Viðskipti

Fréttamynd

Hlutafjáraukning og kaup

Actavis hyggur á hlutafjárhækkun að markaðsvirði um 30 milljarða króna samhliða skráningu í London, samkvæmt frétt sem birtist á vef Financial Times. Í fréttinni er fjallað um fyrirhugaða skráningu Actavis í kauphöllinni í London. Félagið hefur ekki sent frá sér tilkynningar um hlutafjárhækkun né heldur um tímasetningu skráningar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Baugur verður stærsti hluthafinn

Múli ehf. og Vogabakki ehf. hafa selt 55% hlut sinn í Húsasmiðjunni. Kaupandi hlutarins er Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar sem er að stórum hluta í eigu Baugs Group. Á næstu dögum verður gengið frá endanlegum hluthafalista eignarhaldsfélagsins en gert er ráð fyrir að Baugur Group verði stærsti hluthafinn. Árni Hauksson mun í kjölfarið hætta sem forstjóri fyrirtækisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrsta sérsmíðin fyrir Samskip

Nýtt Arnarfell var tekið í notkun um helgina og innan tíðar verður systurskipið Helgafell komið í þjónustu félagsins. Samskip leigir skipin en þau eru byggð samkvæmt forskrift félagsins. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Straums undir væntingum

Hagnaður fjárfestingarbankans Straums nam um 127 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Það er langt undir væntingum greiningardeildar Íslandsbanka sem spáð hafði ríflega eitt þúsund milljón króna hagnaði af ársfjórðungnum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að gengishagnaður reyndist mun minni en reiknað hafði verið með.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Brunabótamatið ónothæft

Brunbótamat er ónothæfur grundvöllur til að ákvarða veðhæfni eigna. Því ber að breyta strax og miða lánveitingar við kaupverð eigna, að mati Jónnu Sigurðardóttur þingmanns Samfylkingarinnar. Jóhanna ritar um málið á heimasíðu sinni og segir að vegna misræmis brunabótamats og kaupverðs hafi rýmkaðir lánamöguleikar Íbúðalánasjóðs ekki hafa nýst sem skyldi.

Innlent
Fréttamynd

Landsbankinn með útibú á Englandi

Landsbankinn hefur sent tilkynningu til Fjármáleftirlitsins þess efnis að bankinn hafi ákveðið að stofna útibú á Englandi. Landsbankinn tók þessa ákvörðun þar sem bein þjónusta bankans á Englandi hefur stóraukist og gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram samkvæmt tilkynningu á vef Kauphallar Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýr framkvæmdastjóri Marel UK

Magnús Ólason verkfræðingur hefur tekið við framkvæmdastjórn Marel UK í Bretlandi af Halldóri Magnússyni sem snýr til höfuðstöðva Marels og tekur við viðskiptaþróun á Asíumarkaði. Magnús hefur starfað sem tæknistjóri hjá Marel UK frá stofnun þess 1998 en fyrir þann tíma starfaði hann við höfuðstöðvar fyrirtækisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engin lognmolla framundan

Sigurður Helgason lætur af störfum sem forstjóri Flugleiða í lok maí. Þá mun hann hafa setið í forstjórastóli Flugleiða í tuttugu ár. Í tilkynningu frá Flugleiðum kemur fram að Sigurður hafi kynnt stjórn félagsins ákvörðun sína á stjórnarfndi í gærmorgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Darraðardans dollarans

Bandaríkjadalur er lítils metinn á gjaldeyrismörkuðum þessa dagana á meðan gengi krónunnar er svimandi hátt. Hvorugt er gott, að mati þriggja sérfróðra reynslubolta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Telur Símann tilbúinn til sölu

Klaus Dieter Schuerle sem tók þátt í einkavæðingu þýska ríkissímafyrirtækisins Deutsche Telekom telur miklu skipta að verkferlar og markmið í aðdraganda einkavæðingar séu skýr. Hann segir að langur undirbúningstími sé hins vegar ekki endilega heppilegur. Schuerle ræddi um einkavæðingu Deutsche Telekom á fundi Þýsk-íslenska verslunarfélagsins og Verslunarráðs Íslands í gær

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stórt útboð Íslandsbanka

Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf á alþjóðamarkaði að fjárhæð 450 milljónir evra eða jafngildi rúmlega 37 milljarða króna. Þetta er stærsta skuldabréfaútgáfa Íslandsbanka til þessa. Skuldabréfin eru til fimm ára og eru gefin út undir EMTN rammasamningi bankans um alþjóðlega skuldabréfaútgáfu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hættir starfsemi í Lettlandi

Undirritaður hefur verið samningur um sölu á dótturfyrirtæki Granda, SIA Baltic Seafood í Lettlandi, <span class="GramE">sem</span> rekið hefur verið með tapi. <span class="GramE">Þar með hefur félagið hætt allri starfsemi í Lettlandi.</span> Grandi gerði einnig samning við KB banka í dag um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

400 milljóna tap á laxeldi

Útvegsfyrirtækið Samherji á Akureyri tapaði u.þ.b. fjögur hundruð milljónum króna á laxeldi í fyrra að því er Intra Fish greinir frá. Fyrirtækið rekur umfangsmikið sjókvíaeldi í Mjóafirði og hefur þurft að glíma við ýmis konar óvænta byrjunarörðugleika.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verðbólgan að sprengja þolmörkin

Verðbólgan er hærri en búist var við og er komin í þolmörk markmiðs Seðlabankans. Miklar líkur á að forsendur kjarasamninga bresti að mati ASÍ sem gagnrýnir að opinberir aðilar hækki gjaldskrár við þessar kringumstæður. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í sjónvarpsrekstur á Norðurlöndum

Sigurjón Sighvatsson, Björn Steinbekk Kristjánsson og fleiri íslenskir fjárfestar hefja á næstunni sjónvarpsrekstur á hinum Norðurlöndunum. Stefnt er að því að sjónvarpsstöðin Big TV nái til átta milljón norrænna heimila fyrir lok næsta árs.

Lífið
Fréttamynd

Minni viðskiptahalli

Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans segir viðskiptahallann fyrstu níu mánuði síðasta árs minni en búist var við. Skýringin er hugsanlega sú að fólk er ekki bara að eyða í neyslu heldur í húsnæði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íbúðalánasjóður vill fleiri lóðir

Með því að auka lóðaframboð geta sveitarfélögin, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, minnkað þrýstinginn sem verið hefur á fasteignaverð. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bretar treysta íslenskum víkingum

Bretar hafa ákveðna tilhneigingu til að treysta ljóshærðum og bláeygðum eyjaskeggjum úr norðri segir Howard Davies, rektor London School of Economics, í tengslum við innrás íslenskra víkinga í breskt viðskiptalíf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Viðskiptahallinn eykst enn

Viðskiptahalli hefur farið vaxandi síðustu misserin samhliða aukinni fjárfestingu og einkaneyslu. Flest bendir til þess að hallinn muni verða enn meiri í ár samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Meðal heimsleiðtoga

Björgólfi Thor Björgólfssyni, athafnamanni og stjórnarformanni Burðaráss og Actavis, hefur verið boðið að taka þátt í verkefni á vegum World Economic Forum. Hann er einn af 237 einstaklingum sem kallaðir eru til þátttöku í verkefninu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

OR gæti hagnast um tvo milljarða

Orkuveita Reykjavíkur gæti hagnast um hátt í tvo milljarða með því að selja húsnæði nýju höfuðstöðvanna við Réttarháls og taka það aftur á leigu. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, staðfestir í viðtali við fréttastofuna að stórir fjárfestar hafi sýnt húsinu áhuga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkharð í stað Gunnars Smára

Á hluthafafundi Norðurljósa í morgun var staðfestur aðskilnaður sem hefur orðið á milli félagsins og Íslenska útvarpsfélagsins, sem rekur meðal annars Stöð 2 og Bylgjuna, og Fréttar, sem gefur út Fréttablaðið og DV, en Og Vodafone hefur keypt þessi fyrirtæki. Ríkharð Ottó Ríkharðsson var ráðinn framkvæmdastjóri Norðurljósa í stað Gunnars Smára Egilssonar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Siðferðið betra en í stjórnmálum

Hagsmunaárekstrar eru algengir í íslensku viðskiptalífi að mati stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Siðferði í viðskiptum hefur þó batnað undanfarin ár og er betra en siðferðið í stjórnmálum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

1,5 milljarða samdráttur hjá SÍ

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands nam 65,6 milljörðum króna í lok desember og dróst saman um tæplega 1,5 milljarða króna frá því í nóvember. Samkvæmt hálffimmfréttum KB banka má rekja lækkunina til 4,4% gengisstyrkingu íslensku krónunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjárfestar undirbúa kaup á Símanum

Enda þótt enginn hafi formlega lýst yfir áhuga á að kaupa Símann, þá eru margir að skoða verkefnið af alvöru. Hugsanlegt er að danska fyrirtækið TDC sem áður var ríkisfyrirtækið Tele Danmark, muni koma að hópi sem hyggst taka þátt í einkavæðingu Símans. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eignarhlutur M-Holding 94,4%

Gengi bréfa í yfirtökutilboði M-Holding ehf., félags í eigu Baugs Group, Straums Fjárfestingarbanka og B2B Holding, í Magasin du Nord var 162,5 danskar krónur á hvern hlut, eða tæplega 1822 íslenskar krónur. M-Holding á 80,9% hlutafjár félagsins en hefur jafnframt tryggt sér kauprétt á 13,5% hlut Magasin du Nord Fond.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leynd skaðleg í viðskiptum

Leynd er alltaf á endanum skaðleg segir Howard Davies, fyrrverandi forstöðumaður breska fjármálaeftirlitsins, sem telur mikilvægt að gagnsæi ríki um eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Í sama streng tekur Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka.

Viðskipti innlent