Grindavík „
1 2 3 4 5 6 7 … 74 ›
„Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Rafmagni var komið aftur á í Grindavík í morgun eftir að hafa dottið út þegar Svartsengislína sló út. Hraun rennur yfir Njarðvíkuræð en forstjóri HS Orku bindur miklar vonir við að varnir haldi. Innlent 21.11.2024 12:00
Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum minnir á að svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar er talið mengað af sprengjum, bæði virkum og óvirkum. Tilefnið er umferð ferðamanna um svæðið vegna eldgossins sem hófst í gærkvöldi. Innlent 21.11.2024 11:52
Magnaðar myndir sýna Grindavíkurveg undir hrauni Hraun náði Grindavíkurvegi upp úr klukkan hálf fimm í nótt. Myndir sem ljósmyndari Vísis tók á vettvangi í morgun sýna vel eyðilegginguna sem hrauntungurnar hafa í för með sér. Innlent 21.11.2024 10:53
Svartsengi keyrt á varaafli Orkuveruð í Svartsengi er nú keyrt á varaafli, eftir að Svartsengislína fór út. Rafmagnslaust er í Grindavík. HS Orka fylgist grannt með stöðunni á Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjunum fyrir heitu vatni. Innlent 21.11.2024 10:20
Hraun náð Njarðvíkuræð „Nú fylgjumst við bara í raun og veru með rennsli hraunsins; hraunið hefur náð þessari veitulínu, Njarðvíkurlínunni,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, um stöðu mála við Grindavík. Innlent 21.11.2024 09:04
Verði að koma í ljós hvort fergjun Njarðvíkuræðar heldur Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Almannavörnum, segir að þrátt fyrir að gosin hafi öll verið á svipuðum slóðum komi upp nýjar áskoranir í hvert sinn sem gýs. Innlent 21.11.2024 07:36
Hraun rann yfir Grindavíkurveg Hraun rann yfir Grindavíkurveg upp úr klukkan half fimm í nótt og nálgast það nú Njarðvíkuræð. Áætlað hraunrennsli á umræddri hrauntungu er um 300 metrar á klukkustund. Innlent 21.11.2024 07:11
„Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út á fasteignamarkaðnum. Viðskipti innlent 21.11.2024 06:29
Barnabarnið hélt að gosið væri grín þegar afi reyndi að koma honum á lappir Eiríkur Óli Dagbjartsson, Grindvíkingur, var staddur í bænum þegar gosið hófst í gærkvöldi. Hann heyrði ekki í viðvörunarlúðrum sem láta íbúa bæjarins vita þegar það byrjar að gjósa. Það er í annað skipti sem það gerist. Innlent 21.11.2024 01:46
Kort af staðsetningu gossprungunnar Lengd gossprungunnar þar sem gýs norðan Grindavíkur er áætluð um tveir og hálfur kílómetri. Syðri endi hennar er við Sýlingarfell. Sérfræðingar Veðurstofunnar telja gosið minna í upphafi en síðasta gos í ágúst. Innlent 21.11.2024 01:21
Áttu ekki von á eldgosi í nóvember Vísindamenn á Veðurstofu Íslands sögðust síðdegis á þriðjudag telja ólíklegt að nægur þrýstingur yrði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember, kosningagosi. Önnur varð sannarlega raunin því rúmum sólarhring síðar er eldgos hafið norðan Grindavíkur, það sjöunda á árinu og það tíunda síðan eldgosahrinan á svæðinu hófst í mars 2021. Innlent 21.11.2024 01:07
Rýming í Bláa lóninu og Grindavík gengur vel Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að rýming gangi vel í bæði Grindavík og Bláa lóninu. Miðað við upplýsingar um staðsetningu eldgossins og hraunflæði séu engir innviðir eða vegir í bráðri hættu akkúrat núna. Innlent 21.11.2024 00:10
Vaktin: Eldgos hafið á ný og bílastæðaplan Bláa lónsins nú undir hrauni Eldgos hófst við Sundhnúksgígaröðina klukkan 23:14 á miðvikudag. Sprungan liggur austan Grindavíkurvegar í norðaustur. Um er að ræða sjötta elgosið á árinu og það tíunda síðan goshrinan hófst í mars 2021. Innlent 20.11.2024 23:07
Ólíklegt að gjósi í nóvember Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja ólíklegt að nægur þrýstingur verði búinn að byggjast upp í kvikuhólfinu undir Svartsengi til að koma af stað eldgosi í nóvember. Vísbendingar um að hægt hafi á landrisi gætu verið tilkomnar vegna geimveðurs. Innlent 19.11.2024 15:10
Sækja allar ruslatunnur úr Grindavík Til stendur að fjarlægja allar ruslatunnur úr Grindavík um helgina og á að koma þeim fyrir í Reykjanesbæ. Körfubolti 19.11.2024 13:55
Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Þeir sem selt hafa hús sín í Grindavík til Þórkötlu geta frá og með deginum í dag gert samning um afnot af húsinu, gegn greiðslu. Um er að ræða svokallaðan hollvinasamning sem byggir á samstarfi Þórkötlu við seljendur húsa í Grindavík og snýr að umhirðu, viðhaldi og eftirliti með húsunum. Viðskipti innlent 19.11.2024 11:50
Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Leigusali í Grindavík hélt eftir tryggingarfé konu sem flýja þurfti leiguíbúð sína vegna hamfaranna sem gengu yfir bæinn þann 10. nóvember í fyrra. Kærunefnd húsamála hefur beint því til leigusalans að skila tryggingunni. Neytendur 14.11.2024 08:02
Opna sundlaugina í Grindavík á ný Sundlaugin í Grindavík hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð síðasta rúma árið vegna eldsumbrota og lokunar bæjarins. Fyrsti dagur opnunarinnar var í gær. Innlent 12.11.2024 10:15
Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Grindvíkingar héldu samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld þar sem ár er liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Innlent 10.11.2024 23:58
„Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég sagði í upphafi að ég gæti ekki sett mig í ykkar spor, ekkert okkar getur það, en ég get sagt í einlægni að í mínu lífi hafa erfiðir tímar iðulega verið undanfari betri tíma.“ Innlent 10.11.2024 21:21
„Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Tíundi nóvember verður aldrei gleðidagur í augum Grindvíkinga sem þurftu að yfirgefa heimili sín á þessum degi fyrir ári. Þetta segir bæjarstjórinn í Grindavík en bæjarbúar minntust tímamótanna í dag. Bæjarbúar voru þó glaðir að geta komið saman í kaffi í bænum í dag í tilefni af tímamótunum. Innlent 10.11.2024 21:01
Grindavíkin mín Nú um helgina er ár síðan við Grindvíkingar þurftum að rýma Grindavík og sá dagur rennur mér seint úr minni. Það er svo stutt síðan en á sama tíma svo óralangt síðan. Skoðun 10.11.2024 16:01
Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Í dag er ár liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Hamfarirnar eru einar þær mestu í sögunni að sögn bæjarstjóra sem kveðst bjartsýnn á framtíð bæjarins þrátt fyrir að jarðhræringum sé ekki lokið. Forseti Íslands mun sækja samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld. Innlent 10.11.2024 13:26
Þakkir til þjóðar 10. nóvember er runninn upp og ég veit ekki hvernig mér á að líða. Frá því að ég sat í sal Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York fyrir ári síðan að hlusta á fulltrúa Palestínu og Ísraels að tala sínu máli um leið og ég fylgdist með í símanum þeim ósköpum sem raungerðust í Grindavík hefur svo margt gerst. Skoðun 10.11.2024 13:17
Teitur og Sævar fóru fögrum orðum um Kane í Körfuboltakvöldi DeAndre Kane skoraði átján stig á aðeins fimmtán mínútum í sigri Grindavíkur á Þór í lokaleik sjöttu umferðar Bónus deildar karla en kvöldið hans endaði mjög snögglega í fyrri hálfleiknum. Bónus körfuboltakvöld hrósaði kappanum mikið og fór líka yfir höfuðmeiðsli hans í leiknum. Körfubolti 10.11.2024 11:42
Grindavík fær 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi Kane Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleiksambands Íslands hefur tekið fyrir mál Grindvíkingsins DeAndre Kane og leikmaðurinn sleppur við leikbann. Körfubolti 9.11.2024 11:59
Reikna með fimmtán milljarða kostnaði vegna tjóns Náttúruhamfaratrygging Íslands áætlar að kostnaður vegna jarðskjálftanna í grennd við Grindavík sem urðu tilefni til þess að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember í fyrra muni að endingu nema á sextánda milljarð króna. Innlent 8.11.2024 15:10
Lítil skjálftavirkni eftir hrinuna í byrjun viku Lítil skjálftavirkni hefur verið á Sundhnúksgígaröðinni í kjölfar skjálftahrinunnar sem varð aðfararnótt síðastliðins mánudags. Heildarrúmmál kviku undir Svartsengi er nú um það bil 80 prósent af því sem safnaðist áður en fór að gjósa 22. ágúst síðastliðinn. Innlent 8.11.2024 14:44
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29
„Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Grindavíkurbær stefnir í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki komið til móts við bæjarsjóð að mati Grindavíkurnefndar. Bæjarstjóri segir óvissu um framlengingu ýmissa stuðningsúrræða ótæka. Innviðaráðherra segir margar stórar ákvarðanir um áframhaldandi stuðning bíða nýrrar ríkisstjórnar. Innlent 1.11.2024 13:10