
Geðheilbrigði

„Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“
Dómsmálaráðherra kveðst hafa haft áhyggjur af fangelsismálum frá því hún tók við embætti. Allar aðstæður á Litla-Hrauni í dag séu með þeim hætti að erfitt sé að tryggja öryggi fanga. Maður fannst látinn í klefa fangelsisins um liðna helgi.

Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum
Ungfrú Bandaríkin, Noelia Voigt, hefur ákveðið að afsala sér titlinum vegna heilsufarsástæðna. Voigt fór með sigur af hólmi þegar keppnin fór fram í september síðastliðnum. Í tilkynningu sem hún sendi frá sér á Instagram sagðist hún trúa á það að gera það sem er best fyrir „sjálfan sig og geðheilsuna“.

Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta
Tómas Ingvason, faðir manns sem fannst látinn í fangaklefa á Litla-Hrauni um liðna helgi, vill í minningu sona sinna bæta aðstæður og líf fólks með vímuefnavanda. Andlát sonarins sé enn eitt dæmið um hlúa þurfi betur að þessum jaðarsetta hópi. Sonurinn hafi verið ljósið í hans lífi og átt betra skilið.

Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni
Fangi á Litla Hrauni fannst látinn í klefa sínum í gærmorgun. Greint er frá andlátinu á Facebook-síðu Afstöðu, félags fanga, í morgun, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu.

Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park
Fótboltaliðið FC Sækó fór í mikla ævintýraför til Skotlands á dögunum. Þar spilaði liðið meðal annars við lið á vegum Celtic og Falkirk.

Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan
Jákvæð sálfræði var kynnt sem fræðigrein í kringum aldamótin, vísindagrein sem gengur þvert á allar greinar sálfræðinnar og leitast við að greina hugsun, hegðun og lífstíl þeirra sem eru hamingjusöm og vegnar vel í lífinu.

Mikil gleði þegar Bergur komst í mark
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, lauk um klukkan 14 í dag 100 kílómetra göngu sinni frá Akranesi til Reykjavíkur. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum.

Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir
Bergur Vilhjálmsson á nú aðeins eftir að ganga tíu af þeim hundrað kílómetrum sem hann ætlaði sér að klára gangandi. Bergur lagði af stað á sumardaginn fyrsta og býst við því að klára gönguna um klukkan 14 í dag.

„Það er einmanalegt að missa móður“
„Ég ætlaði alls ekki í leiklist. Þú getur samt aldrei flúið frá kölluninni og þér sjálfri, úr hverju þú ert og við hvað þú elst upp. Maður er nú genasamsetning foreldra sinna,“ segir leikkonan Unnur Birna J. Backman. Unnur er dóttir Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar og Jóns Axels Björnssonar myndlistarmanns og er alin upp í kringum mikla list. Hún ræddi við blaðamann um móðurmissinn, uppeldið, leiklistina, stöðuga þróun á sjálfri sér, hvernig hreyfing bjargaði lífi hennar og margt fleira.

Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn
Dómur í máli hjúkrunarfræðings, sem var sýknaður af ákæru fyrir manndráp á geðdeild Landspítala, hefur verið ómerktur í Landsrétti. Lagt hefur verið fyrir héraðsdóm að taka málið til meðferðar á ný og fella síðan á það efnisdóm.

Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun
Okkur dettur flestum í hug að of mikið álag sé skýringin á kulnun. Nokkuð er meira að segja rætt um að álagið sem leiðir til kulnunar sé oftar en ekki samblanda af tvennu: Vinnu og heima fyrir. Já lífinu sjálfu.

Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“
Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“.

Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni
Gott sjálfstraust í vinnunni getur hleypt okkur gífurlega langt. Ekki aðeins í starfsframa, heldur líka í því hvernig okkur líður og gengur almennt dag frá degi. Í hvaða verkefnum sem er.

Landlæknir rannsaki ummæli formanns Geðlæknafélagsins
ADHD-samtökin segja að bregðist Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ekki við mikilli lengingu biðlista fullorðna eftir ADHD-greiningu geti biðtími fólks farið vel á annan áratug. Um fjögur þúsund einstaklingar bíði nú eftir greiningu. Einnig er óskað eftir því að landlæknir rannsaki fullyrðingar formanns Geðlæknafélags Íslands.

Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, ætlar á sumardaginn fyrsta ganga 100 kílómetra til styrktar Píeta samtökunum. Á eftir sér mun hann draga 100 kílóa sleða sem hann léttir á tíu kílómetra fresti.

Tölum saman um aðgengilegar sálfræðimeðferðir
Árið 2008 sótti ég sem ungur sálfræðinemi ráðstefnu í Berlín ásamt nokkrum kollegum mínum við Árósarháskóla. Ráðstefnan var á vegum EABCT sem eru Evrópusamtök um hugræna atferlismeðferð.

„Ég hef aldrei fylgt reglunum“
„Mér finnst þetta mjög spennandi tími núna en maður segir það alltaf held ég. Lífið á að vera síbreytilegt og það á að vera krefjandi. Þegar það skýtur manni úr kanónunni þá er betra að kunna að lenda,“ segir tónlistarkonan Emilíana Torrini. Blaðamaður ræddi við hana um viðburðaríkan feril hennar, tilveruna, væntanlega plötu hennar, samstarfið við Kylie Minogue og margt fleira.

„Heilt ár af því að upplifa lífið án deyfingar“
Bergrún Íris Sævarsdóttir rit- og myndhöfundur fagnaði eins árs edrúafmæli í gærkvöldi á Hamborgarafabrikkunni ásamt fjölskyldu sinni. Hún segist taka einn dag í einu þar sem alkahólismi er mun flóknari sjúkdómur en það eitt að leggja frá sér glasið.

Pawel sleppti því að drekka áfengi í mánuð
Pawel Bartozsek varaborgarfulltrúi Viðreisnar er á degi þrjátíu í áfengispásu. Hann segist aldrei hafa haft eins mikinn tíma í sólarhringnum. Pawel gerir þetta reglulega, einu sinni tvisvar á ári, oftast á vorin sem hann lýsir sem langbesta tímanum í þetta.

„Það er svo margt sem breyttist í lífi Grindvíkingsins“
Félagsráðgjafi í Grindavík segir áríðandi að tekið sé vel utan um Grindvíkinga. Það sé ekki nóg að byggja varnargarða um bæinn, heldur þurfi að verja fólkið líka. Hún segir marga í slæmri stöðu og að húsnæðisöryggi sé grunnurinn að því að tryggja fólki stöðugleika svo unnt sé að vinna betur að öðrum þáttum. Tryggja þurfi öllum nauðsynlegan stuðning.

Krúttlegustu starfsmenn geðdeildar fá ótrúlegasta fólk til að brosa
Sjálfskipaður tveggja kílóa móttökustjóri og ferfættur félagi hans sinna fjölbreyttu meðferðarstarfi á geðdeild Landspítalans. Verkefnin eru allt frá því að veita átröskunarsjúklingum stuðning eftir máltíðir yfir í einstaklingsmiðaðar meðferðir þar sem áherslan er á knús.

„Það er eins og þú þurfir að skera barnið þitt úr reipinu til að fá aðstoð“
„Fyrir okkur er þetta einfaldlega spurning um líf eða dauða. Við erum vanmáttug, við erum týnd og við erum alltaf í lausu lofti,” segja Adam Snær Atlason og Thelma Rut Hafliðadóttir, foreldrar þrettán ára stúlku sem glímir við flókinn og fjölþættan vanda. Þau hafa staðið í stappi undanfarin tíu ár við að fá viðeigandi úrræði fyrir dóttur sína hjá Akureyrarbæ en segjast koma allstaðar að lokuðum dyrum.

Fálkaorðuhafinn á Olís: „Lengi afneitaði ég því að Ragnar væri dáinn“
„Lengi afneitaði ég því að Ragnar væri dáinn. Ef fólk fór að tala um hann í þátíð, gekk ég í burtu. Því með því að tala ekki um að hann væri dáinn, náði ég að sannfæra mig um að kannski væri hann á lífi, segir Sesselja Vilborg Arnardóttir stöðvarstjóri Olís á Akureyri, fálkaorðuhafi og stofnandi Raggagarðs í Súðavík.

„Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“
„Ég bý við það óöryggi að ég held að enginn skilji mig,“ segir leikarinn Gunnar Smári Jóhannsson. Gunnar Smári er 31 árs gamall og hefur upplifað meira en flestir jafnaldrar hans. Sem barn missti hann báða foreldra sína sem og ömmu sína og afa og hefur hann tamið sér að ræða opinskátt um sorgina.

Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum
Næstum allir sem hætta á þunglyndislyfjum upplifa mikil fráhvarfseinkenni samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Þá var stór hluti þátttakenda enn með fráhvarfseinkenni eftir tvö ár. Vanlíðan var meiri en fyrir töku lyfjanna hjá mörgum þeirra sem tóku þátt. Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu um áhrif slíkra lyfja

Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki
Kristinn Óla Haraldsson þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann er með þekktari tónlistarmönnum landsins og hvað þekktastur undir nafninu Króli í tvíeykinu JóiPé og Króli. Króli skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 en ákvað fyrir nokkrum árum að draga sig í hlé frá tónlistinni til þess að sinna bæði leiklistinni og andlegri heilsu. Í síðustu viku sendi hann svo frá sér plötuna SCANDIPAIN ásamt Jóa og danska rapparanum Ussel. Blaðamaður ræddi við hann um listina, ástina og lífið.

Tilbrigðin um enda lífsins
Það hafa verið deilur af og til í ýmsum löndum heims og nú á Íslandi um rétt mannvera til að ákveða sjálfar hvenær líf þeirra endi. Auðvitað viljum við ekki að yngri kynslóðir tapi lífsgleðinni og endi það frá allskonar vanrækslu foreldra og samfélags.

Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar
Það var áhugavert að hlusta á útvarpsþátt um skaðaminnkun sunnudaginn 3. mars á RÚV og ekki síst viðtal við Árna Tómas Ragnarsson gigtarlækni, sem nú er greinilega „persona non grata“ hjá kollegum sínum og heilbrigðisyfirvöldum vegna lyfjagjafa hans til fólks með fíknivanda til skaðaminnkunar.

„Ég myndi aldrei vilja lenda í þessu aftur“
„Ég er ekki týpa sem pæli mikið í því hvað öðrum finnst,“ segir dansarinn, raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir. Hún er viðmælandi í Einkalífinu.

Íslensk ungmenni óhamingjusamari en eldri kynslóðir
Ísland vermir þriðja sætið á lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims. Þetta sýnir ný alþjóðleg hamingjuskýrsla. Talsverður munur er á hamingju ungmenna og þeirra sem eldri eru en íslensku ungmennin eru þó hamingjusamari en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum sem jafnan eru þau lönd sem Íslendingar bera sig saman við.