
Golden Globe-verðlaunin

Poppdrottning snýr aftur
Madonna er mætt til leiks enn á ný með sína tólftu hljóðversplötu. Hún er sú fyrsta á ferli hennar sem kemur ekki út hjá Warner.

Nicole Kidman og fjölskyldan
Leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Keith Urban, leiddu þriggja ára dóttur þeirra Sunday á flugvellinum í Sydney í Ástralíu...

Mikil spenna fyrir Óskarnum
Afhending Óskarsverðlaunanna fer fram í kvöld, en það eru ævintýramyndin Hugo og þögla myndin The Artist sem tilnefndar eru í flestum flokkum.

The Artist talin sigurstranglegust
Kvikmyndin The Artist er talin sigurstranglegust á Óskarsverðlaunahátíðinni, sem haldin verður í 84. skipti næstkomandi sunnudag í Kodak Theatre í Hollywood.

Mildred Pierce hlaut alls 21 Emmy tilnefningar
Þáttaröðin Mildred Pierce hefur göngu sína á Stöð 2 í mars en óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet hlaut bæði Emmy og Golden Globe verðlaunin fyrir frammistöðu sína í titilhlutverkinu í þessari mögnuðu þáttaröð.

Pönkast í bransanum á Eddunni
„Þetta á eftir að vera skemmtilegt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson.

Besti nýi gamanþáttur vetrarins er á Stöð 2
Þættirnir voru tilnefndir til Golden Globe verðlauna sem besti gamanþátturinn og Zooey Deschanel var einnig tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki.

House hættir göngu sinni
Bandarísku sjónvarpsþættirnir House ljúka göngu sinni í Bandaríkjunum í apríl þegar sýningum lýkur á áttundu þáttaröðinni. Framleiðendurnir, þar á meðal aðalleikarinn Hugh Laurie, sögðu að ákvörðunin hefði verið sársaukafull en tími væri kominn að binda enda á þættina.

Hrífandi ævintýri um Hugo
Dramatísku ævintýramyndinni um munaðarlausa drenginn Hugo hefur verið vel tekið vestanhafs en hún hlaut flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna á dögunum. Myndin verður frumsýnd hér á landi á morgun.

Ævintýramyndin Hugo með ellefu tilnefningar
Þrívíddarmyndin Hugo fékk ellefu tilnefningar til Óskarsverðlaunanna. Meryl Streep fékk sína sautjándu tilnefningu.

Kvikmynd Martin Scorsese með 11 tilnefningar
Ævintýramynd leikstjórans Martin Scorsese, Hugo, hefur verið tilnefnd til 11 Óskarsverðlauna. Kvikmyndin hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og hefur Scorsese lýst henni sem óður til kvikmyndagerðarinnar.

Clooney gerði mistök þegar enginn tók eftir því
George Clooney er ánægður með að hafa gert flest sín mistök þegar hann var yngri. „Ég hef gert nokkur mistök í gegnum tíðina og tekið heimskulegar ákvarðanir, flestar í byrjun ferilsins. Sem betur fer gat ég gert þessi mistök snemma á ferlinum þegar enginn tók eftir því,“ sagði leikarinn við The Daily Telegraph.

Enginn hringur
Kjóllinn sem Jessica Biel klæddist á Golden Globe-verðlaunahátíðinni síðastliðið sunnudagskvöld vakti mikla athygli vestanhafs.

Dreymir um Ledger
Leikkonan Michelle Williams sagði í viðtali við tímaritið GQ að of erfitt væri að svara spurningu blaðamanns um hvort hún ímyndaði sér einhvern tímann ef hún gæti byrjað aftur með hinum sáluga Heath Ledger. Þau eiga saman dótturina Matilda en hættu saman eftir að hún fæddist.

Þá er þetta samband farið í vaskinn
Leikarinn Johnny Depp og unnusta hans, franska leikkonan Vanessa Paradis, eru hætt saman ef marka má People tímaritið...

Stelpan er greinilega ástfangin
Ekki nóg með að breska leikkonan Kate Winslet, 36 ára, hafi fengið Golden Globe styttu fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunni Mildred Pierce um helgina heldur er ástfangin upp fyrir haus. Meðfylgjandi má sjá skælbrosandi Kate og unnusta hennar, Ned Rocknroll, leiðast á LAX flugvellinum.

Jolie fékk sér sveittan hamborgara
Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var nánast eins og vaxstytta á Golden Globe verðlaunahátíðinni klædd í Atelier Versace kjól sem fór henni vel en burtséð frá glamúrnum kom leikkonan við á skyndibitastaðnum In-N-Out burger í Hollywood...

Þættir Stöðvar 2 sigursælir á Golden Globe
Þættir Stöðvar 2 hlutu 8 af 11 sjónvarpsverðlaunum sem veitt voru á Golden Globe verðlaunahátíðinni á sunnudag. Modern Family var valinn besti gamanþátturinn og Homeland besti dramatíski þátturinn.

Rektu lýtalækninn núna
Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum eftir Golden Globe verðlaunaafhendinguna sem fram fór á sunnudagskvöld klædd í Prada síðkjól...

Kúl hárgreiðsla Cameron
Leikkonan Cameron Diaz, 39 ára, var glæsileg með glænýja hárgreiðslu klædd í bláan Monique Lhuillier kjól á Golden Globe verðlaunahátíðinni um helgina...

Ánægður með Gervais
Paul Telegdy, forstjóri sjónvarpsstöðvarinnar NBC, er mjög ánægður með frammistöðu grínistans Rickys Gervais sem kynnis á Golden Globe-verðlaununum.

Glæsileiki á Golden Globe
Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram með pompi og pragt á sunnudaginn í Los Angeles. Fræga fólkið gekk varlega niður rauða dregilinn enda í sviðsljósinu og ekki gott að stíga feilspor, sérstaklega ekki í fatavali. Kjólarnir sem sáust á hátíðinni voru flestir fallegir og var hið svokallaða „hafmeyjusnið“ áberandi.

Bað áhorfendur um að "googla" lítt þekktan Breta
Leikarinn Peter Dinklage lauk þakkarræðu sinni á Golden Globe-hátíðinni í gær með því að biðja áhorfendur um að "googla" mann að nafni Martin Henderson. Fjöldi fólks gerði það og er Henderson nú eitt vinsælasta efnisorðið á samskiptasíðunni Twitter.

Vá hvað þessi kjóll er svakalega fleginn
Fyrirsætan Erin Wasson stal senunni á Golden Globe verðlaunahátíðinni vægast sagt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þar sem örþunnur fleginn kjóllinn hennar huldi ekki stóran hluta líkama hennar...

Sniðgengu Golden Globe glamúrinn
Leikarahjónin Penelope Cruz, 37 ára og Javier Bardem, 42 ára, sem hafa verið gift í 18 mánuði, mættu ekki á Golden Globe verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi...

Þessir kjólar eru sko ekkert slor
Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles í gærkvöldi þar sem þögla svart-hvíta myndin The Artist var sigurvegari kvöldsins eins og lesa má hér. Meðfylgjandi má sjá kjólana sem stjörnurnar klæddust á rauða dreglinum sem voru sko ekkert slor!

Myndin The Artist var sigurvegarinn á Golden Globe hátíðinni
Þögla svarthvíta myndin The Artist var sigurvegari á Golden Globe verðlaunahátíðinni í Los Angels í gærkvöldi.

Adele og kærastinn
Breska söngkonan Adele, 23 ára og unnusti hennar Simon Konecki, 36 ára, yfirgáfu asískan veitingastað í London glóð að sjá. Eins og sjá má á myndunum knúsar parið krúttlegan hund sem varð á vegi þeirra. Adele er tilnefnd til sex Golden Globe verðlauna í ár og þar á meðal plötu ársins.

The Artist besta myndin
The Artist stóð uppi sem sigurvegari hjá samtökum gagnrýnenda í Bandaríkjunum á fimmtudagskvöld. Þessi svarthvíta-kvikmynd þykir líkleg til sigra á Golden Globe-hátíðinni sem haldin verður á sunnudaginn. George Clooney hélt áfram sigurgöngu sinni en hann var valinn besti leikarinn fyrir frammistöðu sína í The Descendants.

Stjörnur skjálfa á beinunum vegna Golden Globe
Golden Globe-verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á sunnudagskvöld. Kynnirinn Ricky Gervais hefur lofað því að hann muni ekki draga neitt undan í upphafsatriði afhendingarinnar.