
Fjölskyldumál

Yngri en átján mega ekki lengur gifta sig
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum var nýlega samþykkt á Alþingi. Með frumvarpinu er undanþáguheimild dómsmálaráðuneytisins til að veita fólki yngra en átján ára leyfi til að ganga í hjúskap afnumin.

Lágmarksinntak sáttameðferðar barnalaga
Árið 2012 var barnalögum breytt og skylda foreldra til þess að leita sátta var bundin í lög áður en mál væri höfðað um forræði, lögheimili o.fl. Síðan þá hefur oft reynt á inntak sáttameðferðar og gildi sáttavottorða sem gefin eru út í lok hennar. Hafa dómstólar skorið úr um hvernig túlka beri ákvæði barnalaga um þetta atriði.

Vildi að bann yrði lagt við bólusetningu barns síns
Heilbrigðisráðuneytið hefur vísað frá kæru móður sem hafði áður krafist þess af landlæknisembættinu að bann yrði lagt við bólusetningu barns hennar gegn Covid-19. Ráðuneytið taldi að ákvörðun embættisins væri ekki stjórnvaldsákvörðun, og því ekki kæranleg til ráðuneytisins.

Frænka situr uppi með kostnaðinn eftir deilur um faðerni
Kona nokkur hefur verið dæmd til að greiða ekkju bróður síns og syni hans málskostnað og kærumálskostnað vegna faðernismáls sem hún höfðaði eftir að bróðir hennar féll óvænt frá. Dómur var kveðinn upp í Landsrétti á dögunum.

Sjaldan býr einn þá tveir deila
Hópbúseta, þegar margir aðilar sem eru ekki endilega tengdir fjölskylduböndum deila heimili að einhverju eða öllu leyti, hefur marga kosti fram yfir hefðbundna einangraða búsetu. Hún auðveldar fólki að deila kostnaði og eykur möguleika á samvinnu og félagslegum tengslum.

„Hjónabandið okkar, eftir að við opnuðum sambandið, hefur orðið hundrað sinnum betra“
„Það er ekki óheiðarleiki að eiga fleiri en einn maka ef allir eru samþykkir og meðvitaðir um það,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir í viðtali við Stöð 2. Sá hópur sem kýs að vera í upplýstum ástarsamböndum við fleiri en einn aðila í einu fer stækkandi hér á landi.

Lágar álögur. Líka fyrir barnafjölskyldur
Í Garðabæ eru leikskólagjöld ein þau hæstu á öllu landinu, þó svo að útsvarsprósentan sé ein sú lægsta. Foreldrar með barn á leikskóla í Garðabæ borga í ár rúmlega 126.000 kr. meira á ári en foreldrar í Reykjavík, ef barnið dvelur í 8 klst. á dag og fær fæði.

Dómsmálaráðuneytið skoðar tillögur um breytt verklag í forræðismálum
Félagasamtökin Líf án ofbeldis funduðu með Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra síðastliðinn föstudag þar sem þau kynntu fyrir honum tillögur að breytingu á verklagi sem samtökin telja að yrðu til bóta fyrir stöðu brotaþola ofbeldis í fjölskyldum í málsmeðferð hjá sýslumanni.

Má foreldri afþakka gagnslausa sáttameðferð
Samkvæmt barnalögum þurfa allir foreldrar sem skilja að gangast undir sáttameðferð hjá sýslumanni í því skyni að láta á það reyna að ná sátt um málefni er varða börnin; forræði, lögheimili o.fl. Þetta gildir líka um ógifta foreldra þar sem gangast þarf undir sáttameðferð áður en mál er höfðað um forræði, lögheimili, umgengni og meðlag.

„Hann deyr á meðan ég er bókstaflega í flugvélinni“
Á feðradaginn fyrir skemmstu hefði Sverrir Rolf Sander viljað geta hringt í föður sinn og sagt honum frá því að hann væri búinn að finna dóttur hans, sem sagt hálfsystur Sverris. En faðir Sverris lést skyndilega árið 2011 og næsta áratug varði Sverrir í að finna systur sína, sem tókst loks síðasta sumar.

„Eini staðurinn sem var tilbúinn að gefa þeim tækifæri“
Fyrir rétt tæpum tíu árum greindust bræðurnir Baldvin Týr og Baldur Ari með ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóm með aðeins viku millibili, þá tveggja og þriggja ára. Sjúkdómurinn heitir Duchenne og leggst eingöngu á drengi.

Samdi lag um tilfinningaþrungið ættleiðingarferli
Selma Hafsteinsdóttir tónlistarmaður samdi lagið Heim en það fjallar um það þegar hún og eiginmaður hennar ættleiddu son sinn frá Tékklandi. Lagið er þannig um móðurástina og sameiningu sonar og fjölskyldu.

Ágreiningur í samböndum eftir barneignir er oft tengdur kynlífi
Theodor Francis Birgisson er klínískur félags- og fjölskylduráðgjafi og segir breytingarnar sem fylgja barneignum oft koma nýjum foreldrum á óvart. Hann kom í Bítið í morgun til þess að ræða breytingarnar sem sambandið og einstaklingarnir geta upplifað.

Finnur ekki eiginkonuna og krefst skilnaðar
Íslenskur karlmaður segist ekki hafa hitt eiginkonu sína í sextán ár og krefst því skilnaðar. Stefnan var nýlega birt í Lögbirtingablaðinu enda hefur manninum ekki tekist að hafa uppi á eiginkonunni til að birta henni stefnuna með hefðbundnum hætti.

Góð ráð fyrir vinnualka sem kvíðir fyrir jólunum
Jafn dásamleg og jólin eru fyrir flesta þá er ákveðinn hópur af starfsfólki sem á svolítið erfitt með þennan tíma: Vinnualkar.

Vilja fá óháðan aðila til að taka út veitingu undanþága
Þingmenn Pírata og Flokks fólksins hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá innanríkisráðherra um undanþágur frá aldursákvæði hjúskaparlaga. Beiðnin varðar heimild til barna yngri en 18 ára til að ganga í hjónaband.

Meirihluti segir áfengisneyslu vandamál í sambandinu
„Þetta er alltaf spurning um það hver er við stjórn, er það einstaklingurinn sem er að neyta áfengis eða er það áfengið og áhrifin sem stjórna einstaklingnum?“ segir Guðrún Magnúsdóttir fíknifræðingur í viðtali við Makamál.

„Vorum alltaf meiri vinir heldur en par“
Skiptir máli hvernig fólk skilur, hver eru líklegustu vandamálin, hefur skilnaður áhrif á börn og þá hversu mikil?

Óttast föður sinn sem eltir þær á röndum
Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. desember. Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Karlmaðurinn sætir ákæru fyrir fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fjórum dætrum sínum og fyrrum eiginkonu.

Hvað finnst þér um kaupmála við giftingu?
„Þar til dauðinn aðskilur okkur. En ef ekki..... þá er ég hér með smá pappíra fyrir þig að undirrita ástin mín.“

Góð erfðaskrá er gulls ígildi
„Eitt sinn verða allir menn að deyja“. Þessi óhjákvæmilega staðreynd mannlegrar tilveru var gerð ódauðleg í flutningi Vilhjálms Vilhjálmssonar á meistaraverki Jóhanns Helgasonar.

Fimm hundruð milljóna króna deila í óvígðri sambúð
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir fjárslitamál á milli tveggja einstaklinga í óvígðri sambúð, þar sem meðal annars er tekist á um hvort að annar aðilinn hafi átt hálfan milljarð á erlendum bankareikningum.

Rikka og Kári gengin í það heilaga
Athafnakonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, og Kári Guðjón Hallgrímsson, stjórnandi á skuldabréfasviði á fjárfestingabankans JP Morgan í London, giftu sig í byrjun október.

Manuela sýknuð þriðja sinni og nú í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm í máli ákæruvaldsins á hendur Manuelu Ósk Harðardóttur sem gefið var að sök að hafa svipt barnsfeður sína tvo valdi og umsjón með börnum þeirra. Kom meðal annars fram í dómi Hæstaréttar að réttur foreldris með lögheimili barnanna væri ríkari til að taka ákvarðanir um málefni þess.

Bein útsending: Alþjóðlegur dagur barna í sorg
18. nóvember er alþjóðlegur dagur barna í sorg. Örninn, minningar- og styrktarsjóður, ætlar að standa fyrir vitundarvakningu um þarfir syrgjandi barna af því tilefni.

Fósturforeldrar segja tilfærslu málefna fatlaðra hafa verið mikil mistök
Fósturforeldrar á Selfossi segja að það hafi verið mikil mistök að færa málefni fatlaðra frá ríkinu til sveitarfélaga því málaflokkurinn sé í algjörum ólestri hjá sveitarfélögum. Þau eru með tvo tvítuga stráka í fóstri, sem komast hvorki inn á heimili á Selfossi eða á Sólheimum og þar með sé brotið á rétti þeirra.

Marta María orðin Winkel
Blaðamaðurinn Marta María sem löngu er orðin landsþekkt fyrir skrif sín í Smartlandi um fræga fólkið hefur tekið upp eftirnafn eiginmanns síns, Páls Winkel.

Næturtryllingur: Foreldrar geti upplifað börn sín eins og andsetin
„Algengt er að börnin annaðhvort setjist upp eða stökkvi úr rúminu í geðshræringu. Andlitstjáning sýnir gjarnan mikla hræðslu og þau öskra oft,“ segir Erla Björnsdóttir í viðtali við Vísi.

Fæðingarsprengja hjá Íslendingum
Alls fæddust 1310 börn í júlí, ágúst og september árið 2021. Fæðingar á einum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá því byrjað var að taka tölurnar saman ársfjórðungslega árið 2010. Mun færri féllu frá á sama tímabili eða 580 einstaklingar.

Draumur vina um að eignast saman barn orðinn að veruleika
Vinirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson tóku þá ákvörðun árið 2019 að eignast saman barn. Nú hefur draumur þeirra ræst.