
EM 2020 í fótbolta

Einn af hápunktum ferilsins að bera fyrirliðabandið á stórmóti
Gareth Bale mun bera fyrirliðabandið þegar Wales mætir Sviss í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í dag. Bale segir það að leiða landið út á völlinn á Evrópumóti verði einn á hápunktum ferilsins.

Svona myndi Mourinho stilla upp enska landsliðinu
Jose Mourinho, stjóri Roma, mun starfa sem spekingur hjá talkSPORT á meðan Evrópumótið í fótbolta stendur yfir í sumar.

EM í dag: „Öskruðu Tyrkina í kaf“
Freyr Alexandersson, fyrrum landsliðsþjálfari, hrósaði ítalska landsliðinu en hreifst ekki af því tyrkneska eftir opnunarleikinn á EM.

Sjáðu mörkin úr sögulegum opnunarleik
Ítalir byrja heldur betur Evrópumótið af krafti en þeir eru komnir með þrjú stig eftir 3-0 sigur á Tyrkjum í kvöld.

Ítalir rúlluðu yfir Tyrki
Ítalir byrja Evrópumótið af krafti en þeir unnu 3-0 sigur á Tyrkjum í opnunarleiknum á 16. Evrópumótinu í fótbolta karla. Spilað var í Róm.

Ítalir hafa ekki tapað landsleik í 33 mánuði og byrja EM á heimavelli í kvöld
Það verður svakaleg sigurganga undir í kvöld þegar opnunarleikur Evrópumótsins fer fram á Ólympíuleikvanginum í Rómarborg.

„Alltaf megastress að spila þessa leiki“
Á meðan að sjálfir leikdagar Íslands á EM í Frakklandi 2016 voru eiginlega þægilegustu dagarnir fyrir þjálfarann Heimi Hallgrímsson þá segir Kári Árnason því alltaf fylgja „megastress“ að eiga fyrir höndum leik við stórþjóð.

Adda valdi hanskalausan markvörð frá Portúgal besta mómentið sitt frá EM
EM í dag fékk gesti sína til að velja sín eftirminnilegustu móment frá sögu Evrópumótsins og þau komu úr ýmsum áttum. Ein af þeim sem valdi sitt uppáhaldsmóment var knattspyrnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir eða Adda eins og flestir þekkja hana.

Ólafur Kristjáns: Ég er orðinn svolítið skotinn í Ítölunum
Ólafur Kristjánsson leyfði sér aðeins að skjóta á Frey Alexandersson þegar hann valdi liðið sem hann trúir að fari alla leið á Evrópumótinu í knattspyrnu sem hefst í kvöld.

EM byrjar í dag: Svona verður EM undir leiðsögn Gumma Ben, Helenu og allra hinna sérfræðinganna
Vísir hefur undanfarin mánuð verið að telja niður í Evrópumótið í knattspyrnu en nú er komið að þessu. Opnunarleikur Ítala og Tyrkja fer fram á Ólympíuleikvanginum í Róm í kvöld.

Heimir Hallgríms fékk afmælisköku í beinni í EM í dag þættinum
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var einn af gestunum í EM-þætti Guðmundar Benediktssonar og Helenu Ólafsdóttur í gærkvöldi.

Besta frammistaða leikmanna í sögu EM
Sextánda Evrópumótið í fótbolta karla hefst í dag með leik Ítalíu og Tyrklands á Ólympíuleikvanginum í Róm. Í tilefni af því að EM er að fara af stað valdi Vísir bestu frammistöðu leikmanna á einstökum mótum í sögu keppninnar.

Forseti Frakklands vill að N'Golo Kante fá Gullknöttinn
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur bæst í hóp þeirra sem tala fyrir því að franski miðjumaðurinn N'Golo Kante vinni Gullknöttinn, Ballon d'Or, fyrir þetta ár.

Birkir, Rooney og Pirlo költhetjur EM: „Líkt og drukkinn frændi í brúðkaupi“
Birkir Már Sævarsson er í hópi ellefu mestu „költhetja“ í sögu Evrópumótsins í fótbolta. Það er að minnsta kosti mat tímaritsins Four Four Two.

Hörð keppni um gullskóinn á EM
Harry Kane, Romelu Lukaku og Kylian Mbappé eru efstir á blaði hjá veðbönkum yfir þá sem eru taldir líklegastir til að vinna gullskóinn á Evrópumótinu í fótbolta.

Maguire gæti verið með á EM eftir allt saman
Harry Maguire, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins, hefur hafið æfingar með enska landsliðinu og gæti náð Evrópumótinu í knattspyrnu eftir allt saman.

Úkraína þarf að breyta treyjunni fyrir EM
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur skikkað Úkraínu til að breyta treyju sinni áður en Evrópumótið í knattspyrnu hefst á morgun. Ástæðan eru kvartanir Rússa yfir slagorðum og útlínum sem tákna Úkraínu á treyjunni.

Hinn „smitaði“ Llorente ekki með kórónuveiruna eftir allt saman
Spænski landsliðsmaðurinn Diego Llorente fékk neikvæða niðurstöðu úr nýjasta kórónuveiruprófi sínu en það hafði áður komið fram að hann væri með Covid-19.

Tíu minna þekktar reglur EM: Vító í riðlakeppni, verða að muna eftir vegabréfi og 40 gullverðlaun
Flestir ættu að vita að á EM í fótbolta spila 24 lið, í sex riðlum. Sextán þeirra komast áfram í útsláttarkeppnina og eitt lið stendur að lokum uppi sem Evrópumeistari.

1 dagur í EM: Frakkar unnu EM síðast þegar þær mættu sem heimsmeistarar
Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst á morgun 11. júní. Frakkar mæta á EM sem ríkjandi heimsmeistarar og það boðar gott fyrir þá.

Herinn mun bólusetja spænsku landsliðsmennina fyrir EM
Leikmenn spænska knattspyrnulandsliðsins munu allir fá bólusetningu fyrir Evrópumótið en tveir leikmenn hafa þegar fengið kórónuveiruna á síðustu dögum.

Belgar og Englendingar líklegastir til að vinna EM
Lið Danmerkur er eitt af sex liðum sem yfir 90% líkur eru á að komist áfram í útsláttarkeppnina á Evrópumótinu í fótbolta sem hefst á morgun.

Liðin sem gætu komið á óvart á EM
Evrópumótið 2020 hefst á morgun með leik Ítalíu og Tyrklands á Ólympíuleikvanginum í Róm. Vísir fer yfir liðin sem gætu komið á óvart á mótinu.

Borðaði kebab þremur tímum fyrir bikarleik
Roy Keane og Micah Richards hituðu upp fyrir Evrópumótið 2020 í þættinum Micah & Roy's Road to Wembley sem er sýndur á Sky sjónvarpsstöðinni þar sem þeir eru báðir spekingar.

Ronaldo og Fernandes á meðal markaskorara í síðasta prófinu fyrir EM
Portúgal vann 4-0 sigur á Ísrael í síðasta leiknum fyrir Evrópumótið sem hefst um helgina.

Mætti í partí og er nú með kórónuveiruna fimm dögum fyrir EM
Dejan Kulusevski greindist með kórónuveiruna fyrr í vikunni og nú hafa birst myndbönd sem sýnir landsliðsmanninn í teiti í Svíþjóð.

Geta ekki leigt allt hótelið og banna sjálfsmyndir
Kasper Hjulmand, þjálfari danska landsliðsins, segir að það gildi strangar reglur á Marienlyst strandhótelinu sem danska liðið dvelur á er EM fer fram í sumar.

Liverpool sagt búið að bjóða í fyrirliða Roma
Ítalskur landsliðsmaður gæti verið á leiðinni á Anfield í sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu.

Betra fyrir Englendinga að vinna ekki riðilinn sinn eins og á HM 2018
Það versta sem gæti gerst fyrir Englendinga á EM væri að vinna riðilinn sinn. Þá mæta þeir liði úr dauðariðli mótsins.

Ekkert sem bendir til þess að veiran opni leið fyrir Ísland á EM
Þó að kórónuveirusmit séu farin að valda þátttökuþjóðum á EM í fótbolta vandræðum er ekkert sem bendir til þess að Íslandi verði boðin þátttaka á mótinu sem fyrstu varaþjóð.