
Stjarnan

Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Stjarnan 89 -72 | Höttur stöðvaði sigurgöngu Stjörnunnar
Höttur stöðvaði fimm leikja sigurgöngu Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld með öruggum sigri, 89-72 á Egilsstöðum í kvöld. Höttur stjórnaði ferðinni meðan Stjarnan gerði fjölda sóknarmistaka eða hitti alls ekki.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 89-80 | Fimmti sigur Stjörnunnar í röð
Nýliðar Stjörnunnar hafa verið á miklu skriði í Subway-deild kvenna í körfubolta og liðið vann sinn fimmta sigur í röð, og þann sjötta í seinustu sjö leikjum, er liðið tók á móti Grindavík, 89-80.

„Það verða allir að sitja við sama borð“
Arnar Guðjónsson lét gamminn geyssa um vinnubrögð KKÍ í viðtali eftir sigur Stjörnunnar á Haukum í gær. Málið var rætt í Subway Körfuboltakvöldi í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Haukar 89-79 | Stjarnan þurfti ekki að skína skært til að vinna
Stjarnan mætti Haukum í seinni hluta tvíhöfða á milli körfuboltaliða félaganna. Fyrr í dag hafði kvennalið Stjörnunnar unnið góðan sigur og karlaliðið fylgdi á eftir með nokkuð öruggum tíu stiga sigri, 89-79, í áttundu umferð Subway-deildarinnar.

Arnar harðorður í garð skrifstofu KKÍ: „Þetta er algjörlega ólíðandi“
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var í vígahug þegar hann mætti til viðtals þrátt fyrir að vera nýbúinn að vinna nokkuð öruggan tíu stiga sigur á Haukum í Subway-deild karla. Það átti eftir að koma í ljós fljótlega í viðtalinu hvers vegna.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Haukar 77-75 | Stjarnan á skriði eftir nauman sigur
Stjarnan vann nauman tveggja stiga sigur er liðið tók á móti Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í dag, 77-75. Þetta var fjórða tap Hauka í röð, en Stjörnukonur hafa nú unnið þrjá í röð.

„Heilt yfir fannst mér dómgæslan hjá tveimur dómurum mjög skrýtin“
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka í Subway-deild kvenna í körfubolta, var eðlilega svekktur eftir tveggja stiga tap gegn Stjörnunni í dag. Lokatölur 77-75, en Bjarna fannst dómgæslan í leiknum halla á sitt lið.

Sigurgeir Jónsson: Ágætis kaflar en mistök og klúður gerðu okkur erfitt fyrir
Stjarnan mátti þola enn eitt tapið í Olís deild kvenna þegar liðið heimsótti Fram í Úlfarsárdalinn. Eftir góða byrjun misstu þær algjörlega tökin á leiknum í seinni hálfleik og töpuðu að endingu með ellefu mörkum, 33-22.

Umfjöllun og myndir: Fram - Stjarnan 33-22 | Öruggur ellefu marka sigur í Úlfarsárdal
Fram styrkti stöðu sína í 3. sæti Olís deildar kvenna með öruggum 33-22 sigri gegn Stjörnunni, sem situr áfram á botninum eftir tíu leiki. Þetta var síðasti leikur liðanna áður en haldið er í langt landsleikjahlé vegna heimsmeistaramótsins, næsta umferð fer fram 6. janúar 2024.

Markakóngurinn fer ekki neitt og þakkar Silfurskeiðinni
Emil Atlason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Stjörnuna og spilar því áfram með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta.

Stjarnan riftir og Haraldur án félags
Markvörðurinn Haraldur Björnsson er samningslaus eftir að samningi hans við Stjörnuna var rift.

„Vil ekki leyfa greiningunni að taka yfir allt“
Ásta Kristinsdóttir, landsliðskona í hópfimleikum, hefur gengið í gegnum krefjandi tíma undanfarið. Hún greindist með flogaveiki fyrr á árinu. Greining sem varð til þess að einn af draumum hennar verður ekki að veruleika.

Jón Halldór fór í saumana á rifrildi Pavels og Arnars
Pavel Ermolinskij og Arnar Guðjónsson þjálfarar Tindastóls og Stjörnunnar áttu í orðaskiptum eftir leik liðanna í Subway-deildinni á fimmtudag. Farið var yfir málið í Subway Körfuboltakvöldi.

Stjarnan tapaði með minnsta mun í báðum Olís-deildunum
Fram vann Stjörnuna með minnsta mun í Olís deild karla á sama tíma og Valur vann Gróttu með tíu marka mun. Í Olís-deild kvenna vann Afturelding eins marks sigur á Stjörnunni.

Umfjöllun: Tindastóll - Stjarnan 78-84 | Stjarnan kláraði meistarana í framlengingu
Stjarnan vann virkilega sterkan átta stiga sigur er liðið heimsótti Íslandsmeistara Tindastóls í framlengdum leik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 78-84.

Stjarnan kynnir nýtt þjálfarateymi: Björn Berg úr takkaskónum í þjálfaraúlpuna
Stjarnan tilkynnti í kvöld þjálfarateymi liðsins fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í knattspyrnu. Björn Berg Bryde fer úr takkaskónum og tekur að sér starf aðstoðarþjálfara. Þá er Elías Hlynur Lárusson kominn frá Íslands- og bikarmeisturum Víkings.

„Þá föttuðum við allt í einu að við þurfum að spila af krafti varnarlega“
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var kampakátur þegar hann kom til tals við blaðamann eftir sigur Stjörnunnar gegn toppliði Vals í 5. umferð Subway deildar karla.

Umfjöllun: Valur - Stjarnan 77-86 | Sjóðheitir Stjörnumenn steyptu Val úr toppsætinu
Valur tók á móti Stjörnunni í 5. umferð Subway deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með 77-86 gestasigri eftir sterkan seinni hálfleik hjá Stjörnunni. Valsmenn missa þar af leiðandi toppsætið í deildinni.

Sædís Rún æfir með Chelsea
Íslenska landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er flogin til Englands þar sem hún mun æfa með Englandsmeisturum Chelsea næstu daga.

Körfuboltakvöld: Pétur fer yfir hvernig Keflavík ætlaði að reyna stöðva Ægi Þór
Stjörnumaðurinn Ægir Þór Steinarsson hefur verið magnaður það sem af er tímabili í Subway-deild karla í körfubolta. Í síðasta þætti Körfuboltakvölds var rætt við Pétur Ingvarsson, þjálfara Keflavíkur, og farið yfir hvernig hann ætlaði að reyna stöðva Ægi Þór.

Fyrsti sigur Stjörnunnar kom gegn ÍBV | KA/Þór lagði Fram
Stjarnan vann fjögurra marka sigur á ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, lokatölur 26-22. KA/Þór vann þá eins marks sigur á Fram, lokatölur í Grafarholti 21-22.

Stjarnan sótti sigur á Selfoss
Stjarnan vann Selfoss með fjögurra marka mun í Olís-deild karla í handbolta. Selfoss situr því áfram á botni deildarinnar með aðeins einn sigur í fyrstu átta leikjum sínum á leiktíðinni.

Kristján í Garðabænum til 2025
Knattspyrnuþjálfarinn Kristján Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun stýra liðinu út tímabilið 2025.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 87-81 | Stjarnan með endurkomusigur í Garðabæ
Eftir að hafa lent nítján stigum undir í fyrri hálfleik sneri Stjarnan taflinu við í seinni hálfleik og vann að lokum sex stiga sigur 87-81.

Arnar um stórleik Ægis: Hann æfir eins og hann spilar
Stjarnan vann endurkomusigur gegn Keflavík á heimavelli 87-81. Stjarnan var mest nítján stigum undir og Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar ánægður með sigurinn.

Arnar sér eftir orðum sínum: „Ógeðslega lélegt af mér“
Arnar Guðjónsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í körfubolta, skammast sín fyrir ummæli í leikhléi í leik Stjörnunnar og Njarðvíkur í Subway deild kvenna í gærkvöldi þar sem að hann kallaði leikmann Njarðvíkur feita. Hann segir ekkert afsaka slíka hegðun, þetta sé honum ekki til framdráttar.

Fjórfaldur portúgalskur meistari til Stjörnumanna
Stjörnumenn hafa styrkt karlalið sitt og tefla fram mögulega nýjum leikmanni á móti Keflavík í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 81-87 | Stjörnusigur eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni
Njarðvík mistókst að halda sigurhrinu sinni gangandi þegar Stjarnan heimsótti þær í kvöld. Framlengingu þurfti til að skilja liðin að en Stjörnukonur unnu að endingu með sex stigum. Æsispennandi leikur þar sem ungir leikmenn liðanna voru í aðalhlutverki.

Haukar gengu örugglega frá Eyjakonum
16-liða úrslitum Poweradebikars kvenna lauk í kvöld með nokkuð óvæntum úrslitum. Íslandsmeistarar Vals sátu hjá þessa umferð og fara beint í þá næstu.

Systkini gera það gott hjá Stjörnunni og eiga ekki langt að sækja hæfileikana
Systkini að Vestan eru að vekja töluverða athygli í Subway deildunum í körfubolta núna í upphafi tímabils með liðum Stjörnunnar. Þau Kolbrún María og Ásmundur Múli koma af miklu körfuboltaheimili og stefna langt í íþróttinni.