Fjölmiðlar

BBC sýnir hvernig það rannsakaði ógeðfellt myndband af hermönnum myrða konur og börn
Í röð tísta hefur BBC sýnt og útskýrt í smáatriðum hvernig það rannsakaði ógeðfellt myndband, þar sem sjá má hermenn í Kamerún myrða konur og börn.

Breskir fjölmiðlar slá upp „yfirvofandi risagosi“ í Kötlu án mikillar innistæðu
Fjölmiðlar í Bretlandi keppast nú við að vara við því að eldfjallið Katla geti gosið á hverri stundu með tilheyrandi áhrifum á flugumferð í Evrópu. Eldfjallafræðingur gagnrýnir greinina sem umfjöllun bresku fjölmiðlanna er byggð á.

Comcast yfirbauð Fox í baráttunni hatrömmu um Sky
Bandaríski fjölvarpsrisinn Comcast mun kaupa 61 prósenta hlut í breska sjónvarpsfyrirtækinu Sky eftir að Comcast yfirbauð 21 Century Fox á uppboði breskra samkeppnisyfirvalda á hlutunum. Félögin hafa barist um hlutina sem nú voru á uppboði það sem af er ári.

Landsmenn sækja helst fréttir á vefsíðum fréttamiðla
Einungis fjögur prósent segjast helst sækja fréttir í dagblöð samkvæmt könnun MMR.

184 milljónir í fréttamyndver Ríkisútvarpsins
Áætlaður kostnaður við nýtt fréttamyndver Ríkisútvarpsins er 184 milljónir króna. Nýja myndverið í Efstaleiti verður tekið í notkun í kvöld. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær.

Halldór segist hafa verið að grínast
Kann Davíð Oddssyni litlar þakkir fyrir að vekja athygli á gríni sem fór ofan garðs og neðan.

Vilja að Íslendingar í útlöndum geti horft á allt efni RÚV
Nái þingsályktunartillaga Miðflokksins fram að ganga gætu þeir sem greiða skatta á Íslandi náð útsendingum Ríkisútvarpsins þegar þeir eru á ferðalagi í útlöndum.

Ingibjörg og Jón Ásgeir kanna áhuga kaupenda á Fréttablaðinu
Þurfa annaðhvort að selja hlut sinn í Sýn eða Fréttablaðinu.

Segir það ekki fara Guðmundi vel að umgangast sannleikann, lög og reglur með réttum hætti
Formaður stjórnar útgáfufélags Fréttablaðsins segir Guðmund Kristjánsson gera lítið úr öllum blaðamönnum og ritstjórum Fréttablaðsins með orðum sínum.

Hættir í The Talk í skugga ásakana á hendur eiginmanninum
Tólf konur hafa stigið fram með ásakanir á hendur Les Moonves, fyrrverandi forstjóra CBS.

DR fækkar starfsfólki, sjónvarps- og útvarpsstöðvum
Niðurskurðartillögur DR voru kynntar í morgun en með tillögunum er vonast til að hægt verði hægt að spara 420 milljónir danskra króna á næstu þremur árum.

Ólafur Már og Tómas hlutu fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins
Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hlutu í dag fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sveinn Runólfsson fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Stjórnvöld ættu að styðja rannsóknarblaðamenn beint
Formaður blaðamannafélagsins segir að stjórnvöld ættu að styrkja rannsóknarblaðamenn með beinum hætti, ekki bara fyrirtæki sem reka fjölmiðla. Hann fagnar því að stigið sé skref í þá átt að auðvelda rekstur einkarekinna fjölmiðla.

„Rétti tíminn til að breyta til“
Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason er á forsíðu Glamour sem kemur í búðir í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður prýðir forsíðu blaðsins en þetta er síðasta blað ritstjórans, Álfrúnar Pálsdóttur.

Elmar sagði upp hjá Fréttablaðinu
Þetta hafa verið frábærir tímar og skemmtileg ævintýri. En nú er tími til að leita á ný mið, segir Elmar Hallgríms Hallgrímsson.

Stefna að því að bæta RÚV upp tekjutapið
Endurgreiða á hluta ritstjórnarkostnaðar einkarekinna fjölmiðla og minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði um 560 milljónir á ári samkvæmt tillögum mennta- og menningarmálaráðherra.

Aðalframleiðandi 60 mínútna rekinn vegna harðorðra smáskilaboða
Rannsókn vegna óviðeigandi og kynferðislegrar hegðunar Jeff Fager í garð kvenna sem starfa hjá CBS var til rannsóknar en sjálfur segir hann að brottreksturinn sé rannsókninni ótengdur.

Stjórnarmanni RÚV blöskrar tillögur ráðherra
Mörður Árnason, stjórnarmaður RÚV, telur að stjórn RÚV þurfi að koma saman sem allra fyrst til þess að fjalla um tillögur menntamálaráðherra sem kynntar voru í dag. Hann segir vinnubrögð ráðherra vera "skrýtin“

Ráðherra ætlar að setja 400 milljónir í einkarekna fjölmiðla
Þá eiga umsvif RÚV á auglýsingamarkaði að minnka og samræma gjaldtöku við kaup á auglýsingum svo íslenskir miðlar standi jafnfætis þeim erlendu.

Lilja kynnir stuðning við einkarekna fjölmiðla og íslensku
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kynnir aðgerðir stjórnvalda sem miða að því að styrkja íslenska tungu á blaðamannafundi í Veröld - húsi Vigdísar, á morgun kl. 14.

Bjarkey telur fjölmiðla ala á úlfúð í garð þingmanna
Ummæli þingflokksformanns Vinstri grænna vekja furðu.

Les Moonves hættur hjá CBS eftir fleiri ásakanir um kynferðisbrot
Alls sökuðu tólf konur Monnves um kynferðisbrot. Meðal ásakana er að hann hafi þvingað minnst eina til munnmaka og að hafa bæði kysst þær og snert án samþykkis.

Kristjana hitti Edge í París
Íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir á RÚV hitti fyrir gítarleikara hljómsveitarinnar U2 í París í kvöld.

Skrautlegur ferill umdeildrar tálbeitu
Jóhannes Gísli hefur vakið mikla athygli að undanförnu vegna umdeildra tælingaraðferða sinna á samfélagsmiðlum.

Atli Fannar selur og hættir með Nútímann
Atli Fannar Bjarkason, stofnandi og ritstjóri vefmiðilsins Nútímans, hefur rekið fjölmiðilinn í fjögur ár.

Fjallganga í hægvarpi
Norska ríkisútvarpið (NRK) heldur áfram að feta nýjar slóðir í hinu svokallaða hægvarpi.

Sigurður Nordal hættur á Morgunblaðinu
Stefán Einar Stefánsson tekur við sem fréttastjóri viðskipta í Hádegismóum.

Sagt upp á Mogganum eftir fjörutíu ára starf
Skapti Hallgrímsson mölbraut olnbogann á mánudag og missti vinnuna í gær.

Vín kneyfað og veipað í unglingaþætti RÚV
Dagskrárstjóri segir að mistök hafi átt sér stað þegar þáttarstjórnandi sást reykja í þættinum Rabbabara á RÚV núll. Í sama þætti sést viðmælandinn drekka áfengi sem RÚV segir að illmögulegt hafi verið að komast hjá að sýna.

Hundruð milljóna króna tap á rekstri Morgunblaðsins
Eigandi útgáfufélags Morgunblaðsins, Þórsmörk ehf., tapaði um 267 milljónum króna á síðasta ári.