Tækni

iPad Mini kynnt í beinni útsendingu
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, mun stíga á svið í San Jose klukkan fimm í dag og kynna nýja og minni útgáfu af iPad-spjaldtölvunni.

Ný spjaldtölva frá Apple í dag
Tæknirisinn Apple mun kynna minni útgáfu af iPad-spjaldtölvunni í Kaliforníu í dag. Grunur leikur á að Apple muni einnig opinbera minni útgáfu af MacBook Pro fartölvunni sem verður með mun hærri upplausn en forverar sínir.

Ný spjaldtölva frá Google og Samsung
Talið er að tæknifyrirtækin Google og Samsung muni kynna nýja spjaldtölvu seinna í þessum mánuði. Tölvan verður að öllum líkindum hluti af Nexus vörulínunni sem fyrirtækin hafa þróað síðustu ár.

Ótrúlegar vinsældir LinkedIn
Samfélagsmiðillinn LinkedIn hefur vaxið ört síðustu misseri. Notendum hefur fjölgað jafnt og þétt frá því að síðan fór í loftið á sumarmánuðum ársins 2003. Þannig eru virkir notendur rúmlega 135 milljónir talsins en þeir voru um 35 milljónir í desember árið 2007.

Surface lendir 26. október
Nýjasta spjaldtölva Microsoft, Surface, fer í almenna sölu í átta löndum seinna í þessum mánuði. Fyrirtækið svipti hulunni af spjaldtölvunni fyrir rúmu hálfu ári og hefur raftækið verið á allra vörum síðan þá.

Apple frumsýnir iPad Mini
Tæknirisinn Apple hefur boðið blaðamönnum og áhrifafólki úr tækniheiminum að sækja ráðstefnu 23. október næstkomandi. Ljóst er að Apple mun kynna nýja spjaldtölvu á fundinum, iPad Mini.

Tölvuleikjaiðnaðurinn vex gríðarlega hratt
Á meðan óvissa ríkir um heimsbúskapinn hefur umfang tölvuleikjaiðnaðarins haldið áfram að vaxa. Þessi tiltölulega nýi iðnaður er þó síbreytilegur og tilkoma spjaldtölvunnar og snjallsímans hefur gjörbreytt landslagi tölvuleikjanna.

Nýr iPad í þessum mánuði
Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi. Það er tæknifréttamiðillinn AllThingsD sem greinir frá þessu.

Minni Galaxy S III væntanlegur
Talið er að suður-kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung muni opinbera minni útgáfu af flaggskipi sínu, Galaxy S III, á næstu dögum. Snertiskjár nýja símans verður fjórar tommur samkvæmt heimildum fjölmiðla í Suður-Kóreu en skjár iPhone 5, nýjasta snjallsíma Apple, er einmitt af svipaðri stærð.

Milljarður snjallsíma seldur árið 2015
Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að milljarður snjallsíma verði seldur árið 2015 og að 350 milljón spjaldtölvur verði í umferð á þeim tíma.

Galaxy S III er snjallsími ársins
Tævanski raftækjaframleiðandinn ASUS vann til fimm verðlauna á T3 tæknihátíðinni sem fór fram í Lundúnum í vikunni. Fulltrúar frá öllum helstu tæknifyrirtækjum veraldar voru viðstaddir afhendingu verðlaunanna.

Samsung stefnir Apple vegna iPhone 5
Samsung Electronics, sem framleiðir Samsung Galaxy símana, hefur ákveðið að höfða mál gegn Apple. Samsung sakar Apple um að hafa brotið gegn höfundarlögum með ýmsum lausnum sem eru í boði á nýja iPone 5 símanum, eftir því sem fram kemur í frétt Reuters.

iPhone 5 úr gulli og demöntum
Breskt fyrirtæki ætlar að selja hundrað stykki af sérstakri útgáfu af iPhone fimm símanum sem Apple gaf út á dögunum. Munurinn á þessum símum og þeim upprunalega er að hann er úr gulli og demöntum.

Ótrúlegar sölutölur Apple - 10 þúsund ipad tölvur selst hér á landi
Mikil sala hefur verið á vörum Apple hér á landi það sem af er ári líkt og víðast hvar annars staðar erlendis. Umboðsaðili Apple á Ísland reiknar með því að selja fimmtán þúsund i pad spjaldtölvur á þessu ári.


iPhone 5 fáanlegur á Íslandi í dag
Símafyrirtækið Nova byrjar að selja nýja iPhone símann, iPhone 5 klukkan fimm í dag. Um takmarkað magn er að ræða. "Þeir eru fleiri en 50 og færri en 100,“ segir Margrét Tryggvadóttir, yfirmaður markaðssviðs Nova í samtali við Vísi. Í tilkynningu frá félaginu kemur aftur á móti fram að ný sending er væntanleg síðar í vikunni.

Yfir 5 milljónir síma seldust
Yfir fimm milljónir iPhone 5 síma seldust í Bandaríkjunum um helgina, en þetta er fyrsta helgin sem síminn var seldur. Tim Cook, forstjóri Apple, sagði í tilkynningu að salan hefði verið ótrúleg. Hann segir að unnið sé hörðum höndu að því að anna eftirspurn. Á vef USA Today segir að þrátt fyrir að síminn hafi nánast selst upp um helgina hafi sérfræiðngar fundið nokkra galla á símanum. Víða er síminn uppseldur í verslunum en sömu verslanir eiga von á frekari sendingum frá framleiðanda í dag.

Slagsmál og ólæti hjá Foxconn
Fyrirtækið Foxconn, sem framleiðir m.a. iphone síma fyrir hugbúnaðarrisann Apple, þurfti í morgun að stöðvar framleiðslu í einni af verksmiðjum sínum vegna slagsmála sem brutust út meðal starfsmanna. Mikið álag er á starfsmönnum vegna hraðrar sölu á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Loksins íslenskt lyklaborð á Apple græjunum
Nýja stýrikerfið iOS 6 frá Apple skartar mörgum nýjungum. Ein þeirra er alvörunni íslenskt lyklaborð með stafina Æ, Þ, Ð og Ö sýnilega. Þetta kemur fram á tækniblogginu Símon.is.

Þjófar komust fyrstir í iPhone 5 í Japan
Margir virðast hafa áhuga á nýjustu græju Apple, iPhone 5, þeirra á meðal japanskir bófar, því nú lítur út fyrir að verslanir í Japan hafi verið rændar stuttu áður en síminn átti að koma í almenna sölu. Ránsfengurinn er talin um 100 þúsund dollara virði, eða rúmlega 12 milljóna króna.

Hundruð Íslendinga forpöntuðu iPhone 5
Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, býst við því að eftirspurn eftir iPhone 5 verði meiri en framboðið hér á landi og erfitt verði að komast yfir gripinn fram að jólum.

Apple biðst afsökunar
Tæknirisinn Apple hefur beðið viðskiptavina sína afsökunar og heitir því að uppfæra staðsetningarþjónustu sína á næstu vikum. Fyrirtækið ákvað að slíta samstarfi sínu við Google fyrir nokkru en fyrri kynslóðir iPhone snjallsímanna sem og iPad spjaldtölvanna hafa notað Google Maps kortaþjónustuna.

iPhone 5 kemur í búðir í dag - Þjóðverji segir símann betri en kynlíf
Nýjasti iPhone-síminn frá Apple kemur í verslanir í dag og mynduðust langar raðir við verslanir um allan heim þar sem aðdáendur símans börðust um að vera fyrstir til að fjárfesta í gripnum. Búist er við að Apple muni selja allt að tíu milljónir síma um helgina.

Yfir 2 milljónir pöntuðu sér iPhone á einum sólarhring
Yfir tvær milljónir manna pöntuðu sér iPhone 5 í forsölu á fyrsta sólarhringnum, sem eru tvöfalt fleiri en pöntuðu sér 4S símann í fyrra. Eftirspurnin eftir símanum er langt umfram væntingar tæknirisans Apple, sem framleiðir símann. Gert er ráð fyrir því að ekki verði hægt að afgreiða allar pantanirnar strax og því mega notendur búast við að fá ekki símann fyrr en í október. iPhone 5 var kynntur til leiks fyrir helgi en hann er bæði lengri, hraðari og með betri upplausn en sá á undan.

iPhone 5 ekki fáanlegur hér landi fyrr en í lok mánaðarins
Nýr iPhone verður ekki fáanlegur á Íslandi fyrr en í lok september. Fæstir deila um fallegt útlit en tækninýjungar virðast af skornum skammti. Umboðsaðili Samsung telur blómaskeið iPhone á enda.

Millitengi fyrir vörur Apple dýrt og ljótt
Nýjasti snjallsími Apple, iPhone 5, leit dagsins ljós í gær. En afhjúpun Apple boðaði einnig endalok hvers einasta aukahlutar sem viðskiptavinir Apple hafa keypt fyrir raftæki sín.

iPhone 5 kominn út- Lengri, léttari og þynnri
"Það er bara bomba komin inn á markaðinn. Þeir hafa komið okkur á óvart og sýnt að þeir geta gert miklu öflugri og betri græju - en hafa hana þó léttari og þynnri sem er eitthvað sem aðrir framleiðndur hafa ekki verið að gera," segir Björgvin Björgvinsson, sérfræðingur hjá Epli.is, í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Raftæki öðlast framhaldslíf hjá Grænni Framtíð
Gamlir farsímar og tölvur fá framhaldslíf hjá fyrirtækinu Græn Framtíð sem tekur við þeim og selur til viðgerðarfyrirtækja í Evrópu. Stofnandinn segir öryggisvörð næstum því hafa hringt í lögregluna þegar hann sá tugi fartölva í stöflum í stofunni.

iPhone er stærri en Microsoft
Apple mun að öllum líkindum kynna nýjasta snjallsíma sinn, iPhone 5, í næstu viku. Vinsældir iPhone snjallsímanna síðustu ár eru með ólíkindum en þetta litla raftæki hefur innsiglað stöðu Apple sem eins stærsta fyrirtækis veraldar. En hversu vinsæll er iPhone í raun og veru?

Endurhannaður iPhone væntanlegur
Nýr iPhone verður kynntur til leiks í næstu viku. Apple hefur boðað til blaðamannafundar 12. september næstkomandi og þykir það nær öruggt að nýjasta kynslóð snjallsímans verði afhjúpuð. Þó svo að Apple hafi ekki staðfest neitt varðandi hönnun og búnað símans hafa ýmsar upplýsingar um útlit hans og innvols komið fram.