
Samgönguslys

Minntust fórnarlamba í umferðinni í skugga banaslyssins í gærkvöldi
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn í dag, 20. nóvember. Minningarathöfn hefst við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi klukkan 14 og verður sýnd beint á Vísi. Forseti Íslands og heilbrigðisráðherra flytja erindi og þá verður sögð reynslusaga af banaslysi sem varð fyrir þrjátíu árum.

Banaslysið setur svip sinn á minningardaginn
Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hópferðabifreið var ekið á hann á horni Barónsstígs og Grettisgötu í gærkvöldi. Sérfræðingur hjá Samgöngustofu segir að slysið muni lita dagskrá alþjóðlegs minningardags um fórnarlömb umferðarslysa sem fer fram í dag.

Banaslys á Barónsstíg
Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar hópferðabifreið var ekið á hann á horni Barónsstígs og Grettisgötu á níunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn var á rafhlaupahjóli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.

Alvarlegt slys á Barónsstíg: Ekið á vegfaranda á hlaupahjóli
Alvarlegt slys varð á Barónsstíg í miðbæ Reykjavíkur um klukkan átta í kvöld þegar ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli. Dælubíll slökkviliðs, sjúkrabíll og lögregla mættu á staðinn.

Leita að vitnum að slysinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun.

Ekið á gangandi vegfaranda við Kringlumýrarbraut
Ekið var á gangandi vegfarenda við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun. Ekki er vitað um líðan þess sem keyrt var á.

Ekið á gangandi og hjólandi í borginni
Í tvígang með skömmu millibili var ekið á gangandi og hjólandi vegfarendur í Reykjavík í morgun. Fyrst var bíl ekið á átta ára dreng þegar hann fór yfir gangbraut en um klukkutíma síðar var ekið á hjólreiðamann í Hlíðunum.

Ökumaður fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumann sem velti bíl sínum á Steingrímsfjarðarheiði á Vestfjörðum nú síðdegis til Reykjavíkur. Maðurinn var einn í bílnum.

Strætóbílstjórinn virti ekki biðskyldu í banaslysinu
Ökumaður strætisvagnsins virti ekki biðskyldu í banaslysi sem varð á gatnamótum Skeiðarvogs og Gnoðarvogs í nóvember í fyrra. Þetta er meðal niðurstaðna Rannsóknarnefnda samönguslysa sem birt hefur skýrslu sína um málið.

Vatnsþétting olli brotlendingu á Keflavíkurflugvelli
Vatn sem hafði safnast saman í eldsneytiskerfi flugvélar C-GWRJ olli því að hún brotlenti stuttu eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli. Vatn fannst í eldsneytissíu vélarinnar þegar hún var skoðuð eftir brotlendingu.

Aðgæsluleysi og vanræksla ástæða strandsins
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að ástæða þess að grænlenska fiskveiðiskipið Masilik strandaði í desember á síðasta ári hafi verið aðgæsluleysi og vanræksla við stjórn skipsins.

Sakaður um tryggingasvik en hafði betur og fær bætur
Ökumaður sem tryggingafélagið Vörður sakaði um tryggingasvindl, án árangurs, á rétt á greiðslu bóta úr slysatryggingu sem maðurinn var með hjá félaginu. Ökumaðurinn hafði betur gegn tryggingafélaginu í Landsrétti og í héraðsdómi.

Alvarlegt bílslys í Borgarfirði
Alvarlegt bílslys varð á sjöunda tímanum í kvöld norður af Barnafossi í Borgarfirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti einn slasaðan til Reykjavíkur á slysadeild.

Sýknuð af lyfjaakstri vegna ávísunar fra lækni
Kona hefur verið sýknuð af því að aka undir áhrifjum slævandi lyfja. Konan var sýknuð á þeim grundvelli að læknir hafði ávísað lyfinu, hún hafi byggt upp þol gagnvart því og að ósannað væri að konan hafi verið undir áhrifum umræddra lyfja við aksturinn.

Diplómatafrú viðurkenndi að hafa ekið á breskan pilt
Eiginkona bandarísks diplómata viðurkenndi að hún hefði orðið táningspilt að bana með því að aka bíl sínum ógætilega fyrir breskum dómstól í gær. Málið olli milliríkjadeilu á milli bandarískra og breskra stjórnvalda.

Hjólreiðamaður ekinn niður við Kringlumýrarbraut
Hjólreiðamaður var ekinn niður á fjölförnum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í morgunumferðinni. Ökumaður náði atvikinu á myndavél og vonast til að geta náð til hjólreiðamannsins sem hann vonar að hafi ekki orðið meint af.

Skipverjinn féll útbyrðis og drukknaði
Skipverji sem fannst látinn í sjónum við Sólfarið í Reykjavík féll frá borði báts síns og drukknaði. Umfangsmikil leit hófst að honum eftir að bátur hanns fannst mannlaus, strandaður við Engey.

Bíllinn hafnaði ofan í grýttri fjöru
Umferðarslys varð úti í Grímsey í gærkvöldi þegar bíll fór út af vegi við Grímseyjarhöfn. Bíllinn endaði ofan í grýttri fjöru en slæmt veður var á vettvangi.

Fluttur með sjúkrabíl eftir rafskútuslys
Einn varð fluttur með sjúkrabíl upp á bráðamóttöku í gærkvöldi eftir að hann lenti í umferðaróhappi á rafskútu í Grafarvogi. Maðurinn var illa áttaður aftir óhappið.

Einn fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur í Þrengslunum
Tveggja bíla árekstur varð í Þrengslum nú síðdegis og var einn einstaklingur var fluttur á sjúkrahús.

Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu
Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu.

Árekstur bíls og mótorhjóls við Hafnartorg
Hvít Tesla og mótorhjól lentu í árekstri við gatnamót Geirsgötu og Lækjartorgs upp úr klukkan tólf í dag. Bæði sjúkrabíll og lögreglubílar eru á svæðinu.

Óska eftir vitnum að umferðarslysi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á í gærmorgun. Ökumönnum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa er slysið varð.

Jökull strandaður í innsiglingunni á Raufarhöfn
Fiskiskipið Jökull SÞ strandaði í innsiglu á Raufarhöfn síðdegis í dag. Unnið er að því að draga skipið á flot.

Þjóðvegurinn lokaður við Núpsvötn vegna umferðarslyss
Þjóðveginum hefur verið lokað við Lómagnúp við Núpsvötn vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Alvarlegt bílslys á Suðurlandsbraut
Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar ofan við Laugardalinn í Reykjavík um klukkan hálf eitt í dag. Tveir voru inni í fólksbíl sem virðist hafa verið ekið upp á kant, á gönguljós og oltið með þeim afleiðingum að bíllinn er mikið skemmdur.

Í áttunda neðsta sæti yfir fjölda látinna í umferðinni
Ísland skipar nú áttunda neðsta sætið á lista yfir banaslysa í umferðinni í Evrópu eftir að hafa skipað það tíunda neðsta síðustu fjögur árin.

Var ekki í öryggisbelti þegar hann fór útaf veginum og lést
Ökumaðurinn sem lést þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á bröttum vegi nærri Látravík var ekki í öryggisbelti þegar slysið átti sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur leigubíls og strætisvagns
Einn var fluttur á slysadeild eftir að strætisvagn og leigubíll rákust saman á mótum Hringbrautar og Nauthólsvegar í morgun.

Allir farþegar slasaðir eftir harðan árekstur
Alvarlegt bílslys varð á Snæfellsvegi á þriðja tímanum í dag. Ásmundur Kr. Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir tvo bíla hafa lent saman, framan á hvor annan. Allir farþegar séu slasaðir.