Vistvænir bílar
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 18 ›
Volkswagen rafbílar frá Kína án ábyrgðar og ekki þjónustaðir Borið hefur á því að Volkswagen ID. bifreiðar hafi verið fluttar til Evrópu án aðkomu viðurkenndra umboðsaðila Volkswagen og gangi þar kaupum og sölum. Umræddum Volkswagen ID. bifreiðum fylgir ekki alþjóðleg verksmiðjuábyrgð þrátt fyrir villandi fullyrðingar viðkomandi söluaðila. Að auki geta viðurkenndir sölu- og þjónustuaðilar í Evrópu ekki sinnt þjónustu og viðhaldi, þar með töldum ábyrgðaviðgerðum og öryggisinnköllunum. Bílar 10.9.2022 07:00
Volkswagen ID. Buzz - Bíll tækifæranna Volkswagen Rúgbrauð er sennilega einn frægasti bíll mannkynssögunnar. Bjallan og Rúgbrauðið ásamt Toyota Hilux og Ford Mustang. Nokkrar goðsagnir sem allar eiga sinn sess í sögunni. Nýjasti bíll Volkswagen, ID. Buzz er tilraun Volkswagen til að rafvæða hið goðsagnakennda Rúgbrauð. Bílar 7.9.2022 07:02
Kaliforníuríki borgar íbúum fyrir bíllausan lífsstíl Kaliforníuríki er að reyna að gera allt sem í þess valdi stendur til að minnka umferð og útblástur frá umferð. Nú er búið að setja lög sem heimila ríkinu að greiða íbúum þess 1000 dollara fyrir að eiga ekki bíl. Bílar 6.9.2022 07:00
Dacia Duster á toppnum þriðja mánuðinn í röð Alls voru nýskráðar 1649 bifreiðar í nýliðnum ágúst mánuði. Þar af voru 236 Toyota bifreiðar. 187 Kia bifreiðar og 128 Suzuki bifreiðar. Dacia var í fjórða sæti með 128 bíla, þar af 124 Duster bifreiðar sem gerir Duster vinsælustu undirdegundina. Tölurnar byggja á upplýsingum frá Samgöngustofu. Bílar 4.9.2022 07:00
Polestar 6 LA Concept selst upp á einni viku Sænski bílaframleiðandinn Polestar kynnti Polestar 6 LA Concept bílinn í ágúst og opnaði svo í framhaldinu fyrir pantanir á bílnum. Einungis 500 eintök verða framleidd og þau eru nú uppurin. Bílar 2.9.2022 07:01
Myndband: Fox News gagnrýnir „bensínhák“ Harry prins Fox News hefur í gegnum tíðina fjallað ítrekað um að loftslagsbreytingar séu farsi, búinn til af fjölmiðlum. Eða þá að þær eru komnar til af náttúrulegum ástæðum en ekki af mannavöldum. Fox News gagnrýndi á dögunum Harry bretaprins fyrir að láta bensínhák sinn ganga í lausagangi í lengri tíma. Bíllinn sem um ræðir er Audi e-Tron, rafbíll. Bílar 31.8.2022 07:00
Rivian R1S loksins afhendur kaupendum Rafmagnsjeppinn R1S frá Rivian er loksins kominn í hendur almennra kaupenda. Hingað til hafa allar afhendingar verið til starfsfólks Rivian. Fyrsta afhendingin var í síðustu viku. Bílar 29.8.2022 07:00
Kia vill að EV9 verði alvöru jeppi Kia hefur hafið kynningu á rafbílalínu sinni, EV á EV6 með góðum árangri. Næsti bíll í línunni er EV9 sem er ætlað að vera alvöru jeppi samkvæmt Kia. Hann á að geta vaðið djúpt og klifrað upp brattar hæðir og yfir höfuð, vera jeppi sem er knúinn áfram á rafmagni. Bílar 27.8.2022 07:01
Dodge Hornet vekur reiði hjá Alfa Romeo Dodge og Alfa Romeo eru systurfélög sama móðurfélags, Stellantis. Dodge kynnti nýlega jepplinginn Hornet sem hefur náð talsverðum vinsældum. Dodge segir að 14.000 forpantanir hafi borist sama dag og bíllinn var kynntur. Bíllinn er tengiltvinnbíll. Bílar 23.8.2022 07:01
6 kr/km Það hefur verið hávær umræða í gangi um breytta gjaldtöku í samgöngum. Annarsvegar hefur umræðan snúist um veggjöld á stærri verkefnum tengt jarðgöngum og brúarsmíði. Hinsvegar hefur umræðan snúist um ójafnvægi í núgildandi gjaldtöku þar sem nýorkubílar eru undanskyldir enda gjaldið tekið í gegnum sölu á bensíni og dísil. Hér verður ekki rætt um möguleg gangna- og brúargjöld enda myndu bifreiðar greiða slík gjöld að jöfnu óháð orkugjafa. Skoðun 22.8.2022 13:30
Myndband: Dodge ætlar að framleiða háværa rafbíla Ameríski bílaframleiðandinn Dodge hefur í gegnum tíðina framleitt bíla sem flestir ganga fyrir stórum V8 vélum sem framleiða hávaða. Nú eru straumhvörf yfirvofandi og Dodge ætlar að rafvæða framboð sitt. Dodge ætlar þó að halda fast í einkenni sín, gírskiptingar og hávær útblásturshljóð verða meðal þess sem rafvædd framtíð ber í skauti sér ef marka má nýjan hugmyndabíl frá Dodge. Bílar 21.8.2022 07:00
576 hestafla Kia EV6 GT er öflugasta Kia sögunnar Kia er að prófa nýjar djarfar leiðir í þróun rafbíla. Á næsta ári ætlar Kia að kynna 576 hestafla GT frammistöðu útgáfu af EV6 sem á að standa í helstu sportbílum samtímans. Bílar 20.8.2022 07:01
Nýjar vélareglur í Formúlu 1 staðfestar FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur staðfest nýjar vélareglur fyrir Formúlu 1 sem munu taka gildi árið 2026. Staðfesting á reglunum ætti að gera bílaframleiðendunum Audi og Porsche kleift að staðfesta þátttöku sína í Formúlu 1. Bílar 18.8.2022 07:01
Rafmagnaður BMW M3 verður byltingarkenndur með kunnuglegri akstursupplifun Yfirmaður M-deildar BMW, Frank van Meel segir að framtíðar bílar M deildarinnar verið rafbílar með kunnulega aksturseiginleika, sem eru aðal einkenni M bílanna. Bílar 16.8.2022 07:00
Nýr rafbíll frá MG Nýr rafbíll frá MG er væntanlegur til BL á haustmánuðum. Um er að ræða hlaðbak sem ber heitið MG4 sem er sérlega vel búinn fimm manna fjölskyldubíl í C millistærðarflokki. Forsala á MG4 hófst í vikunni og eru fyrstu bílarnir væntanlegir til BL við Sævarhöfða í lok október. Bílar 12.8.2022 07:00
Myndband: Reipitog á milli Ford F-150 Lightning og Rivian R1T Tveir stórir rafpallbílar takast á í reipitogi. Bílarnir tveir eru ekki beinir keppinautar. Þeir eru þó meðal fyrstu rafpallbílanna sem komu á markað. Í myndbandinu má sjá Ford F-150 Lightning og Rivian R1T í reiðitogi. F-150 er talsvert stærri en R1T en þó ögn þyngri. Báðir eru bílarnir fjórhjóladrifnir. Bílar 10.8.2022 07:00
Elon Musk: Tæknilegar breytingar og verðið mun hækka á Cybertruck Framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk segir að margt hafi breyst síðan bíllinn var fyrst kynntur árið 2019. „Það þýðir að tæknilýsingin og verðið munu breytast,“ sagði Musk á hluthafafundi Tesla, sem kallast Cyber Roundup. Bílar 6.8.2022 07:00
Næsta kynslóð af Dodge Charger og Challenger verða rafbílar Gömlu vígin falla nú hvert á fætur öðru. Fleiri og fleiri rótgrónir framleiðendur eru að snúa sér að hreinum rafbílum. Dodge er sá nýjasti í þeim hópi og það með sportbílum sínum, Charger og Challenger. Bílar 2.8.2022 07:01
Skýring á brotthvarfi Herbert Diess frá Volkswagen Group Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið. Bílar 27.7.2022 07:01
Háskólanemar hanna bíl sem fjarlægir koltvísýring úr andrúmsloftinu Bíllinn gengur undir nafninu Zem og er frumgerð af rafbíl sem notar sérstakar síur sem hreinsa koltvísýring úr loftinu á meðan á akstri stendur. Bíllinn er hannaður af nemendum við Eindhoven háskóla í Hollandi. Bíllinn er ekki fyrsti byltingarkenndi bíllinn sem nemendur skólans hanna. Bílar 26.7.2022 07:01
Segir fásinnu að stuðningur við rafbíla sé óhagkvæmur Formaður rafbílasambands segir mikið af ranghugmyndum í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar um hagkvæmni loftslagsaðgerða. Stofnunin gefi sér mikið af röngum forsendum og algjör fásinna sé að skella loftslagsskuldinni á rafbíla. Innlent 22.7.2022 12:55
Alpine kynnir rafdrifna blæjuútgáfu af A110 Franski sportbílaframleiðandinn Alpine, sem er í eigu Renault hefur kynnt til sögunnar hreinan rafblæjubíl sem er byggður á A110 bíl framleiðandans, sem til þessa hefur verið knúinn áfram af bensínmótor. Rafdrifna útgáfan mun bera nafnið A110 E-ternité Bílar 22.7.2022 07:01
Hyundai staðfestir væntanlegan ódýran og smáan rafbíl Hyundai hefur staðfest að unnið sé að smáum og ódýrum rafbíl fyrir evrópskan markað. Verðið á að vera um 20.000 evrur eða um 2,8 milljónir króna. Bíllinn er ekki væntanlegur alveg strax. Huyndai kynnti nýlega Ioniq 6. Bílar 20.7.2022 07:01
Pagani ætlar að þróa rafbíla eftir allt saman Pagani hefur staðfest að fyrirtækið ætli að framleiða ofurrafbíl þrátt fyrir orðróm um að ekkert yrði að smíðum slíks bíls. Pagani segist vera með annað augað á framtíðarlausnum. Bílar 18.7.2022 07:01
Ioniq 6 Saloon kynntur til sögunnar Hyundai Motor hefur frumsýndi nýlega Ioniq 6 sem verður nýjasti rafbíllinn úr smiðju Hyundai, búinn 77 kWh rafhlöðu með 610 km drægni. Ioniq 6 styður við bæði 400-V og 800-V hleðslustöðvar. Með 350 kW hleðslu er hægt að hlaða Ioniq 6 frá 10 til 80 prósenta á aðeins 18 mínútum. Bílar 15.7.2022 07:01
Fyrsti rafbíll Lamborghini verður jepplingur Fyrsti rafbíll ítalska sportbílaframleiðandans Lamborghini verður jepplingur og er væntanlegur árið 2028. Það er líflína fyrir bensín bíla þrátt fyrir rafvæðinguna. Bílar 14.7.2022 07:01
Framleiðslu BMW i3 hætt BMW hefur nú hætt framleiðslu rafbílsins i3 eftir að 250.000 eintök hafa verið smíðuð á þeim rúmu átta árum sem bíllinn hefur verið í framleiðslu. Síðustu tíu bílarnir voru framleiddir í sérstakri heimahafnar útgáfu (e.HomeRun). Bílar 11.7.2022 07:01
Kia EV6 valinn bíll ársins Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins. Fyrir nafnbótina hlýtur bíllinn stálstýrið. Bíllinn var frumsýndur í nóvember á síðasta ári, síðan þá hefur hann einnig verið valinn bíll ársins í Evrópu. Bílar 9.7.2022 07:01
Myndband: Kynning á Hyundai Ioniq 5 með Ísland í aðalhlutverki Auglýsingatökulið á vegum Hyundai kom hingað til lands í apríl og tók upp kynningarmyndband fyrir Hyundai Ioniq 5. Myndbandið sýnir fallegt landslag Íslands, náttúru og dýralíf og fylgir fréttinni. Bílar 6.7.2022 07:01
Bank of America: Ford og GM munu taka fram úr Tesla Car Wars rannsóknin sem kom út nýlega spáir fyrir um að General Motors og Ford muni taka fram úr Tesla í þegar kemur að markaðshlutdeild á rafbílamarkaði. Spálíkön gera ráð fyrir að GM og Ford muni hvort um sig öðlast um 15% markaðshlutdeild á meðan Tesla muni hrapa frá 70% niður í 11% á árinu 2025. Bílar 2.7.2022 07:01