Keflavík ÍF

Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 2-2 | Skagamenn köstuðu frá sér tveggja marka forystu
Skagamenn eru enn á botni Pepsi Max deildarinnar eftir 2-2 jafntefli gegn Keflavík í kvöld. ÍA komst í 2-0 en glutraði niður forystunni.

Umfjöllun og viðtöl: Þór - Keflavík 81-66 | Þórsarar Íslandsmeistarar í fyrsta sinn
Þór Þorlákshöfn varð Íslandmeistari í körfubolta í fyrsta sinn með sigri gegn Keflavík en liðin mættust í fjórða leik úrslitaeinvígisins í kvöld.

Þórsarar vita örugglega af örlögum ÍR-inga, Stjörnumanna og Valsara
Þórsliðið getur annan leikinn í röð tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í kvöld þegar Keflvíkingar mæta í Icelandic Glacial höllina í Þorlákshöfn í fjórða leik úrslitaeinvígis Domino's deildar karla í körfubolta.

„Þyrfti að henda ansi mörgum bolum og derhúfum“
Brynjar Þór Björnsson, sem unnið hefur átta Íslandsmeistaratitla með KR, hefur trú á því að Þór Þorlákshöfn verði Íslandsmeistari í körfubolta í fyrsta sinn í kvöld. Brynjar segir gríðarlega pressu vera á Keflvíkingum.

„Minnti á KR-liðið sem vann alla þessa titla“
Rætt var um magnaðan varnarleik Keflvíkinga og Þórslið sem var mjög ólíkt sjálfu sér í Dominos Körfuboltakvöldi, eftir að Keflavík minnkaði muninn í 2-1 í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Breiðablik 2-0 | Keflvíkingar slógu út Blika eftir framlengingu
Keflavík er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-0 sigur á Breiðablik í framlengdum leik í Keflavík.

Sigurður Ragnar: Stórkostleg úrslit hjá strákunum
„Þetta var frábært, ég er virkilega stoltur af strákunum. Við höldum hreinu og spilum frábæran varnarleik,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur eftir að hans menn tryggðu sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins með sigri á Breiðablik.

Dominykas Milka felldi Drungilas í gær en komst upp með
Þrír dómarar misstu af því í gær þegar Keflvíkingurinn Dominykas Milka felldi Þórsarann Adomas Drungilas í þriðja leik úrslitaeinvígis Keflavíkur og Þórs.

Hörður Axel ræddi atvikið þegar hann skemmdi tölvuna hans Rikka G
Hörður Axel Vilhjálmsson, fyrirliði Keflavíkur, mætti ekkert syngjandi glaður á háborðið í Domino's Körfuboltakvöldi eftir sigur Keflvíkinga í gær. Góður sigur en Keflavík en ennþá undir í einvíginu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 97-83 | Keflavík fær líflínu
Keflvíkingar eru ekki á leiðinni í sumarfrí alveg strax, en þeir unnu góðan 14 stiga sigur gegn Þórsurum þriðja leik úrslitaeinvígis Domino's deildar karla. Lokatölur 97-83 og staðan því 2-1 í einvíginu, Þórsurum í vil.

„Þórsarar ráða bara mjög illa við hann“
Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var ánægður með leik sinna manna í sigrinum gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld.

Keflvíkingar risu fyrstir upp frá dauðum en ekkert lið náð því í úrslitunum
Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvígi sínu á móti Þórsurum. Staðan er einföld. Eitt tap í viðbót og yfirburðarlið deildarkeppninnar missir Íslandsmeistaratitilinn til Þorlákshafnar.

„Hef áhyggjur af Keflavík en neita að trúa því öðru en þeir vinni allavega einn leik“
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur og einn sérfræðinga Domino's Körfuboltakvölds, neitar að trúa því að Keflavík vinni ekki leik gegn Þór Þ. í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.

Þrjú félög hafa unnið sinn fyrsta titil í Keflavík og Þór getur bæst í hópinn í kvöld
Þór getur í kvöld orðið fjórða félagið til að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á gólfinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut.

Miðakerfið hrundi á þriðja leik Keflavíkur og Þórs en Þórsarar eiga enn inni 52 miða
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur sent frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna sölu miða á þriðja úrslitaleik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn sem fer fram annað kvöld.

„Ég býst við að skora fleiri mörk“
Annan sigurleikinn í röð er það Joey Gibbs sem skorar mörkin hjá Keflavík, í þetta sinn í 1-0 sigri á Leikni á heimavelli.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Leiknir 1-0 | Annar sigur Keflvíkinga í röð
Keflavík hafði betur gegn Leikni í nýliðaslagnum og er búið að vinna tvo leiki í röð.

„Kannski ekki maðurinn sem við bjuggumst við að myndi skjóta á sig nýtt rassgat hérna“
Finnur Jónsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, sagði að það hafi reynst liðinu erfitt að lenda undir í fyrri hálfleik gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld og þurfa að klóra sig til baka. Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvíginu og með bakið upp við vegg.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 88-83 | Þórsarar stóðust áhlaupið og eru einum sigri frá titlinum
Þór Þ. vann fimm stiga sigur á Keflavík, 88-83, í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Þórsarar geta tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sigri í þriðja leik liðanna í Keflavík á þriðjudaginn.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 1-0 | Heimastúlkur höfðu betur í nýliðaslagnum
Botnlið Tindastóls hefur tapað fimm leikjum í röð en Keflavík er í fínum málum eftir tvo sigurleiki í röð.

Ísak Óli kveður Keflavík og semur við Esbjerg
Ísak Óli Ólafsson mun ekki spila meira með Keflavík í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu þar sem hann er á leið til Danmerkur til að skrifa undir samning hjá Esbjerg.

Ragnar Bragason: „Kannski erum við það vitlausir að trúa því að við getum unnið“
Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var valinn meður leiksins þegar liðið mætti Keflavík í fyrstu viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla. Þórsarar unnu stórsigur, 91-73 og Ragnar Örn mætti í settið eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 73-91 | Þórsarar með forystu í einvíginu eftir frábæran útisigur
Þór frá Þorlákshöfn er komið í 1-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Sigur þeirra var öruggur og deildarmeistarar Keflavíkur áttu einn sinn slakasta leik á tímabilinu.

Spilum bara körfubolta og útkljáum þetta á vellinum
Lárus Jónsson var rólegheitin uppmáluð eftir sigur Þórs frá Þorlákshöfn gegn Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að Þórsarar eru 1-0 yfir í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - HK 2-0 | Joey Gibbs tryggði heimamönnum sigur í fallslagnum
Keflavík vann frábæran 2-0 sigur á HK er liðin mættust í botnslag í Pepsi Max deild karla í dag. Joey Gibbs skoraði bæði mörk heimamanna sem lyfta sér upp úr botnsætinu með sigrinum.

Möguleiki Þórs lítill en felst í hröðum leik
Til að Þór Þ. eigi möguleika gegn Keflavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn þarf liðið að eiga sinn besta leik og vonast til að Keflvíkingar spili undir pari. Þetta segir Einar Árni Jóhannsson, annar þjálfara Hattar.

Keflvíkingar geta skrifað sögu úrslitakeppninnar í körfubolta í kvöld
Keflavík getur í kvöld orðið fyrsta liðið í sögu úrslitakeppni karla í körfubolta til að vinna sjö fyrstu leiki sína í úrslitakeppni. Ekkert lið í 37 ára sögu úrslitakeppninnar hefur byrjað úrslitakeppni á svo mörgum sigrum í röð.

Eygló Kristín frá KR til Keflavíkur
Körfuknattleikskonan Eygló Kristín Óskarsdóttir hefur samið við Keflavík um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Hún kemur frá KR sem féll úr Domino´s deild kvenna á nýafstaðinni leiktíð.

Hörður Axel með miklu fleiri stoðsendingar en skot í einvíginu á móti KR
Hörður Axel Vilhjálmsson, fyrirliði Keflavíkur, stjórnaði leik liðsins í einvíginu á móti KR og var heldur betur óeigingjarn í leikjunum þremur.

Sungu hátt og kröftuglega fyrir Deane Williams í beinni
Deane Williams mætti á háborðið í Domino's Körfuboltakvöldi í gærkvöldi eftir þriðja sigur Keflvíkinga á KR en Keflavíkurliðið var þá fyrsta liðið í átta ár til að slá KR út úr úrslitakeppninni.