Þýskaland
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 39 ›
Stressaður Íslendingur gripinn með mikið magn fíkniefna í Þýskalandi 39 ára íslenskur karlmaður var handtekinn í bænum Schüttorf í Þýskalandi þann 25.febrúar síðastliðinn. Reyndist hann vera tæp átta kíló af fljótandi amfetamíni í fórum sínum. Innlent 4.4.2023 08:01
Til Þýskalands í sinni fyrstu opinberu heimsókn erlendis sem konungur Karl III Bretakonungur mun funda með helstu leiðtogum Þýskalands og ávarpa þýska þingið í sinni fyrstu opinberu heimsókn sem konungur til erlends ríkis sem hefst í dag. Erlent 29.3.2023 08:29
Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka. Erlent 27.3.2023 15:36
Samgöngustarfsmenn í allsherjarverkfall vegna verðbólgunnar Þjóðverjar búa sig undir verulegar raskanir á samgöngum í dag þegar starfsmenn almenningssamgangna leggja niður störf í 24 klukkustundir til að krefjast hærri launa vegna hækkandi verðbólgu. Erlent 27.3.2023 08:40
Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. Erlent 26.3.2023 14:30
ESB lætur undan Þjóðverjum með bann við bensín- og dísilbílum Evrópusambandið og Þýskaland hafa náð samkomulagi um framtíð jarðefnaeldsneytisbíla í Evrópu. Þjóðverjar fá í gegn að undantekningar verði á banni við sölu á nýjum bensín- og dísilknúnum bílum eftir árið 2035. Umhverfissamtök fordæma málamiðlunina. Erlent 26.3.2023 07:39
Löng röð myndaðist fyrir utan nýja sýningu RAX í Hamborg Í gær opnaði Ragnar Axelsson, ljósmyndari Vísis, sýninguna Where the World is Melting í Hamborg í Þýskalandi. RAX hefur síðustu áratugi skrásett þær dramatísku breytingar sem orðið hafa á norðurslóðum samhliða hlýnun jarðar og vonast hann til þess að verk hans opni augu sýningargesta. Menning 17.3.2023 08:01
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. Erlent 17.3.2023 07:58
Játa að hafa orðið tólf ára stúlkunni að bana Tvær stúlkur, tólf og þrettán ára gamlar, játuðu að hafa orðið annarri tólf ára stúlku að bana í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Tilkynnt var um hvarf stúlkunnar síðastliðinn laugardag og fannst hún svo látin síðdegis daginn eftir. Erlent 14.3.2023 17:14
Tólf og þrettán ára grunaðar um að hafa myrt jafnöldru sína Síðastliðinn laugardag hvarf tólf ára gömul stúlka í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Stúlkan fannst látin daginn eftir en talið er að hún hafi verið myrt. Tvær jafnöldrur stúlkunnar eru grunaðar um morðið. Erlent 14.3.2023 13:17
Byssumaðurinn sagði skilið við söfnuðinn í illu Karlmaður á fertugsaldri sem skaut sex manns og ófætt barn til bana í ríkissal votta Jehóva í Hamborg í gærkvöldi sagði skilið við söfnuðinn í illu fyrir einu og hálfu ári, að sögn þýska yfirvalda. Lögregla ræddi við manninn í janúar þegar henni barst ábending um að hann hefði sýnt reiði í garð trúaðra. Erlent 10.3.2023 14:23
Morðinginn talinn á meðal átta látinna í ríkissal votta Átta eru sagðir látnir eftir að maður hóf skothríð í ríkissal votta Jehóva í Hamborg í Þýskalandi, þeirra á meðal byssumaðurinn sjálfur. Lögregla rannsakar enn tilefni árásarinnar en telur að byssumaðurinn hafi verið einn að verki. Erlent 10.3.2023 09:07
„Blóðbað“ í ríkissal Votta í Hamborg Minnst sjö eru sagðir látnir og átta særðir eftir skotárás í Hamborg í kvöld. Árásin var gerð í ríkissal Votta Jehóva í borginni, samkvæmt fjölmiðlum í Þýskalandi. Erlent 9.3.2023 21:59
Gruna hóp tengdan Úkraínu um Nord Stream árásina Yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja hóp manna sem tengjast Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasaltshafi. Leiðslurnar sem lágu frá Rússlandi til Þýskalandi eyðilögðust í sprengingu í fyrra. Erlent 7.3.2023 20:01
Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka. Erlent 1.3.2023 15:00
Ása keppir í Biggest Loser í Þýskalandi: „Svona ferðalag er ekki dans á rósum“ Ný þáttaröð Biggest Loser er sýnd um þessar mundir í Þýskalandi. Þar er hin íslenska Ása Ástardóttir meðal keppenda en hún hefur strax náð að vekja mikla athygli í fyrstu þremur þáttunum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ása tekur þátt í raunveruleikaþætti úti í Þýskalandi. Lífið 28.2.2023 11:21
Þorvaldur Davíð tók við viðurkenningu í Berlín Þorvaldur Davíð Kristjánsson tók í gær við viðurkenningu á Berlinale kvikmyndahátíðinni. Leikarinn er einn af tíu sem valinn var í Shooting Stars hópinn í ár. Samtökin European Film Promotion (EFP) velja á hverju ári tíu unga og efnilega leikara og leikkonur í hópinn. Lífið 21.2.2023 10:36
Röskun á ferðum um 300 þúsund manns vegna verkfalla Sólarhringsverkfall þúsunda starfsmanna á sjö þýskum flugvöllum hefur áhrif á ferðir hundruð þúsunda ferðamanna í dag. Búið er að aflýsa þúsundum flugferða víða um Þýskaland. Erlent 17.2.2023 07:54
Gagnrýndi aðra bakhjarla fyrir hægagang með skriðdreka Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi aðra bakhjarla Úkraínu á fundi í Brussel í gær. Gagnrýnin sneri að því að þeir hefðu um margra vikna skeið þrýst á Þjóðverja um að heimila sendingar Leopard skriðdreka til Úkraínu og í kjölfarið væru þeir sjálfir með hægagang varðandi hergagnaflutninga. Erlent 15.2.2023 14:23
Grunuð um að hafa myrt tvífara sinn Lögreglunni í þýsku borginni Ingolstadt var þann 16. ágúst í fyrra tilkynnt um hvarf 23 ára gamallar þýsk-írakskrar konu sem starfar sem áhrifavaldur. Stuttu síðar fannst bíll hennar í Ingolstadt. Í bílnum var lík konu með afmyndað andlit sem hafði verið stungin ítrekað. Foreldrar þýsk-íröksku konunnar töldu að um lík dóttur sinnar væri að ræða. Erlent 1.2.2023 17:07
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Árásarmaðurinn ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður sem stakk tvo til bana í lest í Norður-Þýskalandi í gær er ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum. Maðurinn særði að minnsta kosti fimm til viðbótar, þar af eru tveir taldir í lífshættu. Erlent 26.1.2023 22:44
Annar Þjóðverji handtekinn vegna njósna fyrir Rússa Lögreglan í Þýskalandi handtók á sunnudaginn annan mann vegna umfangsmikils og vandræðalegs njósnamáls. Í desember var starfsmaður BND, leyniþjónustu Þýskalands, handtekinn og er sá grunaður um að hafa njósnað fyrir Rússa. Erlent 26.1.2023 16:38
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. Erlent 25.1.2023 19:21
Skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sinn tíma Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sér tíma í að ákveða að senda Úkraínumönnum þungavopn. Innlent 25.1.2023 16:42
Tveir látnir eftir stunguárás um borð í lest í Þýskalandi Tveir eru látnir og að minnsta kosti fimm særðir eftir stunguárás í lest nærri bænum Brokstedt í Þýskalandi. Erlent 25.1.2023 16:06
Beint streymi frá fundi Katrínar og Olaf Scholz Olaf Scholz kanslari Þýskalands tilkynnti fyrr í dag að Þjóðverjar ætluðu að útvega Úkraínumönnum Leopard skriðdreka og heimila öðrum þjóðum að gera það einnig. Innlent 25.1.2023 14:46
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. Erlent 25.1.2023 10:50
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. Erlent 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. Erlent 24.1.2023 16:52