
Box

Icebox haldið í fimmta sinn: „Mæta nógu snemma og sjá alla“
Icebox verður haldið í 5. sinn í Kaplakrika í kvöld. Uppselt er á viðburðinn og mælt er með því að gestir mæti fyrr heldur en seinna til að ná sem bestum sætum. Stöð 2 Sport sýnir beint frá aðalbardögum kvöldsins og hefst útsending klukkan 20.00.

Hefur þénað milljarða í íþrótt sinni en býr enn heima hjá mömmu
Hnefaleikakappinn Anthony Joshua hefur þénað yfir sjö milljarða króna á glæsilegum ferli sínum en sagði frá því í nýju viðtali við Louis Theroux að þrátt fyrir auðæfin sín þá býr hann samt enn heima hjá mömmu sinni.

Ætlar ekki að áfrýja þrátt fyrir að hafa fundist hann vera rændur í Ríad
Francis Ngannou ætlar ekki að áfrýja þeirri ákvörðun að dæma Tyson Fury sigur í bardaga þeirra um helgina.

Opinberar hvað hann sagði við Fury eftir að hafa slegið hann niður
Francis Ngannaou hefur greint frá því hvað hann sagði við Tyson Fury þegar hann sló heimsmeistarann í gólfið í bardaga þeirra í Sádi-Arabíu um helgina.

Pabbi Furys skoraði á Mike Tyson í slag
John Fury, pabbi boxarans Tysons Fury, stal senunni á blaðamannafundi fyrir bardaga sonarins gegn Francis Ngannou.

Segir fólki að hætta að hneykslast á áhrifavöldum og horfa á stóru myndina
Fyrrum heimsmeistari í hnefaleikum er ekki einn af þeim sem gagnrýnir bardaga áhrifavalda sem eru mjög áberandi þessa dagana í bardagaheiminum.

Margfaldur meistari nýr yfirþjálfari Mjölnis
Beka Danelia, margfaldur georgískur meistari í hnefaleikum, hefur verið ráðinn nýr yfirþjálfari hnefaleika hjá Mjölni.

Kolli enn ósigraður: Tæknilegt rothögg í annarri lotu
Kolbeinn Kristinsson vann bardaga sinn gegn Englendingnum Michael Bassett á tæknilegu rothöggi þegar þjálfari andstæðings hans, kastaði inn handklæðinu þegar tvær mínútur voru liðnar af 2. lotu.

Gunnar Kolbeinn snýr aftur í hringinn
Hnefaleikakappinn Gunnar Kolbeinn, sem er aldrei kallaður annað en Kolli, snýr aftur í hringinn þann 30. September í Sofiensale í Vínarborg þar sem hann mætir Michael Bassett frá Englandi.

Þjálfarinn handtekinn með skotvopn eftir frækinn sigur
Þjálfari Chris Eubank yngri var handtekinn á flugvelli í Manchester fyrir vörslu skotvopna í gær, degi eftir frækinn sigur breska boxarans.

Ef þið eruð góð í salsa eru þið góð í boxi
„Við höfum opnað fullkomnustu hnefaleikaaðstöðu á landinu og með þeim betri í Evrópu,“ segir Davíð Rúnar Bjarnason, yfirþjálfari World Class Boxing Academy en starfsemin er komin á fullt í endurbættu og glænýju húsnæði í Gamla Morgunblaðshúsinu við Kringluna.

Gekk af göflunum á blaðamannafundi og bauð mönnum birginn
John Fury, faðir hnefaleikakappanna Tyson og Tommy Fury, tók bræðiskast á blaðamannafundi fyrir bardaga fyrrnefnda sonarins sem haldinn var í gær.

„Pældu í því hvað þú gætir keypt mikið kókaín, dópistinn þinn“
Logan Paul hefur brugðist við orðum Conor McGregor um bardaga Paul gegn Dillon Danis í október. Paul segist vera tilbúinn að veðja milljón dollurum á eigin sigur í bardaganum.

Ekkert verður af bardaga Musk og Zuckerberg
Ekkert verður af bardaga auðjöfranna Elon Musk og Mark Zuckerberg. Forseti UFC, Dana White, hafði gefið það út að báðir væru þeir reiðubúnir til að mætast í hringnum en nú segir Zuckerberg að Musk sé ekki alvara og því muni hann finna sér andstæðing sem taki íþróttinni alvarlega.

Jake Paul sigraði enn einn MMA-kappann
Youtube-stjarnan Jake Paul mætti MMA-goðsögninni Nate Diaz í hnefaleikabardaga í nótt. Bardaginn var merkilega skemmtilegur.

Myrti ólétta kærustu sína
Hnefaleikakappinn Félix Verdejo Sánchez hefur verið dæmdur fyrir að fremja mannrán og myrða Keishla Rodríguez Ortiz, sem var ólétt þegar hún var myrt. Tæp tvö ár eru síðan lík Ortiz fannst í lóni í San Juan, höfuðborg Puerto Rico.

Fagnaði sigri með því að sýna á sér brjóstin en fékk mikla gagnrýni fyrir
Hnefaleikakonan Daniella Hemsley vann góðan sigur í hringnum á dögunum en það sem hún gerði strax eftir sigurinn vakti enn meiri athygli.

Besta hnefaleikakona Íslands ber að ofan á Instagram
Íslenska hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir hefur vakið athygli fyrir öfluga framgöngu í hringnum á síðustu árum.

Alþjóða hnefaleikasambandið svipt réttindum sínum innan IOC
Alþjóða ólympíunefndin hefur svipt Alþjóða hnefaleikasambandið réttindum sínum sem æðstu samtök íþróttarinnar í heiminum. Nýtt alþjóðasamband hnefaleika var stofnað í apríl.

Barnabarn mafíósans í sex mánaða bann fyrir slagsmálin við Mayweather
John Gotti III hefur verið dæmdur í sex mánaða bann eftir að hafa stofnað til slagsmála eftir sýningarbardaga gegn Floyd Mayweather.

Myndir: Mikið um dýrðir á stærsta Icebox-mótinu frá upphafi
Hnefaleikaviðburðurinn ICEBOX var haldinn í fjórða sinn síðastliðinn föstudag þar sem margir af fremstu hnefaleikaköppum landsins mættust. Alls fóru tíu viðureignir fram í bland við að margir af stærstu tónlistarmönnum landsins gengu inn með boxurunum við mikil fagnaðarlæti áhorfenda.

Myndband: Bardagi Mayweather og barnabarns mafíósans Gotti endaði með hópslagsmálum
Hnefaleikakappinn fyrrverandi Floyd Mayweather og John Gotti III mættust í sýningarbardaga um helgina sem fór algjörlega úr böndunum. Gotti III er barnabarn John Joseph Gotti Jr., alræmds mafíósa frá New York í Bandaríkjunum.

Myndbönd: McGregor sendi lukkudýr Miami Heat á bráðamóttöku
Segja má að skemmtiatriði í síðasta leik Miami Heat og Denver Nuggets sem innihélt UFC-bardagakappann Conor McGregor og lukkudýr Miami hafi farið úr böndunum. Lukkudýrið þurfti að fara á bráðamóttöku eftir högg frá McGregor.

Icebox haldið í fjórða sinn í kvöld: „Stærra en nokkru sinni fyrr“
Hnefaleikamótið Icebox verður haldið í fjórða sinn þegar besta hnefaleikafólk landsins mætir í Kaplakrika í kvöld. Davíð Rúnar Bjarnason hefur staðið fyrir viðburðinum undanfarin ár og hann segir að eins og síðustu ár verði mótið stærra en nokkru sinni fyrr. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Engin ákvörðun um úrsögn úr hnefaleikasambandi en fylgst með
Hnefaleikaheimurinn logar þessa stundina. Alþjóða hnefaleikasambandið, IBA, er undir járnhæl rússnesks formanns sem styður Pútín og Bandaríkjamenn hafa stofnað eigin samband. Íslendingar fylgjast með.

Valgerður rotaði þá georgísku eftir aðeins fjörutíu sekúndur
Íslenska hnefaleikakonan Valgerður Guðsteinsdóttir fagnaði glæsilegum sigri tíunda atvinnumannabardaga sínum helgina.

Rooney biður um boxbardaga þegar hann fær sér í glas
Þegar Wayne Rooney er búinn að fá sér í tána heyrir hann stundum í umboðsmanninum Eddie Hearn og biður hann um að setja upp boxbardaga fyrir sig.

ÓL-verðlaunahafi dó í stríðinu i Úkraínu
Úkraínski hnefaleikamaðurinn Maksym Galinichev dó í stríðinu í Úkraínu en hann var aðeins 22 ára.

Tommy Fury fyrstur til að sigra Jake Paul
Samfélagsmiðlastjarnan Jake Paul tapaði í gær sínum fyrsta hnefaleikabardaga. Hann hafði keppt sex sinnum áður og alltaf unnið en það var litli bróðir heimsmeistarans Tyson Fury, Tommy Fury, sem varð fyrstur til að sigra Paul.

Óhóflegt eggjaát olli falli á lyfjaprófi
Lyfjabanni breska hnefaleikakappans Conor Benn hefur verið aflétt þar sem hann er talinn hafa óviljandi innbyrt ólögleg efni sem mældust í líkama hans. Mikið eggjaát er sögð líkleg ástæða.