Kvöldfréttir Stöðvar 2
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 63 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stórt skref í átt að afnámi sóttvarnaaðgerða verður stigið á miðnætti þegar fimmtíu manns mega koma saman, nándarregla verður einn metri og opna má skemmtistaði á ný. Allar innanlandsaðgerðir vegna kórónuveirunnar gætu heyrt sögunni til um miðjan mars. Innlent 28.1.2022 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem var greind með endómetríósu um tvítugt hafði enga aðra leið til að lina sársaukann en að nota morfínlyf í fjölda ára og neyddist til að fara í meðferð. Krónískir verkjasjúklingar þurfa oft að nota sterka ópíóða árum saman í bið eftir aðgerð eða greiningu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö. Innlent 27.1.2022 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir beinir því til fólks að fara ekki í sýnatöku að nauðsynjalausu. Hjarðónæmi gæti náðst í mars eða apríl, en þrátt fyrir góða stöðu borgi sig að fara hægt í afléttingar. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum. Innlent 26.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þúsundir Íslendingar losna úr sóttkví á miðnætti þegar miklu vægari reglur um sóttkví taka gildi. Forsætisráðherra segir skrefið marka eðlisbreytingu á baráttunni við faraldurinn. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 25.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldi Oxycontin-notenda á Íslandi hefur margfaldast á síðustu tíu árum, þrátt fyrir aukna meðvitund um skaðsemi lyfjanna og hertar reglur. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum og í Kompás að loknum fréttum. Innlent 24.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 auk þess sem við ræddum við fólk sem tók þátt í svokallaðri alheimsfriðargöngu gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. Innlent 23.1.2022 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 tökum við Færeyinga tali en þar ríkir mikil gleði með ákvörðun stjórnvalda um að aflétta samkomutakmörkunum, þrátt fyrir að nýgengi smita sé það hæsta í heimi. Innlent 22.1.2022 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vonir standa til þess að leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem eru í einangrun í Búdapest geti spilað á ný á Evrópumótinu í næstu viku. Flestir eru við ágæta heilsu en sex leikmenn hafa greinst með covid-19 og sjúkraþjálfari liðsins er einnig kominn í einangrun. Við verðum í beinni útsendingu frá Búdapest í kvöldfréttum og fjöllum nánar um málið. Innlent 21.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það var mikið áfall að greinast með kórónuveiruna og missa af stórleiknum gegn Dönum segir landsliðsmaður sem gagnrýnir sóttvarnir á hóteli liðsins í Búdapest. Sex liðsmenn hafa nú greinst smitaðir. Innlent 20.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir telur enga ástæðu til að breyta samkomutakmörkunum að svo stöddu og á von á að þær gildi fram yfir mánaðarmótin. Reglurnar fyrir þá sem lenda í einangrun og smitgát verða hins vegar rýmkaðar frá og með morgundeginum. Innlent 19.1.2022 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern Covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum. Innlent 18.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Innlagnarhlutfall á spítala og gjörgæslu er á niðurleið og sóttvarnalæknir segir að fylgst verði með þróuninni sem gefi mögulega tilefni til tilslakana. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 17.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmaður stjórnarandstöðu segir umhugsunarvert að hlutabótaleiðin verði ekki notuð í boðuðum efnahagsaðgerðum. Hún telur þær komnar seint fram. Innlent 15.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einar hörðustu aðgerðir frá upphafi kórónuveirufaraldursins taka gildi á miðnætti. Aðeins tíu manns mega koma saman. Sóttvarnalæknir vildi þó ganga lengra. Við förum yfir aðgerðirnar í fréttatímanum okkar á samtengdum Rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30. Innlent 14.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur sérstakar áhyggjur af notkun hraðgreiningarprófa fyrir stærri viðburði því talsvert sé um að þau gefi falskar niðurstöður. Hann leggur til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra, aðeins tveimur dögum eftir að síðustu aðgerðir voru kynntar. Innlent 13.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir býst við að leggja til hertar aðgerðir innanlands vegna þungrar stöðu í faraldrinum. Stefnt er að því að fækka daglegum fjölda smitaðra um helming. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 12.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Neyðarástandi almannavarna var lýst yfir síðdegis í dag vegna stöðu faraldursins hér á landi. Ráðamenn segja tvo erfiða mánuði framundan og sóttvarnalæknir er harðorður og segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Innlent 11.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bólusetning barna hófst í Laugardalshöll í dag. Börnin vor misánægð með sprautuna en virtust öll hrifin af skemmtiatriði ræningjanna þriggja úr Kardemommubænum sem voru mættir á svæðið. Við litum við í höllinni í dag og kíkjum á þau í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 10.1.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Neyðarstigi almannavarna verður lýst yfir á þriðjudag vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið, í annað sinn frá upphafi faraldurs. Við ræðum við yfirlögregluþjón hjá almannavörnum og heilbrigðisráðherra um stöðu mála í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 9.1.2022 18:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forstjóri Landspítala telur rétt að sett verði á viðbúnaðarstig almannavarna á landsvísu vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið. Kórónuveirusmituðum hafi fjölgað ískyggilega og að herða þurfi samkomutakmarkanir enn frekar til að sporna við frekari innlögnum. Rætt verður við forstjórann í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 8.1.2022 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmaður segir að stuðningsyfirlýsing sé falin í læki ráðherra á Facebook færslu Loga Bergmanns þar sem hann neitar að hafa brotið gegn ungri konu sem sakar hann um kynferðisbrot. Ráðherrann segir að með lækinu hafi hún verið að sýna samkennd og að engin afstaða felist í því. Fimm þjóðþekktir einstaklingar stigu til hliðar í gær vegna málsins og telja sumir um vendipunkt að ræða í þessum málum. Við ræðum við sérfræðing í #metoo málum og slaufunarmenningu í fréttatímanum. Innlent 7.1.2022 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mál 24 ára konu sem kom fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konur á þriðjudag og sakaði þrjá miðaldra menn um að hafa brotið á sér kynferðislega í sumarbústað árið 2020 hefur orðið til þess að tjéðir menn hafa látið af störfum sínum sem stjórnendur fyrirtækja og félaga. Að auki hafa tveir aðrir hætt störfum sínum, í það minnsta tímabundið. Innlent 6.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bólusetningar fimm til ellefu ára barna gegn kórónuveirunni hefjast í Laugardalshöll í næstu viku en ekki skólum líkt og til stóð. Innlent 5.1.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekki er von á afléttingum sóttvarnaaðgerða á næstunni en heilbrigðisráðherra segir viðbúið að snúið verði að halda skólum opnum. Sóttvarnalæknir biðlar til óbólusettra að endurskoða ákvörðun sína. Innlent 4.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Á fimmta hundruð starfsmenn eru frá vinnu á leik- og grunnskólum í Reykjavík vegna faraldursins. Skólahald næstu daga raskast. Við tökum hús á áhyggjufullum skólastjórnendum og heyrum í barnamálaráðherra um stöðuna. Innlent 3.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að það hafi verið mistök að fresta ekki skólabyrjun líkt og sóttvarnalæknir lagði til. Hann á von á háum smittölum næstu daga. Af þeim átta sem eru á gjörgæslu er aðeins einn bólusettur. Innlent 2.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en metfjöldi greindist smitaður á landamærunum í gær og kona á níræðisaldri lést vegna covid veikinda. Innlent 1.1.2022 18:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum frá nýrri reglugerð sem styttir þann tíma sem fólk þarf að vera í einangrun eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. Innlent 30.12.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í sóttvarnalækni sem vonar að vegna hraðrar útbreiðslu ómikron afbrigðisins verði hjarðónæmi gagnvart covid 19 náð undir lok núverandi bylgju faraldursins. Vonandi renni hún sitt skeið án þess að margir verði alvarlega veikir. Innlent 29.12.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar tvö greinum við frá neyðarástandi sem lýst var yfir á Landspítalanum í dag vegna mikilla forfalla starfsmanna spítalans. Þá náði Ísland þeim vafasama heiðri í dag að hvergi er nýgengni smitaðra meiri í Evrópu en hér á landi. Innlent 28.12.2021 18:08