
Frjósemi

Mikill hausverkur að velja sæðisgjafa: „Ég kastaði Kolbrúnu fyrir lestina og hún var til í að prófa“
Þær Kolbrún Helga Pálsdóttir og Sonja Björg Írisar Jóhannsdóttir vissu frá því þær byrjuðu að vera saman að þær langaði að stofna fjölskyldu.

Ása eignaðist sitt fyrsta barn tæplega fimmtug og kom stúlkan í heiminn á deginum mikilvæga
Ása Dóra Finnbogadóttir verður fimmtug á árinu og eignaðist sitt fyrsta barn um helgina eftir áralanga bið.

Frægir fjölguðu sér árið 2021
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2021 og Vísir greindi frá.

Höfða mál eftir að hafa eignast barn með röngum fósturvísi
Hjón í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur höfðað mál á hendur tveimur fyrirtækjum sem aðstoðuðu þau við að eignast barn en þegar konan ól barnið kom í ljós að rangur fósturvísir hafði verið settur upp.

Fæðingarsprengja hjá Íslendingum
Alls fæddust 1310 börn í júlí, ágúst og september árið 2021. Fæðingar á einum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá því byrjað var að taka tölurnar saman ársfjórðungslega árið 2010. Mun færri féllu frá á sama tímabili eða 580 einstaklingar.

Féll fyrir æskuástinni á fermingarmyndinni
Þau Björgvin Páll og Karen kynntust þegar þau voru unglingar. Björgvin var staddur í strákapartýi hjá bróður Karenar þegar hann sá fermingarmynd af henni uppi á vegg og ákvað að biðja um númerið hennar. Það vatt heldur betur upp á sig og hafa þau nú verið gift í tíu ár og eiga saman fjögur börn.

Frjósemi íslenskra kvenna 1,71 barn árið 2020
Sögulega séð hefur frjósemi á Íslandi verið meiri en í nágrannalöndunum en nú er svo komið að hún er næstum því sú sama á Íslandi og í Danmörku og Svíþjóð, eða í kringum 1,7 börn á hverja konu.

Arna Ýr deilir myndbandi af fæðingu sonar síns
Fegurðardrottningin og hjúkrunarfræðineminn Arna Ýr Jónsdóttir ákvað að deila afar persónulegu myndbandi af fæðingu sonar síns. Hún segir neikvæðar fæðingarsögur vera háværar í samfélaginu. Með birtingu myndbandsins vill hún sýna þeim sem eiga von á sínu fyrsta barni að fæðingar geti líka verið rólegar og fallegar.

Umhverfisstofnun varar við áhrifum innkirtlatruflandi efna
Verða sáðfrumur í karlmönnum horfnar eftir 20 ár? spyr Umhverfisstofnun í tilkynningu á vefsíðu sinni þar sem fjallað er um innkirtlatruflandi efni í umhverfinu.

Ný lög um þungunarrof versta tegund kynbundinnar mismununar
Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna á sviðið mannréttinda- og jafnréttismála fordæma harðlega ný lög um þungunarrof í Texas í Bandaríkjunum og segja þau meðal annars fela í sér verstu tegund kynbundinnar mismununar.

Hyggjast heimila varðveislu eggja, sæðis og fósturvísa í 55 ár
Til stendur að heimila varðveislu frosinna eggja, sæðis og fósturvísa í allt að 55 ár í Bretlandi. Hingað til hefur hámarks varðveislutíminn verið tíu ár en ráðamenn segja breytinguna munu veita einstaklingum meira val um það hvenær þeir stofna fjölskyldu.

Sigríður Thorlacius á von á barni
Tónlistarkonan Sigríður Thorlacius á von á barni. Í færslu sem hún skrifaði á Facebook segist hún vera að „að kafna úr þakklæti.“

Trúa því að drengurinn sé faðir Elínar endurfæddur
„Ég hef alltaf séð fyrir mér mig sem móður og hefur alltaf langað til þess að eignast fjölskyldu,“ segir Elín Kristjánsdóttir sem eignaðist á dögunum sitt fyrsta barn.

Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi frá upphafi mælinga
Á öðrum ársfjórðungi 2021 fæddust 1.270 börn. Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi síðan mælingar hófust árið 2010. Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á ársfjórðungnum.

75 konur fæddu heima árið 2019 og sjö á leiðinni á fæðingarstað
Alls fæddust 4.454 börn í 4.385 fæðingum á Íslandi árið 2019. Um er að ræða fjölgun miðað við síðustu ár en árið 2016 höfðu fæðingar ekki verið jafnfáar síðan árið 2002.

Nýjustu þríburar landsins dafna vel
Nýjustu þríburar landsins, sem eru tveggja og hálfs mánaðar gamlir fóru í sína fyrstu sumarbústaðaferð í vikunni með foreldrum sínum og bróður. Þríburarnir, sem eru tveir strákar og eins stelpa dafna mjög vel en þau fá að borða á fjögurra tíma fresti.

Nauðsynlegt að fá fleiri konur í leghálsskimanir
„Skimunin hófst 1964 þannig að þetta er orðið ótrúlega langur tími,“ segir Sigrún Arnardóttur kvensjúkdóma- og fæðingalæknir.

„Ég var bara hamingjusöm þegar hún var hjá mér“
Annie Mist Þórisdóttir opnaði sig um sitt fæðingarþunglyndi nú á dögunum á samfélagsmiðlinum Instagram. Hún svaf ekki, fann ekki fyrir matarlyst, fann ekki fyrir gleðinni í lífinu og átti erfitt með að hugsa um sig sjálfa og litlu dóttur sína.

„Notaðu þennan tíma til að tengjast barninu“
Björn Grétar Baldursson trúði því að hann gæti ekki gert mikið gagn fyrstu mánuðina í föðurhlutverkinu. Í dag segist hann vita að það sé kjaftæði og hvetur foreldra í þeirri stöðu til að nýta öll tækifæri til tengslamyndunar.

Sjúkdómsvæðing fæðingar í fjölmiðlum
Það er áhugavert að velta fyrir sér fyrirsögnum blaðamanna í umfjöllun um fæðingar. Fjölmiðlar eiga til að mála upp ákveðna mynd af fæðingum sem einkennist af neikvæðri upplifun, áhættu, dramatík og óbærilegum sársauka.

Stefnir í metár í fæðingum á Íslandi: „Börn sem hafa verið getin í kórónuveirufaraldrinum“
Það stefnir í metár í fæðingum á Íslandi. Gert er ráð fyrir að 5000 börn fæðist í ár, sem eru 500 fleiri en í fyrra.

MDE staðfesti dóm Hæstaréttar í máli kvenna sem nutu aðstoðar staðgöngumóður
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur staðfest úrskurð Hæstaréttar þess efnis að Þjóðskrá þurfi ekki að skrá tvær íslenskar konur, sem eignuðust dreng með aðstoð erlendrar staðgöngumóður, sem foreldra hans. Úrskurður þess efnis var birtur í dag.

„Forvörn í því að hlúa vel að konum og heilsu kvenna“
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir ákvað frekar snemma að hún vildi verða kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir. Hún hefur einstaklega mikinn áhuga á kvenheilsu og fræðir nú stúlkur og konur um allt sem tengist því efni, meðal annars með hlaðvarpsþáttum ásamt Andreu Eyland þáttastjórnanda Kviknar hlaðvarpsins hér á Vísi.

„Ég hugsa að ég muni aldrei gleyma hljóðunum í börnunum“
Sigríður Jónsdóttir og Magnús Kjartan Eyjólfsson eignuðust andvana stúlku þriðjudaginn 27. apríl. Hún fékk nafnið Kolfinna Ögn.

Fór í fóstureyðingu því hún hafði ekki unnið úr eigin áföllum
„Það er auðveldara að byggja upp sterk börn heldur en að laga brotna einstaklinga,“ segir Ester Ósk.

Send aftur heim með dáið barn í maganum og segir Landspítalann hafa brugðist
„Hvernig er hægt að leggja það á fólk að vera heima með dáið barn í maganum yfir helgi?“ Sigríður Jónsdóttir og Magnús Kjartan Eyjólfsson eignuðust andvana stúlku þriðjudaginn 27. apríl og gagnrýna heilbrigðiskerfið fyrir viðbrögðin eftir að þeim var tilkynnt að barnið þeirra hefði dáið í móðurkviði.

Getur reynst mörgum konum erfitt sem vilja hafa stjórn á öllu
„Ég vissi snemma hvað ég vildi verða,“ segir ljósmóðirin Inga María Hlíðar Thorsteinsson. Hún var að gefa út bók um fæðingar í þeirri von að sem flestir hafi jákvæða upplifun af þessari lífsreynslu.

Alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um gjafagetnað
Til að geta barn þarf þrennt: sæðisfrumu, eggfrumu og leg fyrir barnið að vaxa í. Mörg pör búa yfir þessu þrennu og geta sín börn án vandræða eða aðstoðar.

Varð ófrísk að öðru barni á meðan hún var þegar ólétt af því fyrsta
Kona nokkur í Bretlandi, hin 39 ára Rebecca Roberts, varð ófrísk að öðru barni á meðan hún gekk með annað. Hún og eiginmaður hennar, Rhys Weaver sem er fjórum árum eldri, höfðu reynt árangurslaust í rúmt ár að eignast barn þegar það loksins tókst og rúmlega það. Getnaður varð ekki einu sinni heldur tvisvar með þriggja vikna millibili.

Ófyrirséð afleiðing Covid-19: „Við erum að verða uppiskroppa með sæði“
Þegar kórónuveirufaraldurinn braust út voru brögð að því að salernispappír og aðrar nauðsynjar væru hamstraðar. Nú er kominn upp óvæntur, og ef til vill ófyrirséður skortur í Svíþjóð: