
Keflavík ÍF

„Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, gat að lokum fagnað sigri í kvöld gegn Njarðvík en það tók sinn tíma. Framlengja þurfti leikinn í tvígang og spennustigið var hátt, lokatölur í Keflavík 94-91.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir
Keflavík er komið 1-0 yfir í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta eftir ótrúlegan sigur á Njarðvík í tvíframlengdum leik. Ef marka má leik kvöldsins verður einvígið algjör veisla allt til enda.

Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki
Bikarmeistarar Víkings eru komnir áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta. Sömu sögu er að segja af Keflavík og Fylki.

Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu
Keflavík og Njarðvík hefja í kvöld úrslitaeinvígi sitt um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta.

Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu
Landsliðskonan Birna Valgerður Benónýsdóttir mun ekki geta tekið þátt í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta með Keflavík.

„Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var stoltur af sínu liði þrátt fyrir stórt tap gegn Grindavík í kvöld og að liðið hafi náð að koma einvíginu í fimm leiki án þeirra besta leikmanns.

Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik
Grindavík er komið í úrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir einhvern ótrúlegasta oddaleik síðari ára.

Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum
Þór/KA vann góðan 4-0 heimasigur á Keflavík í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Akureyri í dag. Fyrir leikinn var Þór/KA í þriðja sæti deildarinnar með níu stig en gestirnir í botnsætinu án stiga.

Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum
Grindavík og Keflavík spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta.

Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld
Það er sannkallaður hátíðardagur hjá körfuboltaunnendum því í kvöld fara fram tveir oddaleikir í Subway-deild karla. Slíkt gerist ekki á hverju ári.

„Þetta var rosalega heimsk villa hjá mér í endann“
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar hennar í Keflavík eru komnar í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta eftir rosalegt einvígi við Stjörnuna. Einvígið endaði með æsispennandi oddaleik í gær.

„Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“
Sverri Þór Sverrissyni, þjálfara Keflavíkur, var auðsýnilega mjög létt í leikslok þegar Keflavík lagði Stjörnu í oddaleik í 4-liða úrslitum Subway-deildar kvenna, lokatölur í Keflavík 81-76.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit
Keflavík er komið í úrslit Subway-deildar kvenna í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Stjörnunni í oddaleik. Deildar- og bikarmeistarar Keflavíkur þurftu heldur betur að hafa fyrir hlutunum gegn nýliðum Stjörnunnar í rimmu sem mun seint gleymast.

Keflavíkurkonur hafa aldrei tapað oddaleik á heimavelli
Augun verða á Blue höllinni í Keflavík í kvöld þar sem deildar- og bikarmeistarar Keflavíkur taka á móti ungu liði Stjörnunnar í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild kvenna í körfubolta.

Fyrsta skiptið í úrslitakeppninni eftir „Guð blessi Ísland“
Keflvíkingar tryggðu sér í gær oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Grindavík í úrslitakeppni Subway deild karla í körfubolta. Það þýðir að við fáum oddaleik í báðum undanúrslitaeinvígunum í ár.

„Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“
„Það er bara tilhlökkun. Þetta verður verðugt verkefni, okkur hlakkar til að taka þátt í þessu. Það verður margt fólk og mikil stemning,“ segir Arnar Guðjónsson um oddaleik liðs hans Stjörnunnar við Keflavík í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld.

„Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“
Sigurður Pétursson átti frábæran leik í gær þegar Keflavíkurliðið þurfti svo mikið á honum að halda. Keflavík tryggði sér oddaleik með 89-82 sigri á Grindavík. Sigurður ræddi meðal annars samfélagsmiðlafærslu og rauðrófusafa í viðtalinu eftir leikinn.

Utan vallar: Mótlæti smakkast vel í Keflavík
Ef það er eitthvað sem einkennir þetta tímabil í Keflavík þá er það magnaður hæfileiki karlaliðsins til að takast á við mótlæti. Þeir sýndu það enn á ný í gær með því að tryggja sér oddaleik um laust sæti í úrslitaeinvíginu í Subway deild karla í körfubolta.

„Verður gönguferð í garðinum fyrir þá“
„Við spiluðum bara góðan leik í kvöld. Það eru 44 klukkutímar þar til næsti leikur er. Það verður erfitt að gera mannskapinn tilbúinn fyrir það,“ sagði Pétur Ingvarsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn á Grindavík í kvöld.Framundan í einvígi liðanna er oddaleikur á þriðjudag.

„Allt þetta umtal um hvernig hann hagar sér er orðið þreytt“
Jóhann Þór Ólafsson sagði sína menn hafa spilað hræðilega í þrjátíu mínútur í tapinu gegn Keflavík í kvöld. Hann svaraði fyrir gagnrýni á DeAndre Kane og sagðist vera orðinn þreyttur á umtalinu um sinn mann.

Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik
Keflavík vann 89-82 sigur á Grindavík í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildarinnar. Sigurinn tryggir Keflvíkingum oddaleik þar sem ræðst hvaða lið kemst í úrslitin.

Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu
Bragi Karl Bjarkason var hetja ÍR þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Grindavík í 2. umferð Lengjudeildar karla í kvöld. Þá vann Grótta Keflavík, 1-0.

Spilar með bróður sínum og fyrir föður sinn hjá Keflavík
Körfuboltamaðurinn Hilmar Pétursson hefur samið við Keflavík. Þar hittir hann fyrir föður sinn, Pétur Ingvarsson, og bróður, Sigurð.

Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 86-79 | Einvígið á leið í oddaleik
Stjarnan og Keflavík mættust í fjórða sinn í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Keflavík gat með sigri sent Stjörnuna í sumarfrí en ólseigar Stjörnustúlkur neituðu að gefast upp.

„Eigum ekki skilið að vera komin í úrslitin“
Keflavík tapaði gegn Stjörnunni á útivelli 86-79. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, var afar svekktur eftir tap dagsins.

„Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var daufur í dálkinn þegar Andri Már Eggertsson tók hann tali eftir stórt tap hans manna gegn Grindavík í kvöld en lokatölur leiksins urðu 96-71.

Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó
Valur heimsótti Keflavík suður með sjó í kvöld þegar liðin mættust í 4. umferð Bestu deildar kvenna. Eftir flottan fyrri hálfleik hjá Keflavík voru það Valsarar sem snéru þessu við og unnu 1-2 sigur.

Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga
Grindavík fékk Keflavík í heimsókn í undanúrslitaeinvígi liðanna í úrslitakeppni Subway-deildar karla. Gestirnir jöfnuðu einvígið í dramatískum leik í Keflavík en voru eins og skugginn af sjálfum sér í kvöld.

Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn
Það sauð upp úr í Keflavík um helgina er heimamenn tryggðu sér ævintýralegan sigur á Grindavík í undanúrslitum Subway-deildar karla.

„Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“
Keflavík lagði Stjörnuna af velli í þriðja leik liðana í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Blue-höllinni í Keflavík, lokatölur 87-78.