Barnavernd „
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
„Það vill enginn vera með þessar hugsanir eða langanir“ Sálfræðingur hjá Taktu skrefið segir skömm sameiginlega hjá öllum sem leiti til þeirra. Stóra markmið meðferðarinnar sé að koma í veg fyrir frekara ofbeldi. Rannsóknir sýni að meðferð geti komið í veg fyrir að menn brjóti aftur af sér. Stór hluti sem leitar til þeirra er þó einnig fólk sem ekki hefur brotið á öðrum en er með hugsanir eða langanir sem það hefur áhyggjur af. Innlent 23.3.2025 12:31
Átti fótum sínum fjör að launa þegar átta drengir réðust á hann Fjórtán ára drengur átti fótum sínum fjör að launa er hópur drengja undir fimmtán ára aldri réðust á hann fyrir utan Fjörð verslunarmiðstöð í Hafnarfirði í gærkvöldi. Áverkar drengsins eru minniháttar en gerendurnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Innlent 20.3.2025 12:53
„Það þarf að taka meira til hendinni en ég hélt“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir meira af ófjármögnuðum útgjöldum en hún hafi átt von á. Ríkiskassinn sé ekki tómur en það þurfi að passa afskaplega vel upp á það sem er í honum. Það þurfi að passa að tekjur dugi fyrir útgjöldum og þannig hafi það ekki verið í mörg ár. Innlent 17.3.2025 09:41
Barnavernd veigri sér ekki við að taka á málum barna af erlendum uppruna Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir starfsfólk ekki veigra sér við því að taka á málum barna af erlendum uppruna. Barnavernd skorti oft úrræði vegna plássleysis og langra biðlista. Hún skilur vel að foreldrar og börn í Breiðholti séu í uppnámi vegna stöðunnar sem þar er komin upp. Innlent 16.3.2025 19:02
Mál Breiðholtsskóla á borði menntamálaráðherra Menntamálaráðherra segir að gera eigi gangskör í málum barna með fjölþættan vanda. Hún segir málaflokkinn hafa verið vanræktan í allt of langan tíma. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vísar á bug ásökunum foreldra um að ekkert hafi verið aðhafst vegna ófremdarástands í Breiðholtsskóla. Innlent 14.3.2025 19:49
Segir fangageymslur ekki viðeigandi vistunarstað fyrir börn Fangageymsla á lögreglustöðinni á Flatahrauni í Hafnarfirði er ekki viðeigandi vistunarstaður fyrir börn. Umboðsmaður Alþingis beinir því til Barna- og fjölskyldustofu og mennta- og barnamálaráðherra að endurskoða þá tilhögun að nýta fangaklefa fyrir neyðarvistun barna á Stuðlum. Í fangageymslunni sofa börn á plastklæddum dýnum á steyptum bekkjum. Vistun hefur varað í allt að sex daga. Innlent 14.3.2025 19:07
Réttlæta ofbeldi með því að þolandi eigi það skilið Dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands segir fangelsin full af ofbeldisfólki sem telja sín brot vægara eðlis en annarra. Fréttir af manndrápi í Gufunesi á dögunum sé til marks um varhugaverða þróun. Innlent 13.3.2025 20:31
Langflest börn brjóti ekki aftur á öðrum börnum eftir meðferð Meirihluti þeirra barna sem vísað er í meðferð vegna óviðeigandi eða skaðlegrar kynhegðunar hjá Barna- og fjölskyldustofu brýtur ekki á öðrum börnum eftir meðferð. Flest börnin upplifi mikla skömm þegar málin koma upp. Hátt hlutfall barnanna er með greiningar og í meðferðinni samhliða annarri meðferð. Innlent 6.3.2025 06:45
„Kerfið hefur ekki verið mjög burðugt fram til þessa“ Allt of fá úrræði eru til staðar fyrir börn í miklum vanda að sögn umboðsmanns barna. Mikil bið er eftir þjónustu sem komi í veg fyrir að hægt sé að grípa inn í þegar vandinn kemur upp. Barnamálaráðherra tekur undir og boðar úrbætur. Innlent 2.3.2025 17:41
Við lifum í skjóli hvers annars Með þessum skrifum stíg ég í umræðuna um hið hræðilega hnífstungumál sem gerðist á Menningarnótt 2024 og varð til þess að Bryndís Klara Birgisdóttir missti lífið. Ég votta aðstandendum hennar mína allra dýpstu samúð. Á þessum tímapunkti kýs ég núna að svara kalli og gerast riddari kærleikans eins og faðir hinnar látnu gerði ákall um. Ég er amma gerandans. Skoðun 1.3.2025 08:02
Amma gerandans svarar ákalli föður Bryndísar Klöru Dagný Hængsdóttir Köhler, amma drengsins sem banaði Bryndísi Klöru Birgisdóttur á menningarnótt í fyrra, segist vilja svara kalli föður Bryndísar Klöru og gerast riddari kærleikans. Dagný kallar eftir því í aðsendri grein að betur sé hugað að börnum sem upplifa áföll. Dóttursonur hennar og dóttir hafi bæði upplifað áföll sem hafi markað líf þeirra og gjörðir. Hún vilji ekki draga úr ábyrgð eða afsaka, heldur stuðla að breytingum. Innlent 1.3.2025 08:02
Barnavernd í brennidepli! Merki um öryggi – Signs of Safety Merki um öryggi (e. Signs of safety) er viðurkennt verklag í barnavernd sem miðar að því að valdefla börn og foreldra og draga úr þörf á íþyngjandi inngripum. Skoðun 14.2.2025 13:30
Börnin sem talin voru í hættu komu í leitirnar á Suðurnesjum Bandarísk börn sem talin voru í hættu fundust á Suðurnesjum í síðustu viku en þeirra hafði verið saknað síðan í október. Íslensk lögregluyfirvöld leiddu aðgerðir hér á landi en málið var unnið í nánu samstarfi við bandarísk yfirvöld. Ekki er talið að fjölskyldan hafi nokkur önnur tengsl við Ísland. Innlent 17.1.2025 12:36
Hafa þegar brugðist við mörgum ábendingum umboðsmanns um Stuðla Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla segir þegar hafa verið brugðist við mörgum ábendingum í skýrslu umboðsmanns Alþingis um neyðarvistun Stuðla. Hann segir ljóst að margar þeirra athugasemda sem koma fram í skýrslu umboðsmanns Alþingis um neyðarvistunin séu afleiðing þeirra aðstæðna sem starfseminni hefur verið búin og breytinga sem ráðist hefur verið í til að mæta viðameira hlutverki deildarinnar. Þetta segir Úlfur í skriflegu svari til fréttastofu. Innlent 30.12.2024 07:37
Ráðist á tíu ára gamlan dreng fyrir utan Rimaskóla Ráðist var á tíu ára gamlan dreng fyrir utan Rimaskóla í dag. Móðir drengsins segir hann slasaðan á kvið. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og stefnir fjölskyldan á að kæra árásina á morgun. Vegna aldurs drengsins mun málið einnig verða tilkynnt til barnaverndar. Innlent 18.12.2024 18:54
Tveir mánuðir fyrir brot gegn barni í búningsklefa Landsréttur hefur staðfest dóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa gengið inn í búningsklefa kvenna, gert athugasemdir um líkama nakins barns og girt niður um sig fyrir framan það. Innlent 12.12.2024 21:02
Unglingar í alvarlegum vanda fá nýtt húsnæði Meðferðarheimilið Lækjarbakki hefur fengið nýtt húsnæði í Miðgarði í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Það mun hefja þar starfsemi á nýjan leik að loknum nauðsynlegum framkvæmdum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 19.11.2024 10:27
Sýkna bæjarins staðfest: „Þetta er spillingarmál“ „Þetta er bara spillingarmál, sem varðar börnin okkar,“ segir faðir ungrar konu sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Landsréttur hefur nú staðfest sýknudóm yfir bænum í skaðabótamáli sem konan höfðaði. Innlent 18.11.2024 21:21
Rúmar hundrað milljónir í þágu barna í Mosfellsbæ Mosfellsbær hyggst fjárfesta aukalega rúmum hundrað milljónum í forvarnarstarf fyrir börn og ungmenni bæjarins á næsta ári. Þessi ákvörðun er tekin vegna óheillaþróunar og fjölgunar barnaverndarmála. Innlent 13.11.2024 21:08
Setja hundrað milljónir í barnavernd í Mosó Stjórnendur Mosfellsbæjar ætla að verja rúmum hundrað milljónum króna í forvarnarstarf hjá börnum og ungmennum. Barnaverndartilkynningum fjölgaði um fimmtíu prósent á fyrstu tíu mánðum þessa árs. Innlent 13.11.2024 13:16
Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2024 sýna vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað síðustu tvö ár. Niðurstöður sýna lækkun í tíðni kvíða og depurðar í öllum árgöngum. Enn segist þó um helmingur stúlkna í 10. bekk finna fyrir depurð. Þá hafa um þrettán prósent stúlkna í 10. bekk verið beittar kynferðisofbeldi af jafnaldra en hlutfallið lækkar á milli ára. Innlent 12.11.2024 15:02
Börnin á biðlistunum - það er ekki hægt að skálda þetta Ég stunda viðbótardiplómunám við Háskóla Íslands í “Áhættuhegðun og velferð barna og ungmenna” á sviði menntunar og margbreytileika og einn kúrsinn sem ég sit í er Barnavernd. Skoðun 11.11.2024 09:01
Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Innlent 4.11.2024 14:12
„Ég hef alveg trú á að við komumst í gegnum þetta“ Meðferðarrýmum á Stuðlum fækkar úr sex í fjögur þegar starfsemi hefst að nýju á næstu dögum. Allir verkferlar verða yfirfarnir í kjölfar eldsvoða sem þar varð um helgina. Staðan er bæði þung og erfið segir framkvæmdastjóri. Innlent 21.10.2024 22:08
Leitað að sex ungmennum um helgina og eitt enn týnt Lögreglu bárust sjö leitarbeiðnir vegna sex týndra ungmenna undir átján ára aldri um helgina. Tvö þeirra höfðu strokið að heiman eftir að hafa verið keyrð heim af Stuðlum í kjölfar brunans þar um helgina, annars vegar fimmtán ára piltur sem kom í leitirnar fyrr í dag eftir að hafa verið týndur í tvo sólarhringa og hins vegar unglingur á svipuðum aldri sem enn er leitað. Innlent 21.10.2024 16:44
Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur eftir tvo daga á vergangi Fimmtán ára piltur sem strauk að heiman skömmu eftir að hafa verið keyrður heim af Stuðlum í kjölfar eldsvoða um helgina er kominn í leitirnar. Drengurinn gaf sig sjálfur fram við lögreglu upp úr hádegi í dag. Hans var saknað í tvo sólarhringa áður en hann kom í leitirnar, blautur og kaldur eftir að vera úti á vergangi. Þetta segir móðir drengsins í samtali við fréttastofu. Innlent 21.10.2024 13:43
Her af iðnaðarmönnum við framkvæmdir á Stuðlum Vonast er til að starfsemi geti hafist að nýju á Stuðlum á allra næstu dögum eftir eldsvoða um helgina. Miklar framkvæmdir standa yfir í húsnæðinu en rannsókn lögreglu á tildrögum brunans stendur enn yfir. Innlent 21.10.2024 12:16
Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Hver verður dreginn til ábyrgðar fyrir að hafa lagt þennan málaflokk í rúst og hver á að vera dreginn til ábyrgðar? Eftir þetta hræðilega atvik sem gerðist á Stuðlum að morgni 19. október. Hver ætlar að taka á sig ábyrgðina? Skoðun 20.10.2024 08:02
Fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar eftir að tilkynnt var um hópslagsmál í hverfi 105 í Reykjavík. Innlent 1.10.2024 06:09
„Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Brotið var ítrekað gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga hjá barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar, leiðbeiningar til starfsfólks skorti, verkferlar voru óskýrir og samskipti við aðila mála voru ekki í samræmi við lög og reglugerðir. Innlent 30.9.2024 18:20