
Réttindi barna

Stórar og flóknar tilfinningar sem aðstandendur glíma við
„Margir þeirra sem leita til okkar þurfa fyrst og fremst áheyrn. Þau koma til okkar og segja: Ég hef engan að tala við. Ég get ekki rætt þetta við fjölskylduna eða vini mína. Fólki finnst erfitt að tjá sig um þetta og upplifir líka að aðrir vilji ekki hlusta,“ segir Eiríkur Steinarsson sem er fjölskyldufræðingur hjá Bjargráð ásamt Jennýju Þórkötlu Magnúsdóttur.

Breytingar á lögum um útlendinga – neikvæð áhrif á réttindi og vernd barna á flótta
Félagasamtök sem vinna að bættum réttindum barna, hvetja til þess að frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga sem nú er til meðferðar á Alþingi Íslendinga verði ekki samþykkt án breytinga.

Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk
Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum.

Að standa vörð um réttindi og velferð barna um allan heim frá Íslandi
Steinsnar fyrir utan iðandi mannlíf Kaupmannahafnarborgar er 20.000 fermetra húsnæði sem hýsir um 5.000 vörur. Þar vinna ótal vélmenni dag og nótt við að taka á móti vörum og skila vörum sem hafa verið unnar og pakkað inn.

Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins
Maður sem var sem unglingur vistaður á Unglingaheimili ríkisins í Kópavogi lýsir vítisvist. Innilokunum, barsmíðum og kynferðislegu ofbeldi. Tveir starfsmenn hafi sparkað úr honum tennurnar þegar þeim mistókst að koma fram vilja sínum. Sanngirnisbætur sem hann fékk á sínum tíma hafi ekki einu sinni dugað fyrir tannlækniskostnaði.

Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára
Breskir þingmenn kalla nú eftir því að farsímar verði alfarið bannaðir fyrir börn sem eru 16 ára og yngri og bannaðir alveg í skólum. Þá er einnig kallað eftir því að aðgangur að samfélagsmiðlum verði bundinn við sama aldur.

„Það er svo ótrúlega erfitt að vera synjað um að hitta börnin sín”
„Hvað hafa börnin mín gert? Það var ég sem braut af mér en ekki börnin mín. En samt voru það börnin mín sem þurftu örugglega að gjalda mest fyrir þetta. Það er mjög erfitt fyrir mig að díla við það, ég er bara hérna einn á meðan fjölskyldan mín er heima að líða ömurlega. Ég er ekki í neinni aðstöðu til að vera til staðar fyrir börnin,“ segir íslenskur karlmaður sem afplánar dóm í fangelsi.

Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna
Umboðsmaður barna hefur sent Strætó bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um verklagsreglur þess varðandi samskipti við börn og hvernig vagnstjórum beri að tryggja öryggi þeirra.

Eru stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta?
„Börn sem þurfa að flýja heimaland sitt sem flóttamenn eiga rétt á vernd og stuðningi við að nýta sér þau réttindi sem þau eiga samkvæmt Barnasáttmálanum í nýja landinu.“ Svona hljóðar 22. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um börn sem flóttamenn.

Stutt við barnafjölskyldur
Á Alþingi var vikunni mælt fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2024, en við vinnslu fjárlaga lá ekki fyrir með hvaða hætti stjórnvöld myndu koma að gerð kjarasamninga. Með frumvarpi til fjáraukalaga er nú verið að leita aukinna fjárheimilda til Alþingis vegna samninganna.

Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir í dag nýtt Mælaborð farsældar barna. Um er að ræða nýtt verkfæri sem er hannað til að styðja við innleiðingu farsældarlaganna og innleiða gagnadrifna stefnumótun hvað hag barna varðar. Kynning hefst klukkan 9 og er hægt að horfa í beinu streymi.

Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum
Þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár og sérstaklega í kringum heimsfaraldur Covid. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir yfirlæknir bólusetninga segir ákveðnar bólusetningar hafa verið settar á bið þá vegna annarra forgangsverkefna. Enn sé verið að vinna það upp.

Leitinni að foreldrunum lauk á hörmulegum nótum
Tinna Rúnarsdóttir hóf leit að blóðforeldum sínum á Srí Lanka fyrir um mánuði. Þar fæddist hún í nóvember árið 1984. Þremur mánuðum síðar var hún ættleidd til Íslands. Tinna sagði sögu sína á Vísi um helgina og fékk á sama tíma afar erfiðar fréttir um afdrif blóðforeldra sinna.

Skrítin tilfinning að vera mögulega búin að finna mömmu sína
Tinna Rúnarsdóttir ákvað fyrir um mánuði að nú væri kominn tími til að leita uppruna síns. Tinna er fædd árið 1984 og var ættleidd til Íslands frá Srí Lanka 1985. Með aðstoð Auri Hinriksson hefur hún að öllum líkindum fundið þau og langar út til Srí Lanka.

Óánægja með tilraunaverkefni í frístund: „Okkar hópur logar bara, á okkar leikskóla“
Foreldrar barna sem eiga að fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í vor eru einhverjir ósáttir við stuttan fyrirvara á tilraunaverkefninu. Þá finnst þeim kostnaður of mikill, óheppilegt að frí sé ekki á sama tíma og í leikskóla og of lítið samráð við bæði foreldra og fagaðila.

Fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í júní
Foreldrum fimm og sex ára barna í sautján leikskólum í Reykjavíkur var tilkynnt í gær að þau fái uppsögn á sínu leikskólaplássi fyrir 30. apríl og að uppsögn taki gildi 10. júní. Börnum þeirra verður í staðinn boðið pláss í frístund í þeim grunnskólum sem þau eiga að hefja grunnskólagöngu sína í næsta haust.

Yngstu börnin innrituð í Garðabæ og Mosfellsbæ
Á höfuðborgarsvæðinu er nú unnið að því að innrita börn í leikskóla fyrir bæði næsta haust og sum þetta vorið. Um er að ræða árganga barna sem fæddust árin 2022 og 2023 en misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu langt þau ná inn í árið 2023.

„Ekki fleiri íbúafundi!“
Hundruð grindvískra barna komu saman á fundi í Laugardalshöll í dag, þar sem þau ræddu stöðu sína vegna jarðhræringanna við heimabæinn.

Boðað til fundar með börnum frá Grindavík
Umboðsmaður barna býður 6-17 ára börnum frá Grindavík til fundar í Laugardalshöll á fimmtudag. Markmið fundarins er að heyra hvað börnunum liggur á hjarta og átta sig á því hvernig stjórnvöld geta með sem bestum hætti staðið vörð um réttindi þeirra við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Fær pláss á leikskóla nokkrum mánuðum fyrir þriggja ára afmælið
Stefán Þorri Helgason er einn þeirra fjölmörgu foreldra í Reykjavík sem bíður þess að fá pláss fyrir barnið sitt á leikskóla. Miðað við nýjustu upplýsingar sem hann hefur fengið frá Reykjavíkurborg gerir hann ráð fyrir að koma dóttur sinni að næsta haust þegar um þrír mánuðir eru í að hún verði þriggja ára.

Skipulagði barnsránið alveg ein: „Ég gefst aldrei upp fyrir þeim“
Edda Björk, sem bíður þess að afplána tuttugu mánaða dóm frá Noregi fyrir barnsrán, er einn sex grunaðra í rannsókn lögreglunnar í máli er varðar þrjá drengi hennar. Hún segir ömurlegt að börnin hennar lýði fyrir brot sem hún framdi en segist, þrátt fyrir dóm og enga forsjá, ekki sjá eftir því að hafa sótt drengina til Noregs í mars 2022.

Dæmd í Noregi og ein sex grunaðra í rannsókn lögreglu á Íslandi
Edda Björk Arnardóttir, sem bíður þess að afplána tuttugu mánaða dóm frá Noregi fyrir barnsrán, er einn sex grunaðra í rannsókn lögreglunnar í máli er varðar þrjá drengi hennar. Hún fékk dóm fyrir svipað brot í Noregi í janúar. Hún segir ömurlegt að börnin hennar lýði fyrir brot sem hún framdi.

Ungt fólk þyrst í fræðsluefni um kynheilbrigði
Nýlega gáfu Samtök um kynheilbrigði út nýja handbók, Kynheilbrigði og vellíðan ungs fólks, fyrir kennara í framhaldsskólum til að kenna um kynheilbrigðismál. Tilgangur handbókarinnar er að stuðla að kynheilbrigði ungs fólks. Ritstjórar efnisins eru Sóley og Yvonne K. Fulbright, kynfræðingur.

Klámáhorf ungmenna dregist verulega saman
Yfirgnæfandi hluti barna í 8. til 10. bekk í Reykjavík reykja ekki, neyta ekki marijúana og hafa ekki orðið ölvuð síðustu 30 daga. Þá hefur áhorf á klám dregist verulega saman síðustu tvö ár og meirihluta barna líður vel í skólanum.

Starfsfólk eigi ekki að breytast í rannsóknarlögreglumenn
Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur hjá Barna- og fjölskyldustofu, segir áríðandi að allir sem vinni með börnum þekki einkenni þess að verið sé að beita barn ofbeldi eða tæla það.

Tveir drengir handteknir á mótmælum barna
Tveir drengir voru handteknir á Austurvelli í morgun á mótmælum nemenda í Hagaskóla. Vitni segja engan sérstakan aðdraganda hafa verið að handtöku drengjanna. Yfirlögregluþjónn segir þá hafa ekki hlýtt fyrirmælum, hindrað störf lögreglu og framið skemmdarverk.

Óskar eftir því að dómur Hæstaréttar verði ræddur í nefnd
Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur óskað þess að allsherjar- og menntamálanefnd taki til umræðu nýjan dóm Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Brynjari Joensen Creed og hvort að breyta þurfi ákvæðum hegningarlaga til að vernda börn betur.

Grein um Farsæld og kærleiksríka nálgun
Á síðasta ári fór í loftið heimasíða sem ber heitið Farsæld barna. Á síðunni eru upplýsingar um allt sem tengist nýrri löggjöf sem tók gildi 1. janúar 2022 og heitir Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (lög nr. 86 frá árinu 2021).

Kristín Ýr ráðin kynningar- og markaðsstjóri Barnaheilla
Kristín Ýr Gunnarsdóttir mun hefja störf sem kynningar- og markaðsstjóri hjá Barnaheillum 1. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheillum.

Hefur barnið þitt tíma til að leika sér?
Í nútíma samfélagi er alltaf nóg um að vera. Við höfum aðgang að öllum heimsins upplýsingum í gegnum snjalltækin okkar og getum náð í flesta hvenær sem er dagsins. Margir foreldrar tala í auknum mæli um streitu sem fylgir foreldra hlutverkinu í nútíma samfélagi enda að mörgu að hyggja.