Kvöldfréttir Stöðvar 2
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 63 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjón með ADHD sem voru bæði handtekin sama kvöld segjast niðurlægð af vinnubrögðum lögreglu í máli þeirra og líkja aðgerðunum við valdníðslu. Barn hjónanna var skilið eftir heima í Hveragerði á meðan þeim var haldið á lögreglustöðinni á Selfossi. Innlent 7.9.2023 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Konurnar sem hlekkjuðu sig fastar í möstrum tveggja hvalveiðiskipa í einn og hálfan sólarhring segja aðgerðir íslenskrar lögreglu hneykslanlegar. Lögregla hafi sýnt af sér ofbeldisfyllri hegðun en önnur konan hafi þurft að þola af hendi íranskra lögreglumanna. Við ræðum við mótmælendurna tvo í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30 og sýnum þegar hvalveiðiskipin, Hvalur 8 og 9, héldu út til veiða rétt fyrir fréttir. Innlent 6.9.2023 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hvalveiðiskipin héldu út á sjó í dag eftir að tveir aðgerðasinnar sem hlekkjuðu sig við möstur þeirra fóru frá borði. Konurnar tvær voru handteknar og hafa verið kærðar fyrir húsbrot. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi við Reykjavíkurhöfn í kvöldfréttum og ræðum við þau sem voru á staðnum. Innlent 5.9.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Föngum sem fara í hungurverkfall hefur fjölgað hér á landi undanfarin ár. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við fangelsismálastjóra sem segir tilfellin alvarleg og að menn hafi orðið mjög veikir vegna næringaskorts. Innlent 3.9.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir brot Samskipa geta valdið miklu tjóni fyrir samfélagið, neytendur og atvinnulífið. Hann á von á enn hærri sektum í sambærilegum samkeppnismálum á næstu árum. Rætt verður við forstjóra eftirlitsins í kvöldfréttum á Stöð 2. Innlent 2.9.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hvalveiðar mega hefjast aftur á miðnætti með þröngum skilyrðum. Matvælaráðherra segist ekki vera í embættinu til að láta sína villtustu drauma rætast og að spurningin um framtíð þeirra sé ennþá gild. Mótmælendur komu saman við hvalveiðiskipin við höfnina í dag og framleiðslufyrirtækið True North hefur farið fram á lögbann við veiðunum. Innlent 31.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óskarsverðlaunaleikkonan Hillary Swank er meðal leikara og framleiðenda í Hollywood sem ætla að sniðganga Ísland sem mögulegan tökustað banni íslensk stjórnvöld ekki hvalveiðar til frambúðar. Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað verði af sniðgöngunni. Innlent 30.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna Skaftárhlaups og lögreglan á Suðurlandi hefur ákveðið að loka nokkrum vegum á svæðinu. Bóndi á Ytri-Ásum við Skaftá segir vatnavöxtinn hafa verið óvenju hraðan snemma í morgun. Innlent 29.8.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Starfshópur matvælaráðherra telur mögulegt að bæta veiðiaðferðir við veiðar á stórhvölum en óvíst hvort þær úrbætur sem gripið hefur verið til dugi til þess. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur að matvælaráherra framlengi ekki hvalveiðibann. Fjallað verður um nýja skýrslu um hvalveiðar í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við nefndarmann í fagráði dýra í beinni útsendingu. Innlent 28.8.2023 17:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá tveimur konum sem greindust með ADHD á fullorðinsaldri. Þær segja lyfið Elvanse, sem hefur verið ófáanlegt í apótekum síðan í júlí hafa breytt lífi sínu. Innlent 27.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segjum við frá því að fjármálaráðherra vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar um hans ábyrgð á verðbólgunni á bug og segir tölur í ríkisfjármálum tala sínu máli. Flokksráðsfundir Sjálfstæðisflokksins og VG fóru fram í dag. Innlent 26.8.2023 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við um hagræðingaraðgerðir í ríkisrekstri sem fjármálaráðherra kynnti í dag, en meðal þeirra eru uppsagnir hjá hinu opinbera. Við heyrum frá ráðherra og leitum viðbragða í beinni útsendingu. Innlent 25.8.2023 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá því ástandi sem hefur skapast á bráðamóttöku Landspítalans eftir að neyslurýminu Ylju var lokað. Hjúkrunarfræðingur segir heimsóknum á bráðamóttöku vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð hafa fjölgað mikið frá því úrræðinu var lokað fyrir hálfu ári. Einn einstaklingur hafi á þeim tíma leitað hundrað sinnum á bráðamóttökuna. Innlent 24.8.2023 18:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta um 0,5 prósentustig. Um er að ræða 14. hækkunina í röð, en stýrivextir eru um það bil tólf sinnum hærri í dag en þeir voru fyrir tveimur árum. Innlent 23.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Milljarða tap er á hvalveiðum og efnahagsleg áhrif á þjóðarbúið eru lítil sem engin samkvæmt nýrri skýrslu matvælaráðuneytisins. Ráðherra þarf að taka ákvörðun um framhald veiðanna fyrir mánaðamót. Innlent 22.8.2023 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar segir það svartan blett á samfélaginu að láglaunafólk þurfi að búa í iðnaðarhúsnæði, eins og því sem varð eldi að bráð við Hvaleyrarbraut í gær. Lítið hafi breyst síðan þrjú létu lífið við Bræðraborgarstíg fyrir þremur árum. Innlent 21.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við um brunann í Hafnarfirði, þar sem eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði sem fólk bjó í. Við verðum í beinni frá vettvangi með slökkviliðinu, og greinum frá nýjustu tíðindum þaðan. Innlent 20.8.2023 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við talskonu Stígamóta, sem segir að þolendur mansals sem sendir eru á götur Íslands séu verulega útsettir fyrir ofbeldi og að hér á Íslandi leynist fjöldi manna sem vilja níðast á konunum. Innlent 19.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að hætta viðskiptum við Íslandsbanka, líkt og VR hefur einnig gert. Formaður VR segir bankann ekki hafa tekið nægilega á brotum lykilmanna við sölu á hlut ríkisins í bankanum. Innlent 18.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íslendingar hafa aldrei verið neikvæðari í garð erlendra ferðamanna en nú, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir niðurstöðurnar ekki koma að óvart enda hafi ferðaþjónustan farið hratt af stað eftir kórónuveirufaraldurinn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við í ferðaþjónustunni um málið, tökum borgarbúa tali og ræðum við framkvæmdastjóra Landverndar. Innlent 17.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tuttugu hatursglæpir voru tilkynntir til Samtakanna '78 í kringum Hinsegin daga og þar á meðal er ein líkamsárás. Lögregla rannsakar ellefu tilvik og möguleg tengsl þeirra. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra vill opna nýtt búsetuúrræði með takmörkunum fyrir flóttafólk sem ekki sýnir samstarfsvilja. Óeining er á milli ráðherra ríkisstjórnarinnar um hvort sveitarfélögum beri að þjónusta hópinn. Forsætisráðherra hefur óskað eftir lagalegu áliti. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við þingmenn stjórnarandstöðunnar. Innlent 15.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem nýtti neyslurými Ylju reglulega segist heyra af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku. Það sé mikil synd að ekki takist að opna nýtt úrræði. Ekkert neyslurými hefur verið rekið í um hálft ár og ráðherra segir einungis vanta húsnæði. Innlent 14.8.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona með hreyfihömlun sem beðið hefur í tæp fimm ár eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð hjá Reykjavíkurborg segir biðina óbærilega. Hún hefur höfðað mál gegn borginni og íslenska ríkinu. Innlent 13.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ný skýrsla sem Heilbrigðisráðuneytið gaf út í gær varpar ljósi á þá hópa sem eiga engan stað í geðheilbrigðisþjónustunni. Heilbrigðisráðherra segir áríðandi að öllum sé fundinn viðeigandi staður í kerfinu. Innlent 12.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Gríðarleg geðshræring greip um sig þegar fimm flóttakonum var vísað úr úrræði ríkislögreglustjóra í Bæjarhrauni í dag, og á götuna. Lovísa Arnardóttir, fréttamaður ræddi við þær og dómsmálaráðherra sem segir lítið hægt að gera ef fólk sýni ekki samstarfsvilja. Innlent 11.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íbúi á Havaí líkir ástandinu á eyjunni Maui við hamfarasvæði eftir mannskæða gróðurelda. Lík fólks, sem reyndi að forða sér frá bálinu, skoli á land og hefur neyðarástandi verið lýst yfir. Þrjátíu og sex hið minnsta eru látnir. Innlent 10.8.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Umdeild breyting á útlendingalögum er farin að hafa áhrif á umsækjendur um alþjóðlega vernd. Framkvæmdastjóri hjálparsamtaka segir barnafjölskyldur sviptar þjónustu þrátt fyrir að lögin kveði á um að það megi almennt ekki. Innlent 9.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnvöld á Ítalíu hafa ákveðið að leggja svokallaðan hvalrekaskatt á hagnað banka á þessu ári en skattheimtan mun eingöngu ná til þess hluta hagnaðarins sem er tilkominn vegna vaxtamunar. Ítalir eru ekki einir um að beita sér svona og hefur hvalrekaskattur komið til umræðu hér á landi. Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra kemur og ræðir möguleika á hvalrekaskatti hér á landi í kvöldfréttum á Stöð 2. Innlent 8.8.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landsmenn lögðu flestir leið sína heim í dag eftir hátíðir verslunarmannahelgarinnar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í beinni en hann ætlar að gera upp umferðina um helgina. Innlent 7.8.2023 18:01