
Þýski handboltinn

Andri Már markahæstur í svekkjandi tapi
Andri Már Rúnarsson var markahæsti leikmaður Leipzig í 24-23 tapi á útivelli gegn Burgdorf í átjándu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Þýski handboltinn hafinn aftur eftir HM: Elvar og félagar héldu uppteknum hætti
Þýska úrvalsdeildin í handbolta er hafin aftur eftir hlé vegna heimsmeistaramótsins. Þrír leikir fóru fram í dag og Íslendingar tóku þátt í þeim öllum.

Meiddist á HM og missir af næstu leikjum
Viggó Kristjánsson meiddist lítillega í hné á HM og þarf að bíða um stund eftir frumraun sinni með Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Forsetinn beinskeyttur aðspurður um framtíð Alfreðs í starfi
Forseti þýska handknattleikssambandsins hefur tekið allan vafa varðandi framtíð Alfreðs Gíslasonar í starfi landsliðsþjálfara þýska karlalandsliðsins. Alfreð er þeirra maður.

Sigurganga Metzingen stöðvuð í Íslendingaslag
Eftir fjóra sigurleiki í röð máttu Sandra Erlingsdóttir og stöllur hennar í Metzingen þola 11 marka tap gegn Íslendingaliði Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Svarar Óla Stef: „Er alveg sammála honum“
Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson kippir sér ekki mikið upp við það að Ólafur Stefánsson hristi hausinn yfir nýlegum skiptum hans til Erlangen í Þýskalandi.

Grjóthörð Díana spilaði ristarbrotin
Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handbolta, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa ristarbrotnað í leik með HSG Blomberg-Lippe í Evrópudeildinni. Hún spilaði seinni hálfleikinn ristarbrotin.

Óli Stef botnar ekkert í félagaskiptum Viggós: „Galin skipti“
Félagaskipti Viggós Kristjánssonar, landsliðsmanns í handbolta, frá Leipzig til Erlangen vöktu talsverða athygli enda er Erlangen í harðri fallbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni. Ólafur Stefánsson botnar allavega ekkert í skiptunum.

Sandra og félagar sterkari á taugum í lokin
Íslenska landsliðskonan Sandra Erlingsdóttir er að koma til baka eftir barnsburð og hjálpaði sínu liði að vinna flottan útisigur í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum
Díana Dögg Magnúsdóttir og félagar hennar í Blomberg-Lippe unnu öruggan heimasigur í þýsku deildinni í kvöld.

„Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“
Viggó Kristjánsson verður í burðarhlutverki í íslenska landsliðinu á komandi heimsmeistaramóti í ljósi fjarveru Ómars Inga Magnússonar og í aðdraganda mótsins hefur mikið gengið á.

Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu
Elvar Örn Jónsson, einn af burðarásum íslenska handboltalandsliðsins, vonast til þess að geta brátt tekið fullan þátt í lokaundirbúningnum fyrir HM. Hann er á toppi þýsku 1. deildarinnar með liði sínu Melsungen.

Díana Dögg öflug í sigri
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik þegar Blomberg-Lippe vann átta marka sigur á Göppingen í efstu deild kvenna í þýska handboltanum, lokatölur 34-22. Þá skoraði Sandra Erlingsdóttir eitt mark í tíu marka útisigri Metzingen á Bensheim-Auerbach.

Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“
Hryðjuverkin á jólamarkað í Magdeburg, þar sem að fimm manns létu lífið og um tvö hundruð særðust, snertu íslenska landsliðsmanninn Gísla Þorgeir Kristjánsson sem leikur með handboltaliði bæjarins djúpt. Gísli Þorgeir er nú mættur til móts við íslenska landsliðið sem undirbýr sig af krafti fyrir komandi heimsmeistaramót.

Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Þýskalandi
Íslendingaliðin Metzingen og Blomberg-Lippe áttu misjöfnu gengi að fagna í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi
Íslendingaliðin Metzingen og Blomberg-Lippe máttu þola töp er liðin mættu til leiks í þýska handboltanum í kvöld.

Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag
Íslendingalið MT Melsungen trónir enn á toppi þýsku deildarinnar í handbolta eftir fjögurra marka sigur í Íslendingaslag gegn Göppingen í kvöld, 25-29.

Viggó færir sig um set á nýju ári
Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson mun yfirgefa DHfK Leipzig yfir til HC Erlangen þegar nýtt ár gengur í garð.

Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu
Melsungen er í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir 31-23 sigur í toppslag gegn Burgdorf.

Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg
Þýska handknattleiksdeildin hefur nú samþykkt að heimaleik Magdeburgar við Erlangen, sem fara átti fram annan í jólum, verði frestað um ótilgreindan tíma vegna grimmdarverkanna á jólamarkaðnum í Magdeburg.

Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna
Íslendingaliðið MT Melsungen hefur átt frábært tímabil í þýska handboltanum og er á toppi deildarinnar eftir fimmtán leiki.

Arnór frá Gumma til Arnórs
Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson hefur ekki fengið að spila eins mikið og hann vildi í Danmörku á sinni fyrstu leiktíð í atvinnumennsku, og flytur nú til Þýskalands en mun áfram leika undir stjórn Íslendings.

Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit
Melsungen varð síðasta liðið til að tryggja sig áfram í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í handbolta, með 30-28 sigri gegn Flensburg í átta liða úrslitum.

Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni
Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummerbach eru úr leik í þýsku bikarkeppninni í handbolta eftir 36-33 tap á útivelli gegn Kiel í átta liða úrslitum.

Toppliðið keyrði yfir lærisveina Guðjóns Vals í lokin
Melsungen hélt toppsætinu eftir fimm marka útisigur í Íslendingaslag í þýsku handboltadeildinni í kvöld.

Gísli og félagar gerðu ljónin að kisum
Landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ýmir Örn Gíslason fögnuðu báðir sigri í dag í þýsku 1. deildinni í handbolta.

Spenna hjá lærisveinum Rúnars gegn Kiel
Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum í danska og þýska handboltanum í dag. Guðmundur Guðmundsson og lið hans Fredericia stóð í ströngu í toppslag gegn Álaborg.

Guðjónssveinar réðu ekkert við Ómarslaust lið Magdeburgar
Íslendingalið voru í eldlínunni í þýska handboltanum i kvöld þar sem Melsungen styrkti stöðu sína í toppsætinu og Magdeburg hafði betur í Íslendingaslag á móti Gummersbach.

Guðjón Valur búinn að fá nóg af svikahröppum
Íslenska handboltagoðsögnin Guðjón Valur Sigurðsson, núverandi þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Gummersbach er allt annað en sáttur með svikahrapp sem siglir undir fölsku flaggi, þykist vera Guðjón Valur á samfélagsmiðlum og hefur verið að svíkja peninga af fólki.

Guðjón stýrði til sigurs en svekkjandi tap hjá lærisveinum Rúnars
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach eru snúnir aftur á sigurbraut. Lærisveinar Rúnars Sigtryggsonar í Leipzig þurftu hins vegar að sætta sig við svekkjandi tap í þrettándu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.