Hafnarfjörður

Pétur G. Markan og Margrét selja einbýli við eina fallegustu götu Hafnarfjarðar
Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis og eiginkona hans Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur hafa sett einbýlishús sitt við Austurgötu í Hafnarfirði á sölu. Húsið var byggt árið 1906. Ásett verð er 91,9 milljónir.

Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“
Guðbjörg Jóhannesdóttir betur þekkt sem Gugga í Gatsby mun í vikunni loka dyrum Gatsby fataverslunarinnar í Hafnarfirði fyrir fullt og allt. Hún segir eftirspurn eftir fötum í þessum stíl gríðarlega mikla og er hrærð yfir viðbrögðum viðskiptavina sinna á lokametrum verslunarinnar sem áfram verður rekin í einhverri mynd á netinu.

100 ára ártíð Ólafíu Jóhannsdóttur: Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Ofangreind lína úr ljóði Einars Benediktssonar (1864-1940) Einræður Starkaðar á jafn vel við í dag og þegar ljóðið kom út árið 1921. Einar og Ólafía Jóhannsdóttir (1863-1924) voru systkinabörn og Ólafía hjúkraði Einari heima hjá sér um tíma er hann glímdi við erfið veikindi.

Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt, meðal annars var tilkynnt um eldsvoða í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Áberandi var fjöldi hávaðakvartana en svo virðist sem mikið af samkvæmum hafi verið í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu.

Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní
Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun og haldið verður upp á 80 ára afmæli lýðveldisins. Venjunni samkvæmt er stútfull og metnaðarfull dagskrá um allt land. Vísir tók saman dagskrána í nokkrum sveitarfélögum.

Flúðu vettvang eftir harðan árekstur
Fólksbifreið var ekið í veg fyrir jeppa á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að jeppinn valt nokkra hringi. Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar flúðu vettvang en lögreglu tókst að handtaka þá skömmu síðar.

Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði
Kona í Hafnarfirði er engum líka þegar kemur að söfnun á servíettum því hún á hvorki meira né minna en níutíu þúsund servíettur og bara eina tegund af hverri. Söfnunin hefur staðið yfir í fjörutíu ár.

Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði
Mikil breyting verður á möguleikum hafnfirskra ungmenna á aldrinum 16-24 ára til frístundastarfs og afþreyingar þegar nýtt fyrirkomulag þjónustunnar tekur gildi eftir sumarfrí.

Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina
Víkingar um allan heim eru ýmist komnir eða á leið til landsins til að sækja hina árlegu Víkingahátíð sem fer fram í Hafnarfirði um helgina. Lengst hefur fólk ferðast frá Ástralíu til að taka þátt í dagskrárhöldum.

Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar
Þegar ég var ung tók móðir mín okkur systkinin í ævintýraferðalög út í hraunið út frá Holtinu. Við fórum í sólbað i hraunbollum /gjótum, skoðuðum burkna og lynggróður, ræddum um álfabústaði, týndum ber og nutum okkar í heilnæmu umhverfi.

Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“
Stefán Pálsson segir algjörlega ömurlegt að heyra að Hafnarfjarðarbær „slátri Hamrinum með pennastriki.“ Greint var frá því á dögunum að Hafnarfjarðarbær hygðist binda enda á starfsemi ungmennahússins Hamarsins og segja öllum starfsmönnum þess upp.

Umræða sem eigi ekki við rök að styðjast
„Það er alveg skiljanlegt að fólk hafi áhyggjur þegar þetta er svona nýtt verkefni. Það hafa verið mjög aðgengilegar upplýsingar að verkefninu. Síðan fer vissulega alltaf af stað umræður sem eiga ekki við rök að styðjast og það er bara eðlilegt. Þá bendir maður bara fólki á að kynna sér málið betur.“

Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins)
Við Suðurgötu í Hafnarfirði hefur um árabil verið starfrækt ungmennahús fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Ungmennahúsið Hamarinn, sem dregur nafn sitt af hamrabeltinu sem trónir yfir húsinu og setur svip sinn á bæinn, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framúrskarandi tómstundastarf og þjónustu við fjölbreytta hópa ungs fólks. Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur nú ákveðið að leggja ungmennahúsið niður og segja upp öllu starfsfólki.

Nemendalýðræði á brauðfótum
Lengi hefur verið vitað að smæð íslenskra sveitarfélaga sé ógn við menntun í landinu. Með auknum kröfum um inntak skólastarfs og stöðugt nýjum áskorunum verður smærri sveitarfélögum erfiðara um vik að uppfylla skyldur sínar. Minna hefur verið rætt um annan vanda, sem ekki á síður við stór sveitarfélög en smá, að lýðræðið á stjórnsýslustigi skólanna liggur undir skemmdum.

Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn
Von er á þrjú hundruð börnum á Flensborgarbryggjuna í dag þar sem árleg dorgveiðikeppni Hafnarfjarðarbæjar fer fram. Verðlaun verða meðal annars veitt þeim sem veiðir stærsta fiskinn og þann furðulegasta.

Þakklát fyrir spurningar íbúa og varpa nýju ljósi á framkvæmdir
„Það er fullur skilningur að svona verkefni sem ekki hefur áður sést veki upp spurningar og áhyggjur og við erum bara mjög þakklátar að geta brugðist við og svarað þeim spurningum sem hafa vaknað.“

Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda
Ólga er meðal íbúa í Hafnarfirði vegna samkomulags Coda terminal, dótturfélags Carbfix, og bæjarstjórnar um að koma upp borteigum í hrauninu steinsnar frá Völlunum í Hafnarfirði.

Hvað kostaði Krýsuvík?
Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í liðinni viku var samþykkt að selja HS orku nýtingarétt af auðlindum í Krýsuvík. Fyrirtækið hyggst reisa virkjun á svæðinu, virkja jarðvarma til raforkuframleiðsl, til sölu á heitu vatni til heimila og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og vinna grunnvatn eins og segir í samningi aðilanna.

Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag
Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf
Hafnarfjarðarbær mun í haust innleiða breytingar á leikskóladegi barna sem gefa færi á styttri viðveru en um leið sömu umönnun og kennslu. Foreldrar geta lækkað leikskólagjöldin um allt að 30%. Enn sem fyrr geta þó foreldrar fengið pláss fyrir börnin sín fullan leikskóladag þurfi þeir þess.

Dómar vegna manndrápsins í Hafnarfirði þyngdir
Landsréttur þyngdi refsingu karlmanns sem var dæmdur sekur fyrir að stinga pólskan karlmann til bana á bílastæði við Fjarðarkaup í Hafnarfirði og tveggja annarra sem áttu hlutdeild í því. Dómur yfir stúlku sem myndaði atlöguna var mildaður.

Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði
Reitir og Kjölur fasteignir hafa undirritað samkomulag um kaup Reita á fasteignum að Njarðarvöllum 4 í Reykjanesbæ og Lónsbraut 1 í Hafnarfirði. Í tilkynningu kemur fram að húsið að Njarðarvöllum 4 var byggt 2008 og er 2.338 fermetrar að stærð. Fasteignin hýsir Nesvelli dagvöl aldraðra í Reykjanesbæ. Leigusamningur er við Reykjanesbæ til 2038.

Hafnarfjarðarbær semur við HS orku um rannsóknar- og nýtingarrétt í Krýsuvík
Hafnarfjarðarbær og HS Orka hafa undirritað samkomulag um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferskvatni og til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi á heitu vatni í Hafnarfirði og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að mæta vaxandi raforkuþörf í landinu. Áætlað er að nýtt jarðvarmaver í Krýsuvík gæti hitað upp allt að 50.000 manna byggð.

„Það er ekkert að óttast við þennan mann“
Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að láta af myndbirtingum karlmönnum á samélagsmiðlum sem það telur tengjast máli manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfjarðarbæ. Málið er í forgangi og telst enn óupplýst.

Handtóku mann í Hafnarfirði en málið enn óupplýst
Lögreglan segir að manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfirði sé enn leitað og málið sé óupplýst þrátt fyrir að karlmaður hafi verið handtekinn í tengslum við það um helgina.

Lokun ungmennahúss blaut tuska í andlit hafnfirskra ungmenna
Á miðvikudaginn síðastliðinn var samþykkt á fundi fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar að leggja niður starfsemi ungmennahússins Hamarsins og segja öllum starfsmönnum þess upp. Óskar Steinn Ómarsson starfsmaður Hamarsins segir vinnubrögð bæjaryfirvalda í málinu bæði óvönduð og ólýðræðisleg.

Ökumanns sem ók á mann á rafmagnshlaupahjóli leitað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar bifreiðar sem ók á karlmann um tvítugt á rafhlaupahjóli merktu Hopp á gangbraut á gatnamótum Akurvalla og Burknavalla í Hafnarfirði á milli klukkan tíu og ellefu í morgun.

Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa
Kjósandi í Hafnarfirði ætlaði að skjótast í Lækjarskóla til að greiða forsetaframbjóðanda atkvæði sitt um sexleytið. Úr varð klukkustundarlöng bið eftir að komast í kjörklefann.

Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu
Lögregla hefur til rannsóknar íkveikju í iðnaðarbili við Dofrahellu í Hafnarfirði aðfaranótt þriðjudags. Tívolíbombu var kastað inn um glugga á iðnaðarbilinu þar sem gin er bruggað í miklu magni. Mildi þykir að ekki fór verr.

Umhverfismat Coda Terminal í Straumsvík
Carbfix fagnar því að umhverfismat Coda Terminal, sem er móttöku- og geymslustöð fyrir koldíoxíð (CO2) í Straumsvík sé komið í opið kynningarferli eftir um það bil tveggja ára undirbúning og vinnu. Coda Terminal tekur á móti CO2 sem fangað er frá iðnaði og ekki er hægt að útrýma með orkuskiptum (e. hard to abate).