Hádegisfréttir Bylgjunnar

Vaxtalækkun fellur í góðan jarðveg
Í hádegisfréttum verður fjallað um þá ákvörðun Peningastefnunefndar að lækka stýrivexti Seðlabankans í morgun.

Lögfræðingar Alþingis vöruðu við breytingum á búvörulögum
Í hádegisfréttum okkar fjöllum áfram um hinar umdeildu breytingar sem gerðar voru á búvörulögum á Alþingi á dögunum.

Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu
Kennaraverkföll standa enn og í morgun hófst verkfall í Menntaskólanum í Reykjavík. Fundur í deilunni hefur verið boðaður á morgun.

Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust
Framkvæmdastjóri eggjabús á Suðurnesjum segir bruna sem kom upp í búinu í nótt mikið áfall. Um fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir.

Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu
Dómsmálaráðherra hafnar alfarið gagnrýni þingmanns Pírata á blaðamannafund sem hún hélt með Ríkislögreglustjóra í gær. Hún segir starfsstjórnir geta markað stefnu, og það sem kynnt var á fundinum sé ekki hennar stefna, heldur ráðuneytis hennar.

Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok
Í hádegisfréttum verður rætt við formann fjárlaganefndar um tillögur í fjárlögum sem meðal annars er ætlað að vega upp á móti tekjutapi sem hlýst af því að ekkert verði af fyrirætluðu kílómetragjaldi um áramót.

Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum
Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá glóðvolgri könnun um fylgi flokkanna en nú styttist óðum í kosningar.

Samgöngur og neysluvatn að komast í samt lag
Í hádegifréttum fjöllum við um ástandið á Vestfjörðum en þar rofar nú til eftir miklar rigningar.

Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri
Skrúfað hefur verið fyrir vatnið á Flateyri eftir að skriða féll í vatnsból bæjarins. fjölmargar skriður ollu usla á svæðinu í nótt.

Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal
Í hádegifréttum verður meðal annars fjallað um hið undarlega mál sem Jón Gunnarsson þingmaður lýsti í Facebook uppfærslu í morgun.

Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni
Í dag er ár liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Hamfarirnar eru einar þær mestu í sögunni. Í hádegisfréttum ræðum við, við bæjarstjóra Grindavíkur sem er bjartsýnn á framtíð bæjarins þó jarðhræringum sé ekki lokið.

Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal
Um helmingi landsmanna þætti óeðlilegt að ráðherra í starfstjórn gæfi út nýtt leyfi til hvalveiða. Matvælaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til fyrirliggjandi umsóiknar um hvalveiðileyfi en segir brýnt að málið fari í lögboðið ferli.

Ólíklegt að kílómetragjaldið verði að veruleika fyrir þinglok
Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann fjárlaganefndar þar sem nú er tekist á um frumvarp um kílómetragjald á bíla.

Glæný könnun og hávaðarok víða um land
Í hádegisfréttum fjöllum við um glænýja könnun sem Maskína gerði fyrir fréttastofuna.

Trump snýr aftur með öruggum sigri
Í hádegisfréttum verða kosningarnar í Bandaríkjunum að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar.

Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu
Í hádegisfréttum verða bandarísku forsetakosningarnar að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar en þær eru nú hafnar og afar mjótt á munum, ef marka má kannanir.

Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum
Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun.

Hundur brann inni í Fossvogi og ótrúlegt afrek sundkappa
Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í raðhúsi í Fossvogi í nótt. Tveir íbúar í húsinu komust út af sjálfsdáðum en hundur heimilisins komst ekki lífs af. Altjón varð á íbúðinni, að sögn lögreglu. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Umdeild eldræða formanns Framsóknar
Stjórnmálafræðiprófessor telur eldræðu formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál að einhverju leyti til þess fallna að fjarlægja flokkinn stefnu Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins. Framsókn geri sig líklega til að mynda ríkisstjórn af miðjunni til vinstri. Við rýnum í pólitíkina í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall
Í hádegisfréttum verður fjallað um málefni Grindavíkurbæjar en bæjarsjóðurinn er eins og gefur að skilja afar illa staddur þessi misserin.

Listum skilað í Hörpu og lokadagur Norðurlandaráðsþings
Í hádegisfréttum förum við í Hörpu þar sem flokkarnir sem bjóða fram til Alþingis skiluðu inn listum sínum fyrir komandi kosningar.

Verðbólgan hjaðnar og hamfaraflóð á Spáni
Í hádegisfréttum fjöllum við um hamfaraflóðin sem gengið hafa yfir Valensíuhérað á Spáni.

Norðurlandaráðsþing, Selenskí og kennarar leggja niður störf
Í hádegisfréttum fjöllum við um þing Norðurlandaráðs sem nú fer fram í Reykjavík.

Glóðvolg Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Bylgjunnar
Í hádegisfrétum fjöllum við um glænýja fylgiskönnun sem Maskína gerði fyrir fréttastofuna en lokið var við gerð hennar nú rétt fyrir hádegið.

Óheppileg birting einkaskilaboða og æsispennandi úrslitaleikur
Stjórnmálafræðingur segir það óheppilegt fyrir formann Samfylkingarinnar að einkaskilaboð hennar um Dag B. Eggertsson hafi verið birt opinberlega. Hann segir þó ekki óvenjulegt að hvatt sé til að umdeildir frambjóðendur séu strokaðir út.

Fleiri framboðslistar kynntir
Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir Samfylkinguna hafa fjarlægst þau gildi sem hún brennur fyrir en hún er aftur gengin til liðs við Vinstri græn. Þess er að vænta að flestir framboðslistar flokkanna sem ekki hafa þegar verið kynntir muni liggja fyrir um helgina.

Beiðni um leyfi til hvalveiða liggur þegar fyrir
Í hádegisfréttum verður rætt við ráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi en þar bar ýmislegt á góma.

Andlát konu til rannsóknar og tvö börn alvarlega veik eftir sýkinguna á Mánagarði
Í hádegisfréttum fjöllum við um andlát konu á sjötugsaldri sem lögregla er nú með til rannsóknar.

Kennarar á leið í verkfall og framboðslistar skýrast
Í hádegisfréttum fjöllum við um niðurstöðu Félagsdóms þar sem kennarar voru sýknaðir af kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem taldi ólöglega boðað til verkfallsaðgerða.

Frægir flykkjast í framboð
Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á framboðsmálum flokkanna sem keppast nú við að raða á lista sína.