
Bítið

„Það eru aðrir ráðherrar sem titra hérna í hnjánum“
Útsýnispallurinn á Bolafjalli var formlega vígður í morgun. Ríkisstjórnin var viðstödd vígsluna og ljóst er að sumir þeirra eru lofthræddari en aðrir.

Slær framboð til forseta ASÍ alveg út af borðinu
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ekki hafa neinn áhuga á bjóða sig fram í forsetaembætti ASÍ. Hún spyr af hverju stéttir verka- og láglaunafólks ættu að vera áfram innan vébanda ASÍ takist ekki að ná fram ákveðnum breytingum á sambandinu.

„Eiginlega alveg öruggt“ að gosinu sé lokið
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé eiginlega alveg öruggt að eldgosinu í Meradölum sé lokið.

Lamaðist eftir bílslys og missti manninn sinn á sama ári
Elínborg Steinunnardóttir lamaðist á vinstri hlið líkamans eftir alvarlegt bílslys árið 2020. Í maí sama ár greindist eiginmaður hennar, Þröstur Ingimarsson, með heilaæxli. Hann lést aðeins hálfu ári síðar, á meðan Elínborg lá enn inni á sjúkrahúsi.

Aðgerðir gegn verðbólgunni verri en verðbólgan sjálf
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgunni verri fyrir heimilin en verðbólgan sjálf. Grípa þurfi til róttækra aðgerða til þess að verja heimilin.

Dæmi um að ferðamenn gangi af sér skóna
Frá því að eldgosið í Meradölum hófst eru dæmi um að björgunarsveitir hafi þurft að skutla ferðamönnum til baka vegna þess að ekkert er eftir af skóbúnaði þeirra. Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar biðlar til þeirra sem ætla að ganga að gosinu að undirbúa sig vel.

Vinna við erfiðasta kaflann á vinsælustu gönguleiðinni hefst í dag
Í dag er áætlað að unnið verði að því að lagfæra erfiðasta kaflann á svokallaðri A-gönguleið að eldgosinu í Meradölum.

Eldgos gæti tekið af okkur báða vegina til Suðurnesja
Eldfjallafræðingur segir það vera skynsamlegt að byggja annan alþjóðaflugvöll fjarri Keflavíkurflugvelli. Það gæti gerst að eldgos taki af okkur bæði Suðurstrandarveg og Reykjanesbrautina þannig að engin leið sé fyrir bílaumferð til og frá Reykjanesi.

Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi
Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum.

Tímaspursmál hvenær moskítóflugan nái hér fótfestu
Mjög ör breyting hefur verið á skordýraflóru Íslands seinustu áratugi og hefur tegundum fjölgað um 300 til 400 hér á landi seinustu áratugi. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, segir einungis tímaspursmál hvenær moskítóflugur ná fótfestu hér og lifi góðu lífi á Íslandi.

Vara við óþarfa ferðum um Krýsuvíkurbjarg í skjálftahrinum
Stórar sprungur eru í Krýsuvíkurbjargi vegna stöðugrar hreyfingar sem bjargið er á. Sprungurnar hafa dýpkað talsvert undanfarin ár vegna jarðskjálftahrina. Fólk er varað við því að fara út á bjargbrúnina, sérstaklega þegar jarðskjálftahrinur ganga yfir.

Vildi vera krúttlegur teppalistamaður en endaði sem stríðsljósmyndari
Óskar Hallgrímsson segist lifa tvöföldu lífi, annars vegar búi hann til krúttleg teppalistaverk ásamt eiginkonu sinni og hins vegar sé hann ljósmyndari á stríðshrjáðu svæði.

Til mikils að vinna slái maður ekki garðinn sinn
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur mætti í Bítið til að ræða um Villigarðahreyfinguna sem hefur talað fyrir því að fólk slái ekki garða sína og hvað maður gæti grætt á að leyfa garðinum að vaxa villtum. Hún segir að slái maður ekki garðinn sinn geti ýmsar skemmtilegar plöntur farið að vaxa auk þess sem það viðhaldi líffræðilegum fjölbreytileika.

Ófremdarástandið gæti varað fram á haust
Ófremdarástandið sem ríkir á flugvöllum víða í Evrópu gæti varað fram á haust að sögn forstjóra þýska flugfélagsins Lufthansa því erfitt hefur reynst að manna stöður eftir faraldurinn. Ritstjóri Túrista segir að það sé ekki skynsamlegt að bóka tengiflug í sumar því viðbúið sé að miklar breytingar verði á flugáætlunum.

Segir skipta höfuðmáli að lögfesta Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir það algjört grundvallaratriði í sínum huga að vinna að því að gera kerfið betra. „Við þurfum að vinna á öllum þeim áskorunum sem koma upp og ekki síst þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks.“

Bjartsýn á að komast í höfn
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir vandasama siglingu fram undan varðandi hagstjórnina enda hafi landsmenn ekki séð aðrar eins verðbólgutölur í langan tíma.

Gefast upp á erfiðum markaðsaðstæðum og selja bruggverksmiðju
Eigendur brugghússins Steðja hafa ákveðið að selja allar sínar bruggræjur og hætta starfsemi sinni. Annar eigandinn segir að greiða þurfi fyrir að koma áfengi í hillur ÁTVR.

Rangt að leggja umræðuna upp að sveitarstjórar séu afætur á íslensku samfélagi
Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að laun sveitarstjóra í landinu skeri sig ekki úr þegar litið er til launa stjórnenda í millistórum fyrirtækjum. Hún segir rangt að leggja umræðuna upp á þann veg að sveitarstjórar séu verklausir og afætur á íslensku samfélagi. Það sé alls ekki raunin.

Selja húfu til styrktar ungu fólki sem glímir við ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferðar
Góðgerðafélagið Lífskraftur hefur sölu á Lífskraftshúfum í samstarfi við 66° norður til stuðnings fjölskyldum og einstaklingum sem glíma við krabbamein og ófrjósemi í kjölfar krabbameinsmeðferðar.

Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum.

Ekki nema nokkrir áratugir þar til jöklarnir hverfa
Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur, telur að ef fram haldi sem horfir muni Snæfellsjökull hverfa að fullu á næstu nokkrum áratugum. Að óbreyttum útblæstri munu í raun allir jöklar hverfa á næstu áratugum en þó sé hægt að hægja verulega á þróuninni með minni hlýnun, að sögn Guðfinnu.

Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu
Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis.

Óskynsamlegt að gera kröfu um borgarstjórastólinn þrátt fyrir ákall grasrótarinnar
Grasrót Framsóknarflokksins í Reykjavík kallar eftir því að gerð verði skýlaus krafa borgarstjórastólinn allt næsta kjörtímabil fari flokkurinn í formlegar meirihlutaviðræður við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn. Einar Oddviti Framsóknar telur þó óskynsamlegt að setja fram afarkosti áður en viðræður hefjast.

„Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt“
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði nýverið fram frumvarp til breytinga á löggjöf um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks í kringum tæknifrjóvganir ásamt auknu frelsi og trausti til handa tilvonandi foreldrum sem þurfa að nýta sér tæknifrjóvgun.

Dagur hefur ekki svarað símtölum Hildar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ekki svarað símtölum Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segist hafa rætt við alla oddvitana í borginni eftir kosningar, utan tveggja.

Borgarstjóri segir önnur sveitarfélög hafa brugðist í húsnæðiskrísunni
Fyrirliggjandi er að helstu mál fyrir sveitarstjórnarkosningar á morgun hvað Reykjavíkurborg varðar er tvö: Húsnæðismál og samgöngumál. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ábyrgð annarra sveitarfélaga mikla því þau hafi látið Reykjavík draga þann vagn eina að byggja fyrir hina tekjulægstu.

Ekki sérlega smeykur við ný afbrigði veirunnar
Sóttvarnalæknir segist ekki hafa of miklar áhyggjur af nýjum afbrigðum kórónuveirunnar. Nýtt undirafbrigði omikronafbrigðisins þykir meira smitandi en önnur en óljóst er hvort það valdi alvarlegri veikindum.

Guðni Th. um aðstöðuleysi á Íslandi: „Þjóðarhöll stendur ekki undir nafni ef hana má ekki nota“
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti í Bítið á Bylgjunni til að ræða stöðu þjóðarleikvanga Íslands í boltaíþróttum. Hann vill nýja þjóðarhöll hið fyrsta.

„Við erum komin inn í gostímabil“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að talsverðar líkur séu á öðru gosi á Reykjanesskaga „á næstunni“. „Við erum komin inn í gostímabil. Það er nokkuð ljóst að á tiltölulega stuttum tímaskala þá fáum við annað gos. Spurningin er hvort það gerist á morgun, eftir ár, eða eftir tíu ár.“

Bjarna kom í opna skjöldu að pabbi hans væri meðal kaupenda
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að sér hafi komið í opna skjöldu að faðir hans, Benedikt Sveinsson fjárfestir, hafi verið meðal kaupenda í útboði á hlutum Íslandsbanka nú á dögunum.