Grindavík
52 53 54 55 56 57 58 59 60 … 74 ›
Eldgosið kosti Grindavíkurbæ 60 milljónir Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar býst við að eldgosið í Meradölum kosti bæinn um sextíu milljónir. Hann segir að bærinn muni leggja út fyrir verkefnum en að hugað verði að uppgjöri síðar. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að gosstöðvarnar verði lokaðar frá klukkan fimm í fyrramálið vegna vonskuveðurs. Innlent 6.8.2022 20:07
Allir og amma þeirra á gosstöðvunum „Það var brandari um daginn að allir og amma þeirra væri komin í bílinn en nú held ég að þau séu farin að drösla langömmunni með,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, um ágang að gosstöðvunum um þessar mundir. Innlent 6.8.2022 14:16
Björgunarsveitir skoða að loka gossvæðinu á morgun vegna veðurs Lögreglan á Suðurnesjum mun sekta þá sem ekki leggja í merkt bílastæði við gosstöðvarnar frá og með deginum í dag. Þá kemur til greina að svæðinu verði lokað á morgun vegna veðurs. Innlent 6.8.2022 11:52
Mögnuð myndasyrpa frá Meradölum Eins og landsmönnum er eflaust kunnugt hófst eldgos í Meradölum nú á miðvikudag og hefur fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis staðið vaktina. Hér að neðan má sjá myndir teknar af ljósmyndara fréttastofunnar, Vilhelm Gunnarssyni. Innlent 5.8.2022 12:30
Svona er gönguleiðin að gosinu Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur staðið í ströngu síðan eldgos hófst í Meradölum. Björgunarsveitarmenn aðstoða ekki aðeins þá sem lenda í vanda á leiðinni að gosinu heldur hafa þeir ráðist í fyrirbyggjandi aðgerðir með því að stika gönguleið að gosinu. Innlent 5.8.2022 11:59
Veitingamenn á Suðurnesjum hugsa sér gott til glóðarinnar Jóhann Issi Hallgrímsson veitingamaður er nú að skoða hvort ekki megi koma upp veitingavagni á gosslóð til að þjónusta þær þúsundir sem ekki hlýða Víði og vilja skoða gosið. En skortur á starfsfólki setur strik í reikninginn. Innlent 4.8.2022 14:39
Léttir að fá gosið Eldgosið í Meradölum virðist leggjast vel í Grindvíkinga sem hafa þurft að bíða milli vonar og ótta eftir fregnum af jarðhræringum í bakgarðinum síðustu daga. Flestir fagna endalokum jarðskjálftanna og vonast til að eiga rólegri nætur fram undan. Innlent 3.8.2022 23:27
Grindvíkingar vonuðust eftir eldgosi og á góðum stað Grindvíkingar eru rólegir yfir eldgosi við Geldingadali. Eldgos þýðir færri jarðskjálftar og svo virðist sem það hafi komið upp á góðum stað. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir mikilvægt að tryggja öryggi þeirra sem vilji skoða eldstöðvarnar en fólk verði að fylgja fyrirmælum. Innlent 3.8.2022 21:30
Töluvert stærra gos og virðist byrja af meiri krafti Eldgosið sem hófst við Geldingadali í dag er töluvert stærra en það sem sást í fyrra og virðist byrja af meiri krafti. Þrátt fyrir það telst gosið vera lítið og er lítil hætta á því að það ógni byggð eða innviðum á nærliggjandi svæði. Innlent 3.8.2022 18:53
Gosið leggst vel í Grindvíkinga Guðrún Kristín Einarsdóttir er formaður slysavarnadeildarinnar Þórkötlu í Grindavík, sem er deild innan Landsbjargar. Hún var hress þegar Vísir heyrði í henni, gosið leggst bara vel í hana. Innlent 3.8.2022 16:14
Búið að loka fyrir akstur á vegslóðum við gosstöðvarnar Neyðarstig almannavarna var virkjað um klukkan þrjú í dag vegna eldgossins sem hafið er í Geldingadölum. Þetta ákvað ríkislögreglustjóri í samráði við lögregluna á Suðurnesjum. Innlent 3.8.2022 16:01
„Hressandi að fá eitt eldgos í viðbót“ Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík segir að allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafi verið kallaðar út, þau séu að ná tökum á málunum og fara yfir stöðuna. Hann hvetur almenning til að hlusta á tilmæli. Innlent 3.8.2022 15:36
Léttir að gosið sé hafið Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir í samtali við fréttastofu að það sé ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa, sérstaklega á svona góðum stað. Enginn mannvirki séu í grennd við gosstöðvar en það kom honum ekkert sérlega á óvart að gosið skyldi hefjast í dag. Innlent 3.8.2022 15:04
Eldgos hafið við Fagradalsfjall Eldgos hófst í Meradölum á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag í framhaldi af mikilli skjálftavirkni á svæðinu undanfarna daga. Jarðeldar sáust greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu og staðfestu sérfræðingar Veðurstofunnar í framhaldinu að um eldgos væri að ræða. Innlent 3.8.2022 13:34
Skjálfti af stærðinni 4,2 varð við Kleifarvatn Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Innlent 3.8.2022 12:03
Óútskýrður eldur í mosa en engin kvika sjáanleg Ljósblossar í Fagradalsfjalli sem Landhelgisgæslan var send að kanna nú eftir miðnætti reyndust vera vegna elds í mosa. Engin merki eru um kviku á svæðinu. Innlent 3.8.2022 01:26
Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa Augu jarðvísindamanna, sem og fróðleiksþyrstra landsmanna um næsta eldgos á Reykjanesskaga, beinast núna að svæði austan og norðaustan Fagradalsfjalls sem liggur til norðausturs frá eldstöðvunum í Geldingadölum í fyrra og í átt að hinu svipmikla fjalli Keili. Þar benda mælingar til að kvika streymi núna inn í kvikugang sem gæti brotist upp til yfirborðs á næstu dögum með eldgosi. Innlent 2.8.2022 22:50
Túristagos ekki endilega jákvætt Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir almannavarnir og aðra viðbragðsaðila vera viðbúna ef það skildi byrja að gjósa. Allir reyni að halda sér eins upplýstum og hægt er. Túristagos hafi vissulega jákvæð áhrif á efnahaginn en það sé ekkert grín þegar það gýs svona nálægt byggð. Innlent 2.8.2022 14:15
Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum. Innlent 2.8.2022 11:15
Rekstrarhagnaður Vísis tveir milljarðar og hélst nær óbreyttur í fyrra Rekstrarhagnaður (EBITDA) sjávarútvegsfyrirtækisins Vísir í Grindavík, sem er verið að selja til Síldarvinnslunnar fyrir samtals um 31 milljarð króna, nam tæplega 13,4 milljónum evra, jafnvirði um tveggja milljarða íslenskra króna miðað við meðalgengi síðasta árs, á árinu 2021 og jókst um 0,2 milljónir evra frá fyrra ári. Innherji 2.8.2022 08:57
Stórt bjarg hrunið úr Gálgaklettum norður af Grindavík Stórt bjarg hefur hrunið úr Gálgaklettum í Sundhnúk, norðan við Grindavík og skammt austan við fjallið Þorbjörn. Bjargið hefur mögulega hrunið vegna stóra skjálftans sem reið yfir í gærkvöldi og Grindvíkingar segja að sé sá stærsti á undanförnum árum. Innlent 1.8.2022 22:54
Íbúar Grindavíkur undirbúnir fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra Almannavarnir funduðu í hádeginu vegna jarðskjálftahrinu sem hófst á Reykjanesi um helgina. Skjálftahrinan hefur valdið nokkru tjóni á munum í Grindavík og segir íbúi að fólk sé undirbúið fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra. Innlent 1.8.2022 21:04
„Það brotnaði allt sem brotnað gat“ Grindvíkingar hafa margir hverjir orðið fyrir miklu tjóni vegna skjálftahrinunnar sem stendur nú yfir. „Þetta venst aldrei,“ segir eigandi blómaverslunar sem kom að verslunin sinni líkt og sprengju hefði verið varpað á verslunina. Innlent 1.8.2022 16:41
Upplifun íbúa að skjálftinn í gær hafi verið sá kröftugasti á síðustu árum Skjálftinn sem reið yfir rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi var einn sá kröftugasti á þeim rúmum tveimur árum sem skjálftavirkni hefur verið viðvarandi á Reykjanesi, að mati margra Grindvíkinga. Innanstokksmunir féllu úr hillum og eitthvað var um smávægilegar skemmdir. Almannavarnanefnd fundar í hádeginu um skjálftana og bæjarstjóri segir vel fylgst með stöðunni. Innlent 1.8.2022 14:01
Stór skjálfti korter yfir þrjú í nótt Skjálfti að stærð 4,3 átti sér stað fjóra kílómetra suðsuðvestan af Fagradalsfjalli klukkan fjórtán mínútur yfir þrjú í nótt og fannst skjálftinn á höfuðborgarsvæðinu. Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall hefur staðið yfir frá hádegi á laugardag og telja sérfræðingar kvikuhlaup valda virkninni. Innlent 1.8.2022 03:32
Fjölmargir skjálftar yfir 3,0 að stærð fylgt eftir stóra skjálftanum Jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir skammt frá Grindavík klukkan 17:48 í dag. Skjálftinn er sá langstærsti í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Jörðin á Reykjanesskaga hefur haldið áfram að skjálfa allverulega síðan þá og hafa sextán skjálftar stærri en 3,0 riðið yfir. Innlent 31.7.2022 23:43
Grindvíkingar séu tilbúnir Frá miðnætti hafa meira en fjörutíu skjálftar af stærðinni þrír eða meira mælst á Reykjanesskaga. Stór hluti þeirra hefur mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus í mars á síðasta ári. Í aðdraganda gossins var jarðskjálftavirkni á svæðinu mikil, og Grindvíkingar ekki farið varhluta af því. Innlent 31.7.2022 22:56
Kaldavatnslaust í Grindavík eftir stóra skjálftann Aðveitulögn fyrir kalt vatn inn í Grindavík fór í sundur við Svartsengi eftir stóra skjálftann sem reið yfir rétt fyrir sex á Reykjanesskaga. Það er því kaldavatnslaust hjá íbúum bæjarins en unnið er að því að gera við lögnina. Innlent 31.7.2022 22:41
Tilkynningar um tjón í Grindavík Almannavarnir segja tilkynningar um tjón hafa borist frá Grindavík eftir að skjálfti að stærð 5,4 reið yfir um þrjá kílómetra austnorðaustur af bænum rétt fyrir sex í kvöld. Engar tilkynningar um slys af fólki hafi hins vegar borist. Innlent 31.7.2022 20:04
Stór skjálfti að stærð 5,4 við Fagradalsfjall Stærsti skjálftinn í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir klukkan 17:48. Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var skjálftinn 5,4 að stærð. Innlent 31.7.2022 17:49