Vesturbyggð
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 12 ›
Vestfirðir efstir á lista Lonely Planet yfir bestu áfangastaði í heimi 2022 Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir lönd, svæði og borgir til að heimsækja árið 2022, eða svokallaða Best in Travel viðurkenningu, sem birt var í gærkvöldi. Viðskipti innlent 28.10.2021 08:21
Ráðast í hönnun og útboð á hafnarmannvirkjum vegna Baldurs Vegagerðin telur hagkvæmast að uppfylla núverandi samning um ferjusiglingar á Breiðafirði og nota gildistíma hans, til maímánaðar 2022 eða 2023, til hönnunar og útboðs á hafnarmannvirkjum á Brjánslæk og í Stykkishólmi. Ný hafnarmannvirki séu forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri á Breiðafirði. Innlent 7.10.2021 14:41
Vilja gamla götumynd á Bíldudal og endurreisa Kaupmannshúsið Áform eru uppi á Bíldudal um að endurbyggja eitt veglegasta hús nítjándu aldar, Kaupmannshús Péturs J. Thorsteinssonar útgerðarmanns, þar sem sonur hans, listamaðurinn Muggur fæddist. Tvö önnur hús yrðu endurreist og þannig búin til gömul götumynd. Innlent 23.9.2021 23:15
Styttist í slitlagið á fyrstu kaflana á Dynjandisheiði Miklar samgöngubætur verða á Vestfjörðum á næstu vikum þegar tveir erfiðir vegarkaflar, á Dynjandisheiði og í botni Arnarfjarðar, verða leystir af hólmi með nýjum slitlagsköflum, samtals yfir tólf kílómetra löngum. Innlent 20.9.2021 22:11
Skyndiákvörðun poppara um að bruna í bæinn varð hröktum ferðalöngum mögulega til lífs Tveimur rúmenskum karlmönnum var bjargað eftir miklar hrakningar í vonskuveðri eftir að bifreið þeirra varð alelda á miðri Kleifaheiði í gærkvöldi. Ökumaður sem ákvað að drífa sig suður um kvöldið segir það mildi að hann hafi fundið þá hjálparlausa á heiðinni. Innlent 5.9.2021 19:30
Vöknuðu af værum svefni í Hlíðunum við sjúkraflug Íbúar í Hlíðunum vöknuðu af værum svefni við þyrluflug yfir hverfið í nótt. Þarna var þyrla Landhelgisgæslunnar á ferð. Þyrlunni TF-GNA var flogið af stað á öðrum tímanum í nótt til að sækja veikan aðila á Barðaströnd. Innlent 5.9.2021 12:27
Bíllinn alelda og ferðamennirnir blautir og kaldir Tveir erlendir ferðamenn náðu að forða sér úr bíl sínum þegar kviknaði í honum á Kleifaheiði í grennd við Patreksfjörð um miðnætti. Innlent 5.9.2021 10:50
Þríhryggbrotinn eftir að hafa reynt Sveppadýfuna Karlmaður um þrítugt stórslasaðist á hrygg þegar hann tók hina svokölluðu Sveppadýfu í sundlauginni á Patreksfirði fyrir tveimur vikum. Hann varar fólk við því að apa svona eftir og vonar að tískubylgjuna lægi. Innlent 3.9.2021 22:21
Gat uppgötaðist á sjókví í Arnarfirði Gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Haganes í Arnarfirði uppgötvaðist við neðansjávareftirlit síðastliðinn fimmtudag. Innlent 1.9.2021 09:32
Starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða greindist smitaður í gær Starfsmaður HVEST greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Tveir samstarfsmenn og átta skjólstæðingar starfsmannsins eru komnir í sóttkví. Innlent 13.8.2021 14:08
Íbúum á Bíldudal fjölgað um 41 Íbúum landsins fjölgað mest á Bíldudal frá 1. desember síðast liðnum til 12. ágúst samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands. Bæjarins besta hefur rýnt í tölurnar með áherslu á Vestfirði. Innlent 13.8.2021 07:37
Samgöngufélagið hvetur til þverunar Vatnsfjarðar Átök gætu verið í uppsiglingu um þverun Vatnsfjarðar í Barðastrandarsýslu. Könnun sem áhugafélag um samgöngur lét gera sýnir verulegan stuðning við þverun. Undirstofnanir umhverfisráðuneytis, sem og sveitarfélagið Vesturbyggð, leggjast hins vegar gegn hugmyndinni. Innlent 21.7.2021 22:22
Hafði upp á stærstum hluta þýfisins af sjálfsdáðum Gunnar Sean Eggertsson, vélfræðingur á Patreksfirði, dó ekki ráðalaus þegar BMW Alpina B-10 bíll hans frá árinu 1991 var strípaður í upphafi árs. Hann lagðist í mikla rannsóknarvinnu sem varð til þess að hann endurheimti stóran hluta þýfisins þótt þjófurinn hafi bíllykilinn enn í sínum fórum. Kom hann lögreglu á snoðir um það sem virkar sem umfangsmikinn þjófnað og útflutning á þýfi. Innlent 17.7.2021 07:01
Segja Vestfirði ekki þola frekari tafir á vegagerð „Vegakerfið á Vestfjörðum þolir einfaldlega ekki frekari tafir á samþykktum vegaframkvæmdum,“ segir í ályktun frá Vestfjarðastofu og sveitarfélögum á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum vegna frétta af frestun útboðs á Dynjandisheiði. Innlent 6.7.2021 12:35
Dynjandisheiði ekki í útboð á þessu ári vegna fjárskorts Vegagerðin hefur fallið frá því að bjóða út stærsta áfanga nýs vegar yfir Dynjandisheiði í sumar þar sem ekki eru til peningar í verkið. Áformað er þó að bjóða út næsta áfanga vegagerðar um Gufudalssveit í haust. Innlent 24.6.2021 22:11
Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Eyfa Vinir Sveins Eyjólfs Tryggvasonar, sem lést af slysförum í Ósá fyrir botni Patreksfjarðar síðustu helgi, hafa sett af stað söfnun til stuðnings eiginkonu hans og börnum. Sveinn Eyjólfur, eða Eyfi eins og hann var kallaður, átti sjö börn og var fæddur árið 1972. Innlent 4.6.2021 14:37
Nafn mannsins sem lést á Patreksfirði Maðurinn sem lést í slysi síðastliðinn sunnudag í botni Patreksfjarðar hét Sveinn Eyjólfur Tryggvason og var fæddur árið 1972. Innlent 4.6.2021 10:01
Drukknun við Svuntufoss í Patreksfirði Karlmaður drukknaði í dag við Svuntufoss í Ósá fyrir botni Patreksfjarðar. Maðurinn var á miðjum aldri en hann hafði ætlað sér að fara út í hyl undir fossinum. Innlent 30.5.2021 19:02
Flutti útivistarmann frá Vestfjörðum og á Landspítala Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja útivistarmann frá Vestfjörðum og á Landspítalann á öðrum tímanum í dag. Innlent 30.5.2021 16:11
Kosið milli fimm nafna á nýjum þjóðgarði á Vestfjörðum Umhverfisstofnun hefur efnt til kosninga á nafni fyrir nýjan þjóðgarð á Vestfjörðum. Fimm nafnatillögur koma til greina. Innlent 27.5.2021 07:52
Handbendi brúðuleikhús hlaut Eyrarrósina Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlaut Eyrarrósina í ár, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta var í sautjánda sinn sem Eyrarrósin er afhent og í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra. Menning 17.5.2021 10:02
Vilja hefja vegagerð í sumar á hæsta hluta Dynjandisheiðar Vegagerðin stefnir að því að bjóða út í vor stærsta áfangann í endurbyggingu Vestfjarðavegar yfir Dynjandisheiði. Vegarkaflinn er á hæsta hluta heiðarinnar og þykir mikilvægt að sumarið nýtist til framkvæmda. Innlent 13.4.2021 22:22
Rauðasandur tólfta fallegasta ströndin í Evrópu Rauðasandur á Vestfjörðum hefur verið valin sem tólfta fallegasta ströndin í Evrópu af ferðablogginu Lonely Planet. Ströndin er sögð gullfalleg, víðfeðm og tómleg. Lífið 28.3.2021 20:50
Vestfirðingar vonast til að hylli undir lok sögunnar endalausu „Við höfum náttúrlega reynslu af því að þurfa að bíða mjög lengi eftir því að fá samgöngubætur, eins og Teigsskógarruglið hefur verið. Við bara þekkjum það vel. Og það er ekkert í höfn fyrr en við bara sitjum í bílunum okkar og það er verið að opna vegina okkar,“ segir Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Innlent 21.3.2021 07:45
Vestfirðingar vonast til að ná vopnum sínum Opnunardagur Dýrafjarðarganga í haust var stór dagur á Vestfjörðum. Löng bílalestin við gangamunnann lýsti eftirvæntingunni. Um líkt leyti var vinna hafin við gerð nýs vegar yfir Dynjandisheiði og endurnýjun Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Innlent 14.3.2021 22:14
Telja að Baldur gæti siglt á miðvikudag Breiðafjarðarferjan Baldur gæti hafið siglingar á miðvikudag gangi allt að óskum með nýja túrbínu sem er væntanleg til landsins seint í kvöld. Innlent 14.3.2021 14:56
„Gengur ekki að spila svona með mannslíf” Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir bilun farþegaferjunnar Baldurs í gær hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Óboðlegt sé að spila með mannslíf með þessum hætti og kallar eftir tafarlausum úrbótum. Farþegi um borð segir fólk hafa orðið óttaslegið en sé komið með nóg af aðgerðarleysi. Innlent 12.3.2021 20:30
„Fólk var hrætt og það var sjóveikt“ Einar Sveinn Ólafsson starfandi verksmiðjustjóri hjá Íslenska kalkþörungafélaginu á Bíldudal er á meðal þeirra tuttugu farþega sem eru fastir um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri. Ferjan varð vélarvana mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms um hálf þrjú leytið í gær. Innlent 12.3.2021 10:42
Látrabjarg friðlýst Umhverfisráðherra skrifaði undir friðlýsingu Látrabjargs, eins stærsta fuglabjargs Evrópu í dag. Markmið friðlýsingarinnar er sagt að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla. Innlent 2.3.2021 18:50
Bændurnir selja beint frá býli til að styðja byggðina Nokkrir bændur á Barðaströnd hafa gripið til þess ráðs að koma á fót eigin matvælavinnslu og vinna sjálfir afurðir búa sinna heima á bæ. Með því að selja beint frá býli reyna þeir að treysta tekjurnar og þar með búsetuna. Innlent 28.2.2021 07:54