Verslun

Myndband sýnir Hollywood-lega tilburði innbrotsþjófsins sem seig niður um gat í loftinu
Innbrotsþjófur sem lagði töluvert á sig til þess að brjótast inn í verslunina Prinsinn í Árbænum í vikunni fór tómhentur út. Eigandi verslunarinnar veltir því fyrir sér hvort að viðkomandi sé að undirbúa sig undir eitthvað stærra.

BYKO einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum Evrópu
BYKO hlaut á dögunum viðurkenningu sem einn af eftirsóknarverðustu vinnustöðum í Evrópu í hópi meðalstórra fyrirtækja. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hlaut einnig viðurkenningu í sama flokki, og auglýsingastofan Sahara hlaut viðurkenningu í hópi lítilla fyrirtækja.

Fjölskylduhátíð á Pop up í Laugardal
Pop up markaður fer fram undir KSÍ stúkunni Laugardal um helgina og á heimapopup.is. Tugir spennandi verslana bjóða varning og matarvagnar og leiktæki verða á staðnum. Þetta er í átjánda sinn sem markaðurinn er haldinn og hefur farið stækkandi með hverju árinu.

Ásta ráðin forstjóri Festi
Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Festi og tekur við starfinu frá og með deginum í dag. Hún hefur verið framkvæmdastjóri Krónunnar frá árinu 2020 og mun sinna því starfi samhliða forstjórastöðunni fyrst um sinn.

Loka Ísbúð Brynju í Lóuhólum
Ísbúð Brynju í Lóuhólum verður lokað á næstu mánuðum. Staðsetningin hentaði ekki nægilega vel en önnur ísbúð keðjunnar er staðsett ansi nálægt Lóuhólum. Framkvæmdastjóri ísbúðarinnar segir reksturinn á Akureyri og í Kópavogi alltaf ganga jafn vel.

Er alltaf best að sigra?
Við elskum öll íslensku. Við sem höfum hana að móðurmáli og líka þau sem koma til landsins og læra hana sjálfviljug. Að veita því athygli sem maður óskar góðs gengis og gróanda er okkur flestum tamt. Þess vegna dreg ég athygli að íslenskunni sem blasir við framan á nýju blaði Nettó sem stendur fyrir Heilsu- og lífsstílsdögum um þessar mundir.

Jólin láta á sér kræla í Costco
Í dag, 1. september eru 114 dagar til jóla og þó einhverjir séu eflaust enn að jafna sig eftir nýliðið sumarfrí er jólaundirbúningur hafinn á hinum ýmsu vígstöðvum, til dæmis í versluninni Costco.

Fjárfestakynning gaf eftirlitinu ástæðu til íhlutunar
Samkeppniseftirlitið telur að matarpakkafélagið Eldum rétt sé mögulegur keppinautur Haga á dagvörumarkaði og sömuleiðis að Hagar séu mögulegur keppinautur á markaðinum fyrir samsetta matarpakka. Þessi ályktun, sem helgast meðal annars af atriðum í fjárfestakynningu frá því í október 2021, kemur fram í frummati Samkeppniseftirlitsins á samruna fyrirtækjanna tveggja.

Samkaup lækkar verð á fjögur hundruð vörum um tíu prósent
Verslunarkeðjan Samkaup hefur ákveðið að lækka verð á yfir fjögur hundruð vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum. Um er að ræða tíu prósenta verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast óbreytt fram til áramóta hið minnsta.

Gotteríið töluvert ódýrara í lágvöruverðsverslunum en í Fríhöfninni
Vörur í Fríhöfninni í Leifsstöð eru oft mun dýrari en í lágvöruverðsverslunum á borð við Bónus, Krónuna og Costco.

Framkvæmdastjóri Krónunnar kaupir hlut í Festi fyrir tæplega 20 milljónir
Framkvæmdastjóri Krónunnar, Ásta Sigríður Fjeldsted hefur keypt tæplega 20 milljóna króna hlut í smásölufyrirtækinu Festi en hún greiddi 208 krónur á hlut. Festi rekur verslanir Krónunnar.

Matarinnkaupin orðin með hæstu liðunum í heimilisbókhaldinu
Neytendur segjast finna verulega fyrir hækkandi matvælaverði. Matarinnkaupin séu orðin einn stærsti kostnaðarliðurinn í heimilisbókhaldinu og því þurfi að huga vel að innkaupum. Aðgerðir Krónunnar til að sporna við hækkandi verðlagi hafa fallið í frjóan jarðveg hjá neytendum.

Krónan frystir verð á 240 vörum til að berjast gegn verðbólgunni
Forsvarsmenn matvöruverslunarinnar Krónunnar hafa tekið ákvörðun um að frysta verð á 240 vörum til að leggja lið í baráttunni gegn verðbólgu. Krónan segir í tilkynningu að hún hyggist halda verði varanna stöðugu fram að áramótum til að byrja með.

Segir góðar og gildar ástæður fyrir háum launum stjórnenda
Davíð Harðarson, stjórnarformaður Haga, segir það skyldu stjórnarinnar að tryggja hæfa stjórnendur og það geri þeir með því að bjóða samkeppnishæf laun.

Frysta verð til að berjast gegn verðbólgunni
Franska verslunarkeðjan Carrefour hyggst leggja baráttunni gegn verðbólgu í Frakklandi lið með því að frysta vöruverð á hundrað vörum.

Bónus gefur út fatalínu
Bónus hefur gefið út fatalínu með derhúfum, bolum og hettupeysum en hluti af línunni er hannaður til þess að heiðra gamla grísinn. Baldur Ólafsson og Sigurður Bragason, grafískur hönnuður hjá Bónus, eru mennirnir á bak við línuna.

Gagnrýnir ofurlaun æðstu stjórnenda á matvörumarkaði á tímum verðhækkana
ASÍ gagnrýnir harðlega ofurlaun laun æðstustjórnenda á matvörumarkaði meðan gríðarlegar verðhækkanir hafi gengið yfir. Stjórnarformaður í einni stærstu matar og drykkjar heildsölu landsins var með ríflega 3,2 milljónir á mánuði á síðasta ári.

Telja að verðbólgan rjúfi tíu prósenta múrinn
Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,5 prósent í ágúst frá júlí. Tólf mánaða verðbólga myndi þá mælast í tíu prósentum en hún hefur ekki rofið þann múr síðan árið 2009. Hagfræðingar Landsbankans eru ósammála þessari spá.

Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir útskýringum á launum stjórnenda á matvörumarkaði
Framkvæmdastjórar lágvöruverslanna hér á landi eru með allt að fjórtánföld lágmarkslaun. Framkvæmdastjóri Costco á Íslandi var með tuttugu og fjórar milljónir á mánuði á síðasta ári. Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir útskýringum frá stjórnum fyrirtækjanna.

Methagnaður hjá eiganda Icewear og veltan nálægt því sem hún var 2019
Drífa ehf., sem rekur verslanir undir vörumerkinu Icewear, hagnaðist um 480 milljónir króna í fyrra samanborið við 180 milljóna króna tap á árinu 2020. Fyrirtækið hefur aldrei skilað jafnmiklum hagnaði og hefur stjórn þess ákveðið að greiða út arð að fjárhæð 250 milljónir króna.

Tekur við stöðu verslunarstjóra í Hrísey
Díana Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar. Guðrún Þorbjarnardóttir sem gegndi stöðunni til bráðabirgðar hættir 1. september.

Bauhaus á Íslandi skilaði hagnaði í fyrsta sinn í fyrra
Byggingarvöruverslun Bauhaus á Íslandi skilaði hagnaði á árinu 2021 og var það í fyrsta sinn frá opnun sem verslunin skilaði hagnaði.

Syngjandi kaupfélagsstjóri á Bíldudal
Staðurinn er eina verslunin á staðnum, veitingastaðurinn, kaffihúsið og barinn í bænum, auk þess að vera félagsmiðstöð bæjarbúa. Hér erum við að tala um Vegamót á Bíldudal þar sem kaupfélagsstjórinn á það til að taka upp gítarinn og spila og syngja fyrir viðskiptavini.

Byggt og búið og Kringlan 35 ára
Í dag 13. ágúst fagnar Kringlan 35 ára afmæli en ein af þeim verslunum sem hefur verið þar frá upphafi er búsáhalda- og gjafavöruverslunin Byggt og búið.

„Voðalega vinsælt að fá hrátt egg og sokk hjá mér“
Litla Hverabúðin er minnsta verslun Íslands, svo smá að ekki er þar að finna nokkurn starfsmann, í stað þess er stólað á heiðarleika viðskiptavina. Verðlaunakokkurinn Ólafur Reynisson og eiginkona hans Anna María Eyjólfsdóttir eru miklir frumkvöðlar þegar kemur að matargerð.

Komust á brott með fokdýrar merkjavörur
Bíræfnir innbrotsþjófar brutust inn í verslunina Attikk á Laugavegi í morgun. Framkvæmdastjórinn telur þjófana hafa stolið varningi, sem er í eigu þriðju aðila, að andvirði einnar milljónar króna.

Jólin verða dýrari en í fyrra
Jólin eru alltaf dýr og verða enn dýrari í ár. Það er skárra að vita af því núna en þegar jólahúllumhæið stendur sem hæst og ekki úr vegi að nota þetta átakanlega niðurdrepandi veður til undirbúnings svo tryggja megi sem notalegust jól.

Kornútflutningur hefst á ný og H&M efnir til lagerhreinsunar
Þrjú flutningaskip með korn innanborðs lögðu úr höfn í Úkraínu í dag. Oleksandr Kubrakov, innviðaráðherra landsins, segir Úkraínumenn treysta því að öryggistryggingar frá Sameinuðu þjóðunum og Tyrklandi um örugga för skipanna frá Úkraínu haldi og að útflutningur kornvöru komist í stöðugan og fyrirsjáanlegan farveg.

Ekki náð að leysa út lyfseðla vegna bilunar
Margir hafa átt í erfiðleikum með að leysa út lyfseðla í dag vegna bilunar í tölvukerfi sem læknar nota til að senda frá sér rafræna lyfseðla. Bilunin kom upp hjá þjónustuaðila kerfisins seinnipart dags í dag og er unnið að viðgerð.

Hjartagarðurinn – birtingarmynd vanda í hönnun og skipulagi
„Það er kannski pínulítil ráðgáta hvers vegna þetta hefur ekki gengið betur, þarna er gott skjól og sólin skín, tiltölulega lág hús í kringum garðinn“. Þessi orð um Hjartagarðinn í Reykjavík, milli Laugavegs og Hverfisgötu, lét borgarfulltrúi í Reykjavík falla nýlega. Ástæðan er að garðurinn reynist ekki draga að sér það mannlíf sem gert var ráð fyrir.