
Pósturinn

Margir gangi í gildru netsvindlara í óðagoti
Fanney B. Pétursdóttir, þjónustustjóri hjá Póstinum, segir marga viðskiptavini hafa samband við þjónustuver Póstsins á degi hverjum vegna falsaðra skilaboða sem hafa borist þeim.

Greiða Póstinum 618 milljónir fyrir alþjónustu
Póstinum hefur verið falið það hlutverk fyrir hönd ríkisins að sinna alþjónustu á Íslandi til ársins 2030, fyrir póstsendingar bæði innanlands og til annarra landa. Undir alþjónustu fellur öll bréfaumsýsla upp að tveimur kílóum og pakkaumsýsla upp að 10 kílóum innanlands og 20 kílóum erlendis frá.

Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld
Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, byrjar daginn á því að fá sér kaffi með sínum besta manni. Öll mánudagskvöld situr hún með systrum sínum og saumar íslenska þjóðbúninginn undir handleiðslu móður sinnar og frænku.

Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Ágætu stjórnendur Íslandspósts! Í dag 9.janúar var pósti dreift hér Breiðdalnum, sá fyrsti sem hefur borist á minn bæ síðan 17. desember sl.. Sem sagt rúmar þrjár vikur síðan síðast barst póstur hingað. Sá póstur sem barst í dag innhélt m.a. jólakort með póststimpli 13. desember og nokkur bréf og kort póstlögð á bilinu frá 17. desember til 6.janúar.

Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól
Stóraukin netverslun Íslendinga skilar sér í auknu álagi hjá sendingarfyrirtækjum. Einhverjar tafir hafa verið á afhendingu sendinga sem framkvæmdastjóri dreifingarfyrirtækis segir vera vegna plássleysis í flugvélum á leið til landsins

Pakkaflóðið of stórt fyrir flugvélar erlendis frá
„Það hefur verið mesta umræðan um vörur erlendis frá. Þar er tappinn bara flugvélar. Það er bara ekki meira pláss í vélunum. Þeir sem hafa þurft að bíða svona lengi, í tíu daga eða eitthvað svoleiðis. Það eru þá flugvélarnar sem eru fullar.“

Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé
Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum.

Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar
Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag.

Póstur í rugli?
Það vakti nokkra undrun þegar Íslandspóstur kynnti sérstaklega samstarf sitt við fyrirtæki sem stundar ólöglega smásölu áfengis. Alveg einstaklega vanhugsaður og óviðeigandi gjörningur af hálfu fyrirtækis sem er í eigu almennings.

Pósturinn dreifir áfengi
Pósturinn hefur frá því í vor dreift áfengi fyrir Smáríkið, netverslun sem selur áfengi. Fólk sem fær áfengi sent heim með póstinum er krafið um rafræna auðkenningu við afhendingu.

Pósturinn varar við netþrjótum
Netþrjótar hafa herjað á landsmenn sem aldrei fyrr undanfarnar vikur. Jökull Jóhannsson, tæknirekstrarstjóri hjá Póstinum, segir ástæðu til að vara fólk við.

Lokun pósthúsa – ferli sem vonandi á sér enga hliðstæðu
Í mars 2024 barst beiðni frá Byggðastofnunum um að sveitarfélög veittu umsögn vegna fyrirhugaðra breytinga á póstþjónustu víða um land ásamt erindi Íslandspósts þess efnis.

Um 60 prósent af farartækjum Póstsins umhverfisvæn
Loftslagsdagurinn 2024 fór fram í Hörpu í fyrradag. Fulltrúar á vegum Póstsins hlýddu á erindin enda loftslagsmál og orkuskipti eitt mikilvægasta viðfangsefnið okkar.

Kannabis en ekki kjólar í kassanum
Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn 4,5 kíló af kannabisefnum. Hann reyndi að koma efnunum til landsins í hraðsendingu sem var merkt kvenfatnaði.

Tíu pósthúsum vítt og breitt um land lokað í sumar
Til stendur að loka tíu pósthúsum Póstsins í sumar. Um er að ræða fjögur pósthús á Austfjörðum, fjögur á Norðurlandi, eitt á Vesturlandi og eitt á Vestfjörðum. Sendingar verða í staðinn afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum.

„Spurning hvort 1. apríl verði eftirleiðis „sjálfstæðisdagur Kjósverja““
Margra ára baráttu Kjósverja við Póstinn virðist lokið og verða heimili þeirra ekki lengur kennd við Mosfellsbæ í póstnúmeraskrá.

Eltu kærustupar grunað um græsku um miðbæinn á kvennafrídaginn
Karl og kona hafa hvort um sig fengið árslangan fangelsisdóm fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Parinu var gefið að sök að gera tilraun til að taka við tæplega 1,1 kílói af kókaíni sem kom með póstsendingu til landsins sem barst þann átjánda október í fyrra.

Festist í póstkassa
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst heldur óvenjulegt útkall í gærkvöldi. Þá hafði íbúi í miðbæ Reykjavíkur ætlað að spara sér að sækja lykla að póstkassa en orðið fyrir því óláni að festa hendurnar í póstkassanum.

Hjartapóstkassinn kominn upp
Það er falleg hefð á Valentínusardaginn að leggja sig fram um að gleðja ástina sína. Síðustu ár hefur Pósturinn aðstoðað Amor við á þessum degi og ekki veitir af þar sem hann er önnum kafinn. Á því verður engin undantekning í ár en verður þó gert með öðru sniði.

Vill selja Póstinn og segir ÁTVR tímaskekkju
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að fækka stofnunum ríkisins. Við sameiningu stofnana megi ekki einblína á að vernda störf. Þá vill hún selja Íslandspóst og brjóta upp ÁTVR.

Dreifingu fjölpósts hætt
Íslandspóstur ákvað að hætta alfarið að dreifa fjölpósti við upphaf árs 2024. Fyrir fjórum árum var hætt að dreifa fjölpósti á suðvesturhorni landsins. Íbúar á því svæði urðu þó ekki varir við það enda er þar virk samkeppni um verkefnið og önnur fyrirtæki tóku að sér að dreifa fjölpósti.

Berglind Lóa nýr vefstjóri Póstsins
Berglind Lóa Sigurðardóttir hefur tekið við stöðu vefstjóra hjá Póstinum.

Máttu ekki nota ökurita til að sjá hvað hádegishléið væri langt
Íslandspóstur mátti ekki nota upplýsingar úr ökurita í bifreið sem starfsmaður hafði afnot af sem uppsagnarástæðu. Notkun Íslandspósts á upplýsingunum var hvorki gagnsæ né sanngjörn samkvæmt úrskurði Persónuverndar.

Alexandra Mjöll orðin „málpípa viðskiptavinarins“
Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir hefur tekið við stöðu sérfræðings í upplifun viðskiptavina hjá Póstinum. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að Alexandra sé málpípa viðskiptavinarins.

Verðskrá fyrir magnpóst lögð niður
Frá og með 1. janúar 2024 verður sérstök verðskrá fyrir magnpóst lögð niður og flokkarnir almenn bréf og magnpóstur sameinaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Á ríkið að reka flutningsfyrirtæki?
Svarið við því er skýrt NEI í mínum huga, en þá má velta fyrir sér hvað Íslandspóstur er og af hverju hann er enn þá í eigu ríkisins.

Hætta að dreifa fjölpósti á landsbyggðinni
Pósturinn mun alfarið hætta að dreifa fjölpósti um næstu áramót.

Vilja að Kjósarhreppur verði ekki lengur kenndur við Mosfellsbæ
Sjö þingmenn úr þremur flokkum hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar sem miðar að því að sveitarfélagið fái nýtt póstnúmer og verði ekki lengur kenndur við Mosfellsbæ. Íbúar í Kjósarhreppi hafa lengi kvartað yfir póstnúmerinu 276 Mosfellsbær og sagt það um árabil hafa valdið ruglingi.

Vildu LSD, keyptu MDMA en enduðu í járnum
Karl og kona hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot fyrir að flytja hingað til lands fíkniefni sem keypt voru með rafmyntinni Bitcoin.

Innviðir mega kosta peninga!
Við búum í samfélagi þar sem við viljum að öllum séu tryggðir öruggir innviðir.