
Bílaleigur

2.050 krónur fyrir fjörutíu mínútna verslunarferð í IKEA á nýjum deilibíl
Tíu deilibílar frá rafskútuleigunni Hopp verða teknir í gagnið á höfuðborgarsvæðinu í dag. Framkvæmdastjóri Hopps segir deilibílana frábrugðna öðrum sambærilegum lausnum sem þegar eru í boði og óttast hvorki samkeppni né skort á eftirspurn.

Rannsókn á Procar-málinu að ljúka
Rannsókn á Procar-málinu svokallaða er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara í kjölfarið samkvæmt upplýsingum frá Héraðssaksóknara.

Ýmsum ráðum beitt til að tryggja viðskiptavinum bílaleigubíla
Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir sumarið hafa verið framar vonum í útleigu bíla. Eftirspurnin hefur verið svo svo mikil að grípa hefur þurft til ýmissa ráða til að redda bílum fyrir viðskiptavini.

Tekinn undir áhrifum, án réttinda og á stolnum bílaleigubíl
Lögregla á Suðurnesjum handtók fyrr í vikunni ökumann sem reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, án ökuréttinda auk þess sem hann ók stolnum bílaleigubíl.

Færa íslenska lagalista í bílaleigubíla
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) hefur ráðist í viðamikið verkefni í samstarfi við tónlistarmanninn Svavar Knút og íslenskar bílaleigur til að kynna erlenda ferðamenn hér á landi fyrir íslenskri tónlist.

Bílaleigubílar þrefaldast í verði: „Þetta er bara lögmálið um framboð og eftirspurn“
Dæmi eru um verð á bílaleigubílum hafi meira en þrefaldast frá því í desember en fjölmargir ferðamenn hafa gripið í tómt undanfarna daga. Mikil umframeftirspurn er eftir bílaleigubílum og er útlit fyrir að bílaleigur verði nærri uppseldar fram í ágúst.

Hrakfarasögur ferðamanna rifjaðar upp
Netverjar hafa farið að rifja upp hrakfarasögur ferðamanna sem komið hafa hingað til lands og í þann krappan á ferð um landið.

Hvetur fólk til að fórna bílnum sínum í þágu ferðaþjónustunnar
Örtröð hefur myndast á Keflavíkurflugvelli síðustu daga og greinilegt að aukið líf er nú að færast í ferðaþjónustuna. Nú er svo komið að bílaleigur eiga í stökustu vandræðum með að anna eftirspurn en að sögn Samtaka ferðaþjónustunnar eru bílaleigubílar nánast uppseldir á Íslandi út ágústmánuð.

Ljónheppinn að fá bílaleigubíl
Örtröð hefur verið á Keflavíkurflugvelli undanfarna daga, bæði við komuna til landsins og einnig í röðinni á leiðinni út. Í dag fóru tæplega 100 flugvélar um völlinn. Þrátt fyrir að bið geti verið nokkur við komuna til landsins báru ferðamenn sem fréttastofa ræddi við í dag öllum aðbúnaði á flugvellinum vel söguna.

830 milljóna króna gjaldþrot bílaleigu
Skiptum á þrotabúi bílaleigunnar GK-ACR ehf. er lokið en lýstum kröfum í þrotabúið námu 827 milljónum króna. Bílaleigan, sem áður hét Auto Car Rental, var úrskurðuð gjaldþrota í febrúar 2019.

900 milljóna gjaldþrot umdeildrar bílaleigu
Skiptum er lokið í þrotabúi Grunda ehf. sem úrskurðað var gjaldþrota í júní í fyrra. Engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur námu 898 milljónum króna.

Drekar og orkuskipti
Á seinnihluta síðustu aldar voru rafmagnsbílabrautir vinsælt leikfang krakka á öllum aldri. Bílarnir voru knúðir rafmagni og þeyttust áfram á ógnarhraða miðað við stærð og sigruðust oftar en ekki á þyngdaraflinu með ævintýralegum hætti.

Dusterinn er kominn aftur á kreik
Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik.

Allir vildu vinna hjá Strætó en víða annars staðar fæst ekki fólk til starfa
Framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar telur of marga misnota atvinnuleysisbótakerfið. Fyrirtækið hafi rekið sig á að fólk hafni vinnu og vilji frekar vera á bótum. Framkvæmdastjóri Strætó sem þurfti nýlega að ráða 25 manns til starfa segir hins vegar að auðvelt hafi verið að fá fólk til starfa.

54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum
Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni.

66 starfsmenn Hertz endurráðnir
66 starfsmenn bílaleigunnar Hertz á Íslandi, sem sagt var upp störfum í haust, verða endurráðnir.

66 manns sagt upp hjá Hertz
Öllu starfsfólki bílaleigunnar Hertz á Íslandi var sagt upp fyrir helgi. Var alls um 66 manns að ræða.

Stilling og Liqui Moly gefa bætiefni að andvirði 25 milljóna króna til bílaleiga
Stilling hf. ætlar í samstarfi við þýska olíu- og bætiefnaframleiðandann Liqui Moly að styðja við íslenskar bílaleigur. Allar bílaleigur, rútufyrirtæki sem og aðrir flotaeigendur fá bætiefni frá Liqui Moly sem ver eldsneytiskerfi bifreiða fyrir tæringu og ryðmyndun.

Öllum hjólbörðunum stolið undan bílaleigubíl
Að undanförnu hefur borið á því að brotist hafi verið inn í bílaleigubíla á Suðurnesjum og verðmætum stolið. Ljósabúnaður bílanna hefur einnig verið fjarlægður.

Hertz óskar eftir greiðslustöðvun
Bílaleigan Hertz sótti í gær um greiðslustöðvun. Fyrirtækið er eitt þeirra sem komið hefur illa út úr þeim fjárhagslegu hremmingum sem faraldur kórónuveirunnar hefur valdið.

Á ekki von á biðröðum af ferðamönnum þegar landið opnar
Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segist ekki eiga von á því að biðraðir skapist af ferðamönnum þegar landið verður opnað á ný um miðjan næsta mánuð.

Bílaleigur nýskráðu 57% minna af bílum í mars
Bílaleigur nýskráðu í mars síðastliðnum 211 fólks- og sendibíla en í mars á síðasta ári nýskráðu bílaleigur 486 fólks- og sendibíla. Samdrátturinn nemur því 57%.

Úr fimm bílum í tvö þúsund
Magnús Sverrir Þorsteinsson stofnaði Blue Car Rental árið 2010 ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Sædal Björgvinsdóttur. Þau fóru af stað með aðeins fimm bílaleigubíla en í dag telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla.

Þjófur fannst með bílaleigubílinn á Akranesi
Einstaklingur, sem tók bílaleigubíl ófrjálsri hendi í Reykjavík um helgina, fannst ásamt bifreiðinni á Akranesi.

Arnþór tekur við nýrri stöðu hjá AVIS
Arnþór Jónsson hefur tekið við sem sölustjóri innanlandsmarkaðar hjá bílaleigunni AVIS.

Ekki stysta tjónlausa vegalengdin
Jepplingurinn sem var aðalpersónan í undarlegu umferðaróhappi á Granda er nokkuð illa skemmdur.

Beint af bílaleigunni og upp á bíl
Ökumaður bílaleigubíls komst í hann krappan á Grandanum í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 11 í dag.

Helmingur þegið bætur frá Procar
Fólk fær fjórar vikur til að ákveða hvort það þiggi bæturnar.

Höldur kaupir bílasölu á Höfða
Bílalíf, sem er á Kletthálsi, er ein af elstu bílasölum landsins og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá 1984.

Stórfelld uppbygging vegna orkuskipta
Ég hef farið ferða minna hjólandi í mörg ár, nota oft strætó og átti bíl í eitt og hálft ár fyrir nær 15 árum. Hins vegar skil ég vel að slíkt henti sumum illa og öðrum bara alls ekki. Og þótt brýnt sé að gera fólki kleift að velja almenningssamgöngur, hjólreiðar og annað slíkt til að komast á milli staða, verða bílar áfram til samhliða þessu.