

„Þótt óveðursskýin séu stundum dökk og þungbúin þá ná sólargeislarnir alltaf að brjótast í gegn að lokum.”
Icelandair stefnir á flug til tíu áfangastaða frá og með 15. júní næstkomandi, en þá verður ferðatakmörkunum hingað til lands breytt.
Svo virðist sem heilbrigðisyfirvöldum á Nýja-Sjálandi hafi svo gott sem tekist að vinna bug á kórónuveirufaraldrinum í landinu, en engin virk smit eru í landinu, svo vitað sé.
Meira en tvo þriðju af þeim 1,151 nýju kórónuveirusmitum sem greint var frá í dag í Póllandi má rekja til einnar námu í Suður-Póllandi.
Starfsmaður í ferðaþjónustu segir að það hafi verið einmanalegt að standa vaktina á meðan á samkomubanninu stóð. Íslendingar á ferðalagi segja yndislegt að ferðast um landið þegar ekki er allt krökkt af ferðamönnum.
Sjómannadagurinn er í dag. Hin 100 ára gamla Guðrún Helgadóttir rifjaði upp fyrsta sjómannadaginn sem haldinn var árið 1938.
Fækka þurfti plássum á sjúkrahúsinu Vogi um helming á meðan á samkomubanni stóð og vegna erfiðleika við fjármögnun verður starfsemin skert út árið.
Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fótbolti.net, skilur lítið í því að sömu reglur gildi ekki yfir alla viðburði hér á landi.
Vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segist óska þess að gripið hefði verið til aðgerða gegn kórónuveirufaraldrinum fyrr vegna þess að tafirnar hafi kostað mannslíf. Hann kennir lélegum gögnum við upphaf faraldursins um þær ákvarðanir sem voru teknar.
Vettvangsprófanir verða gerðar á næstu dögum í tengslum við undirbúning fyrir skimun fyrir COVID-19 á landamærum. Það væri lögreglumál og gæti þurft að beita hörðum aðgerðum gegn þeim sem neita að hlíta fyrirmælum yfirvalda og þeim reglum sem gilda þegar komið er til landsins.
Sjómannadagurinn fer fram með óhefðbundnum hætti í dag vegna kórónuveirunnar. Engin hátíðarhöld eru í Reykjavík en á landsbyggðinni eru hátíðarhöld víðast hvar minni en alla jafna.
Þrjú virk kórónuveirusmit eru nú á landi og hefur eitt bæst við eftir að tölur landlæknis og almannavarna voru uppfærðar í dag. Nýtt smit greindist á föstudag sem kom ekki fram í tölum í gær sem bentu til þess að ekkert nýtt smit hefði greinst í heila viku.
Nokkrir áhrifamenn í Repúblikanaflokknum ætla annað hvort ekki að kjósa Donald Trump í forsetakosningunum í haust eða jafnvel greiða Joe Biden, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt. George W. Bush, fyrrverandi forseti, er á meðal þeirra sem ætlar ekki að styðja Trump til endurkjörs.
Heilbrigðisráðherra Bretlands segir að fjölmenn mótmæli gegn kynþáttahyggju í gær hafi „vafalaust“ aukið hættu á kórónuveirusmitum. Tugir þúsunda manna tóku þátt í samstöðumótmælum eftir dráp lögreglu í Bandaríkjunum á blökkumanni. Til einhverra átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í London.
Brasilísk stjórnvöld eru nú sökuð um að reyna að fela raunverulegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins eftir að þau ákváðu að hætta að birta heildartölur yfir fjölda látinna og smitaðra. Opinber vefsíða með upplýsingunum var tekin niður á föstudag.
Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju héldu áfram í mörgum borgum Bandaríkjanna í gær. Þau eru sögð hafa farið að mestu friðsamlega fram. Í Washington-borg mótmælu um tíu þúsund manns í stærstu mótmælunum í borginni til þessa.
Einkaþota lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan átta í kvöld í þeim eina tilgangi að sækja einn pappakassa. Innihald kassans gæti hins vegar reynst einhver dýrmætasta fraktsending sögunnar frá Íslandi.
Ekkert próf sem var gert í leikmannahópum ensku úrvalsdeildarinnar vegna kórónuveirunnar var jákvætt. Tæplega 1200 próf voru gerð en ekkert þeirra reyndist jákvætt.
Stjórnendur breskra dýragarða hafa áhyggjur af því að garðarnir fari á hausinn vegna kórónuveirunnar.
Vika er nú liðin frá því að síðast greindist nýtt smit kórónuveiru á Íslandi. Þeim sem eru í sóttkví hefur hins vegar fjölgað um á annað hundrað undanfarna daga samkvæmt tölum landlæknis og almannavarna.
Ekki verður hægt að greina sýni úr farþegum sem koma með flugi til landsins seint á kvöldin eða á nóttunni fyrr en daginn eftir að sögn sóttvarnalæknis. Hann segir undirbúningi fyrir skimun á landamærum miða vel áfram.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur horfið frá fyrri stefnu og hvetur nú fólk til þess að nota andlitsgrímur á almannafæri til þess að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar
Niðurstöður úr Covid-mótefnamælingum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að þrisvar sinnum fleiri Íslendingar hafi fengið veiruna en greindust með hana.
Framkvæmdastjóri Úrval-Útsýnar segir að stjórnvöld hljóti að endurskoða ákvörðun sína um að láta alla borga 15.000 krónur fyrir covid19 sýnatöku frá og með næstu mánaðamótum.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fimmtán þúsund króna gjald fyrir sýnatöku á landamærum „galið“.
Áfram fjölgar fólki í sóttkví vegna kórónuveirunnar lítillega á milli daga. Fjöldinn er nú yfir þúsund manns og hafa rúmlega tvö hundruð bæst við á undanförnum þremur sólarhringum. Ekkert nýtt smit greinist þó, sjötta daginn í röð, samkvæmt upplýsingum landlæknis og almannavarna.
Höfundar rannsóknar sem benti til þess að aukin hætta á dauða fylgdi notkun á malaríulyfinu hydroxychloroquine gegn Covid-19 hafa dregið hana til baka eftir að gagnrýni kom fram á áreiðanleika gagna sem lágu til grundvallar henni. Tilraunir með lyfið voru stöðvaðar eftir að niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar á dögunum.
Skimunin gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar og kostar svo 15 þúsund krónur.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynnti um 500 milljóna króna framlag Íslands á ráðstefnu bólusetningarbandalagsins Gavi í gær.
Svæði inn í strætisvögnum verður ekki lengur skipt í tvennt.