
Spánn

Sturluðust allir úr gleði þegar myndband náðist af Ágústi fara holu í höggi
„Þetta var hreinlega mögnuð tilfinning, ég verð að viðurkenna það. Þetta sló mann alveg og það var lítið sagt í golfbílnum eftir þessa holu, það er smá spennufall sem fylgir þessu,“ segir kylfingurinn Ágúst Freyr Hallsson sem náði því merkilega afreki að fara holu í höggi seint á síðasta ári á 17. holunni á Campoamor á Spáni.

Ráðherra segir fyrirkomulag borgaraþjónustunnar á Spáni ósjálfbært
Utanríkisráðuneytið telur núverandi fyrirkomulag borgaraþjónustu á Spáni ósjálfbært til skemmri og lengri tíma. Áætlaður kostnaður við sendiskrifstofu er um 132 milljónir króna á ári að viðbættum stofnkostnaði fyrsta árið.

Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol
Borgarstjórn í Marbella-borg á Spáni hefur neitað ásökunum um að bráðlega muni fólk vera sektað fyrir að kasta af sér þvagi í sjóinn á vinsælustu ferðamannaströndum Costa del Sol. Strendurnar eru gríðarlega vinsælar meðal Íslendinga.

Enn slasast tugir í ókyrrð
Farþegaþotu sem var á leið frá Madríd á Spáni til Montevideo í Úrúgvæ var lent í Brasilíu í nótt eftir að tugir slösuðust um borð í mikilli ókyrrð.

Leitin að Slater blásin af
Allsherjarleit að breska táningnum Jay Slater, sem hófst í gær, hefur verið blásin af. Hans hefur verið saknað á spænsku eyjunni Tenerife síðan 17. júní.

Efna til allsherjarleitar að Slater
Allsherjarleit að Bretanum Jay Slater, sem hefur verið týndur á Kanaríeyjunni Tenerife í tæpar tvær vikur, fer fram í dag. Sjálfboðaliðar víða af eyjunni hafa verið kallaðir út til að aðstoða við leitina.

Óttast að nettröll tefji rannsókn með samsæriskenningum
Fjölskylda Jay Slater, unga breska mannsins sem er týndur á Tenerife, segja áhugann á máli hans á Internetinu valda þeim miklum kvíða. Þegar sé hvarf hans versta martröð allra foreldra. Þau óttast að hávaðinn á Internetinu geti tafið rannsóknina.

Flytja inn sérhæfða leitarhunda í leitinni að Slater
Enn hefur ekkert spurst til hins nítján ára gamla Jay Slater sem hefur verið týndur í níu daga á ferðamannaeyjunni Tenerife á Kanaríeyjum. Leitarhundar frá Madríd voru fluttir til eyjunnar í dag.

Haldlögðu meira en tvö tonn af grasi og handtóku 42
Yfir 400 lögreglumenn frá Frakklandi, Spáni og Tyrklandi réðust í umfangsmiklar aðgerðir á dögunum og ráku fleyg í starfsemi skipulagðra glæpasamtaka á Spáni. Samtökin stóðu í stórtækum innflutningi á kannabis til vestur-Evrópu og eru einnig grunuð um að flytja heróin inn í Evrópusambandslönd.

Banna skammtímaleigu til túrista í Barcelona
Í Barcelona verður ekki hægt að leigja íbúðir til ferðamanna frá árinu 2028. Borgarstjóri Barcelona Jaume Collboni tilkynnti í gær að fyrir þann tíma myndi borgin afturkalla leyfi um tíu þúsund íbúða til að leigja til skamms tíma. Barcelona er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu og hefur það um langa hríð haft mikil áhrif á húsnæðismarkað í borginni.

Spænska lögreglan vill enga aðstoð frá Bretum við leitina á Tenerife
Þyrlur, leitarhundar og drónar hafa verið notaðir við letina að hinum 19 ára gamla Jay Slater sem saknað hefur verið á Tenerife síðan á mánudag. Spænska lögreglan hefur afþakkað aðstoð frá kollegum sínum á Bretlandi.

Enn ekkert spurst til týnda unga mannsins á Tenerife
Vinir Jay Slater, nítján ára gamals manns sem hefur verið týndur á Tenerife síðan á mánudagsmorgun, hafa beðið bresku og spænsku lögreglurnar um að veita þeim liðsauka í leitinni. Hann var í sínu fyrsta fríi án foreldra sinna þegar hann týndist.

Sinubruni ógnar einum uppáhaldsgolfvelli íslenskra ferðamanna
Stór eldur logar í sinu við á Orihuela Costa á sunnanverðum Spáni. Eldurinn er nokkuð umfangsmikill og logar á milli golfvallanna við Campoamor og Las Ramblas, báðir eru mjög vinsælir meðal íslenskra ferðamanna og golfunnenda og eiga margir Íslendingar sumarhús á svæðinu.

Ástand Íslendingsins sem lenti í nautinu sagt stöðugt
Ástand íslensks karlmanns á fimmtugsaldri, sem særðist í nautahlaupi á Spáni í gær, er sagt stöðugt.

Ungur breskur maður týndur á Tenerife
Ungur breskur maður hefur verið týndur á Tenerife frá því í fyrradag. Maðurinn, Jay Slater, er 19 ára gamall og var í sínu fyrsta fríi án foreldra sinna þegar hann týndist. Móðir mannsins, Debbie Duncan, segist ekkert hafa heyrt frá honum í 48 klukkutíma. Maðurinn var með vinum sínum á Tenerife til að fara á tónlistarhátíðina NRG.

Íslendingur sagður alvarlega særður í nautaatsslysi
Íslenskur maður á fimmtugsaldri særðist á nautaatsviðburði í gær í bænum Jávea nálægt Alicante á Spáni. Við upphaf svokallaðs bous al carrer, þar sem nautum er sleppt á afmörkuðum götum bæja, varð hann fyrir árás eins nautsins og fékk stærðar horn í gegnum lærið.

Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni
Fjárlaganefnd hefur lagt til opnun sendiráðs Íslands á Spáni í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálálaáætlun næstu fimm ár. Hingað til hefur Spánn verið umdæmisland sendiráðsins í París.

Kona forsætisráðherra kölluð til skýrslutöku í spillingarrannsókn
Rannsóknardómari í Madrid hefur boðað eiginkonu Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, til skýrslutöku vegna ásakana um spillingu og að hún hafi notfært sér stöðu sína í viðskiptum. Saksóknarar vildu vísa málinu frá vegna skorts á sönnunargögnum.

„Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“
Röð atburða leiddi til þess að Kolbrún Róbertsdóttir tók stóra og djarfa ákvörðun árið 2012. Hún flutti til Spánar ásamt börnunum sínum þremur, og það eina sem höfðu meðferðis voru fimm ferðatöskur. Kolbrún lét hjartað ráða för og leyfði tækifærunum að koma til sín. Það borgaði sig á endanum; hún opnaði jógastúdíó við suður strönd Spánar.

Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf
Spænska þingið samþykkti umdeild lög sem veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf vegna ólöglegrar þjóðaratkvæðagreiðslu og tilraunar til þess að lýsa yfir sjálfstæði árið 2017. Naumur minnihluti þingheims greiddi atkvæði með frumvarpinu.

Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga
Bæjaryfirvöld í Platja d'Aro við Costa Brava á Spáni hafa ákveðið að banna typpabúninga og kynlífsdúkkur í bænum, sem þau segja fylgifiska steggja- og gæsapartýa.

Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur
Dr. Mads Gilbert, heimsþekktur norskur læknir sem hefur unnið í fleiri áratugi á Gasa, á þá von í brjósti að stjórnvöld á Íslandi og í Noregi taki höndum saman og þrýsti með þýðingarmiklum hætti á stjórnvöld í Ísrael.

Fer fótgangandi tæpa 800 kílómetra
Bárður Jökull Bjarkarson hélt út í byrjun mánaðarins í þeim tilgangi að ganga Jakobsveginn fræga. Hann fer fótgangandi tæpa tæplega 800 kílómetra frá Pamplona alla leið til Fisterra á vesturströnd Spánar.

Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu
Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja.

Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku
Fjórir eru látnir eftir að bygging hrundi á spænsku eyjunni Majorka um klukkan hálf níu að staðartíma. 27 manns eru auk þess slasaðir.

Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan
Utanríkisráðuneytið neyðist til að fresta til föstudags boðaðri utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi forsetakosninga sem átti að fara fram á Gran Canaria á Spáni í dag. Það stafar af því að hluti kjörgagna sem send voru með forgangi á staðinn skiluðu sér ekki á áfangastað.

Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni
Utanríkisráðherra Ísraels hefur ákveðið að kalla ísraelska diplómata í Noregi, Spáni og Írlandi heim til skrafs og ráðagerða eftir að stjórnvöld þar tilkynntu í morgun að þau viðurkenndu sjálfstætt ríki Palestínu.

Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum
Utanríkisráðuneytið harmar það að borið hafi á skorti á kjörseðlum vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Spáni fyrir komandi forsetakosningar á Íslandi. Uppnám varð á kjörfundi á eyjunum Tenerife og Gran Canaria í gær þegar ljóst varð að of fáir kjörseðlar hafi verið á kjörstað.

Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei
Spænska ríkisstjórnin hefur kallað sendiherrann sinn í Búenos Aíres, höfuðborg Argentínu, heim og ítrekað kröfu sína um að Javier Milei, forseti Argentínu, biðjist afsökunar á hegðun sinni. Leiðtogar þjóðanna tveggja hafa eldað grátt silfur undanfarnar vikur í kjölfar ummæla samgönguráðherrans spænska Óscar Puente í garð Milei.

Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju
Stjórnvöld á Spáni hafa neitað skipi um leyfi til að leggja að bryggju þar sem um borð eru vopn á leið til Ísrael. Utanríkisráðherra landsins segir þetta í samræmi við afstöðu Spánar.