Innlent 9. september 2024 14:10