
Tryggingar

Starfsmaður eggjabús fær engar skaðabætur eftir hálkuslys
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað TM Tryggingar og eggjabúið Nesbúegg af körfu starfsmanns eggjabúsins um skaðabótaskyldu þeirra vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í hálkuslysi á lóð eggjabúsins í janúar 2020.

Ágúst ráðinn sérfræðingur í forvörnum hjá Verði
Ágúst Mogensen hefur verið ráðinn í nýtt starf sérfræðings í forvörnum hjá tryggingafélaginu Verði.

Tryggingastofnun hafði betur gegn Gráa hernum
Íslenska ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Gráa hersins gegn Tryggingastofnun. Grái herinn hefur þegar ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar og Hæstaréttar ef til þess kemur.

TM seldi tvö þúsund tryggingar í vefsölu á Stafrænum mánudegi
Tryggingafélagið TM, dótturfélag Kviku, seldi tvö þúsund tryggingar og aflaði 600 nýrra viðskiptavina á útsöludeginum Stafrænn mánudagur í lok nóvember. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir að stafrænar lausnir séu snar þáttur í metnaðarfullum áformum um að stórauka hlutdeild félagsins á einstaklingsmarkaði.

Verðmetur Sjóvá 15 prósentum yfir markaðsgengi
Verðmatsgengi Sjóvár, samkvæmt greiningu Jakobsson Capital, er 43,4 krónur á hlut en það er tæplega 15 prósentum yfir markaðsgengi tryggingafélagsins. Þetta kemur fram í nýju verðmati Jakobsson Capital.

Guðmundur frá Arion banka til VÍS
Guðmundur Ólafsson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá VÍS.

Frestur vegna tilkynningar um örorku ekki liðinn og Vörður þarf að greiða bætur
Tryggingafélagið Vörður var í gær dæmt til að greiða dánarbúi manns bætur vegna örorkutryggingar en ágreiningur var um hvenær manninum var ljóst um varanlegar afleiðingar sjúkdóms sem hann greindist með.

Gagnrýnir tilboð TM: „Vátryggingar eru ekki skyndivara“
Neytendastofa er nú með til skoðunar nokkrar tilkynningar vegna tilboðs tryggingafélagsins TM síðastliðinn mánudag. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda segir tilboðið hafa verið á skjön við neytendalög og gagnrýnir tryggingarfélögin fyrir ofurhátt verðlag.

Deila vegna stórbrunans í Skeifunni kemur til kasta Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni tryggingafélagsins VÍS í deilu félagsins og Pennans sem rekja má til stórbrunans í skeifunni þar sem húsnæði sem hýsti verslunina Griffils, í eigu Pennans, brann til kaldra kola.

Fær engar bætur eftir sauðburðarslys á bæ frænku sinnar
Kona, sem slasaðist er kind rakst utan í hana með þeim afleiðingum að hún datt aftur fyrir sig og slasaðist á öxl, fær hvorki bætur úr hönd frænku sinnar né VÍS.

Gerðist ekki sekur um stórkostlegt gáleysi þegar hann fjarlægði eggjastokk án leyfis
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að kvensjúkdómalæknir, sem fjarlægði eggjastokk úr skjólstæðingi án leyfis, hafi ekki gerst brotlegur um stórkostlegt gáleysi. Vegna þessa er Sjúkratryggingum Íslands ekki skylt að greiða sjúklingnum tvær milljónir í miskabætur.

Auglýsingar Sjóvár taldar villandi
Neytendastofa ákvarðaði nýlega að framsetning auglýsinga og markaðsherferðar tryggingafélagsins Sjóvár hafi verið villandi. Auglýstar voru kaskótryggingar fyrir ökutæki.

Lífeyrissjóðirnir öskra á mikla arðsemi á kostnað neytenda og heimila!
Nú liggur fyrir að lífeyrissjóðir eiga 6410 milljarða og þar af eru 4153 milljarðar inní íslensku efnahagskerfi og þessi innlenda eign sjóðanna öskrar á arðsemi og ávöxtun.

FÍB gagnrýnir milljarða arðgreiðslu Sjóvár
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir tryggingarfélagið Sjóvá í grein sem birt var á vefsíðu félagsins í gær. Framkvæmdastjóri FÍB segir ljóst að gríðarlegur hagnaður tryggingafélagsins sé ekki að skila sér til viðskiptavina.

Fær bætur eftir að hafa stigið ofan í niðurfall
Fyrirtækið Geymsla Eitt hefur verið dæmt skaðabótaskylt vegna líkamstjóns sem kona hlaut þegar hún steig með fót sinn ofan í opið niðurfall. Við slysið meiddist konan á vinstri öxl.

190 ástæður fyrir árangrinum segir forstjórinn og nýkrýndur afi
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er í því átaki sem margir þekkja að reyna að rjúka ekki strax í símann þegar hann vaknar. Hermann er nýkrýndur afi, fyrsta barnabarnið fæddist í sumar og það næsta á að fæðast á allra næstu dögum. Fjölskyldan stefnir á að sameinast á Ítalíu um jólin.

Starfshópi um tillögur að þjónustu talmeinafræðinga komið á laggirnar
Nýr starfshópur verður stofnaður til að vinna heildstæðar tillögur um þjónustu talmeinafræðinga við börn en heilbrigðisráðherra hefur samþykkt minnisblað þess efnis.

Hestakona fær skertar bætur vegna ölvunar
Hestakona krafðist þess að henni yrðu greiddar fullar bætur vegna líkamstjóns sem hún hlaut eftir fall af hestbaki. Tryggingarfélagið féllst ekki á það og taldi nærri lagi að greiða henni 1/3 hluta tjónsins.

Aðalmeðferð í máli eldri borgara gegn Tryggingastofnun hefst í dag
Félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldri borgara um lífeyrismál, mættu í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun til að fylgjast með aðalmeðferð í máli félaga hópsins gegn Tryggingastofnun.

Klemmdist á Keflavíkurflugvelli og fær sextán milljónir
Tryggingarfélagið Sjóvá þarf að greiða karlmanni sem starfaði hjá IGS á Keflavíkurflugvelli 16,3 milljónir, eftir vinnuslys sem varð í hvassviðri á flugvellinum. Maðurinn klemmdist á fæti við að ferma flugvél.

Reiðhjólaslys varð til þess að SÍ endurskoðar bætur afturvirkt
Sjúkratryggingar Íslands munu fara yfir allar ákvarðanir sem teknar hafa verið síðustu fjögur árin sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegrar örorku. Tilefnið er dómur Hæstaréttar frá því í sumar, þar sem tekist var á um uppgjör bóta vegna reiðhjólaslyss árið 2015.

Ráðin til VÍS eftir sautján ár hjá Icelandair
Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin í starf sölu- og markaðsstjóra VÍS.

Felldi TM í Landsrétti vegna vinnuslyss eftir tap í héraði
Landsréttur viðurkenndi í dag bótaskyldu TM vegna slyss sem karlmaður varð fyrir er hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu. TM hélt því fram fyrir dómi að ekki hefði verið um slys í skilningi bótaréttar að ræða.

Krafðist bóta eftir að hafa ekið á götusóp undir áhrifum áfengis og vímuefna
Tryggingarfélagið Sjóvá lagði ökumann í dómsmáli þar sem einstaklingur krafðist skaðabóta fyrir líkamstjón sem hann varð fyrir eftir að hafa ekið aftan á götusóp í Reykjavík.

Fá hærri bætur vegna þaks sem fauk af í miklu óveðri
Tryggingafélagið TM þarf að greiða dánarbúi hjóna hærri bætur en það hafði þegar greitt út vegna þaks sem fauk af hluta íbúðarhúss í miklu óveðri sem gekk yfir landið í desember árið 2015.

Sjómanni dæmdar 42 milljónir í bætur vegna vinnuslyss á landi
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tryggingafélagið VÍS til að greiða sjómanni rúmar 42 milljónir króna í bætur í síðustu viku.

Fyrst til að selja netöryggistryggingu á Íslandi
Tryggingafélagið TM hefur hafið sölu á netöryggistryggingum, fyrst tryggingafélaga hér á landi. Eru tryggingar hugsaðar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilji lágmarka fjárhagslegt tap, verði þau fyrir netárás.

„Fólk er almennt heiðarlegt og við göngum út frá því“
„Svarið við því er já,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, spurður að því hvort fólki sé treystandi. Tilefnið er nýtt greiðslufyrirkomulag hjá Krónunni, þar sem fólki verður treyst til að „skanna og skunda“ en VÍS hefur um nokkurra ára skeið viðhaft svipað fyrirkomulag varðandi tjónatilkynningar.

Er sumarhúsið klárt fyrir veturinn?
Sumarhúsið er oft griðarstaður, í raun annað heimili fjölskyldunnar. Mikilvægt er að skilja ávallt vel við sumarhúsið til að koma í veg fyrir tjón og fara þá vel yfir vatn, rafmagn, hita og gas.

Tekur við sem forstöðumaður stofnstýringar
Friðrik Bragason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður innan stofnstýringar hjá Verði.