

Real Madríd gerði óvænt jafntefli við Levante í síðustu umferð en Daniel Carvajal sá til þess að spænska stórveldið tapaði ekki stigum tvo leiki í röð. Loktölur 1-0 gegn Real Betis og Madrídingar því með sjö stig eftir þrjá leiki.
Gerard Pique er vitaskuld vel meðvitaður um vinsældir síns gamla lagsbróður til margra ára, Lionels Messi. Pique hefur nú keypt sjónvarpsútsendingaréttinn á Spáni frá leikjum Argentínumannsins í Frakklandi.
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við spænska úrvalsdeildarliðið Zaragoza. Tryggvi Snær er á leiðinni inn í sitt fimmta tímabil á Spáni og er nokkuð sáttur með lífið.
Það virðist sem Real Madrid sé tilbúið að henda öllu sem það á til þess að fá hinn 22 ára gamla Kylian Mbappé, leikmann París Saint-Germain og franska landsliðsins, í sínar raðir.
Það virðist nær öruggt að Saúl Ñíguez, miðjumaður Spánarmeistara Atlético Madríd, yfirgefi félagið áður en félagaskiptiglugginn lokar í Evrópu þann 2. september. Saúl er sterklega orðaður við bæði Manchester United og Chelsea.
Hinn 18 ára gamli Pedri spilaði stóra rullu hjá Barcelona á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir ungan aldur var hann í stóru hlutverki hjá liðinu ásamt því að taka þátt á lokakeppni EM U-21 árs landsliða í mars.
Real Madrid heimsótti Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fimm mörk voru skoruð og eitt rautt spjald fór á loft í seinni hálfleik þegar að liðin skildu jöfn 3-3.
Angel Correa sá til þess að Spánarmeistarar Atlético Madrid hófu tímabilið á sigri er liðið mætti Elche í fyrstu umferð La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 1-0, einkar óvænt eða hitt þó heldur.
Barcelona heimsótti Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Memphis Depay skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barcelona í 1-1 jafntefli.
Ronald Koeman, þjálfari Barcelona á Spáni, hefur áhyggjur af stöðu ungstirnisins Ilaix Moriba hjá félaginu. Samningaviðræður milli Börsunga og miðjumannsins unga virðast ganga illa og segir Koeman að Moriba leggi meiri áherslu á peninga en að spila fótbolta.
Það lítur út fyrir að það sé komin ný tía í lið Barcelona því spænska félagið hefur ákveðið að leyfa leikmanni að spila í treyjunni sem Lionel Messi hafði spilað svo lengi í.
Cristiano Ronaldo er orðinn þreyttur á því að lesa um sögusagnir um sjálfan sig í erlendum blöðum og portúgalska goðsögnin sendi frá sér langan pistil á Instagram í gærkvöldi.
Svo virðist vera að blaðamaður spænsku sjónvarpsstöðvarinnar El Chiringuito hafi skáldað upp frétt sína í morgun um að Carlo Ancelotti hefði áhuga á því að kaupa Cristiano Ronaldo til Real Madrid.
Carlos Ancelotti, þjálfari Real Madrid, er sagður opinn fyrir því fá Cristiano Ronaldo aftur til spænska liðsins en portúgalski framherjinn var frábær undir hans stjórn á sínum tíma.
Joan Laporta, forseti spænska knattspyrnustórveldisins Barcelona, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Hann segir skuldastöðu félagsins vera afleita eftir óstjórn fyrri forseta Josep Bartomeu og sakar forvera sinn um lygar.
Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, vill fá nýjan framherja í hópinn sinn og hann hefur augun á tveimur framherjum í ensku úrvalsdeildinni.
Segja má að lífið án Messi hafi hafist formlega í dag þegar Barcelona hóf leik í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Lærisveinar Diego Simeone byrja spænsku úrvalsdeildina af krafti og sóttu þrjú stig til Vigo í fyrstu umferð deildarinnar.
Brasilíumaðurinn Coutinho gæti verið á leið frá Barcelona en félagið er sagt vilja losa sig við leikmanninn til að skera niður launakostnað hjá félaginu.
Lionel Messi virðist ætla að halda áfram að hafa áhrif á fjárhaginn hjá FC Barcelona þrátt fyrir að hafa yfirgefið félagið. Hann á inni milljarða í ógreidd laun hjá spænsku risunum.
Real Madrid bar sigurorð af Alaves í fyrstu umferð spænsku deildarinnar í kvöld. Karim Benzema gerði virkilega vel í kvöld og setti tvö mörk. Þá var Gareth Bale í byrjunarliði liðsins sem vann sigur í fyrsta leik tímabilsins 1-4.
Barcelona hefur tekist að skrá nýja leikmenn félagsins í hóp liðsins fyrir fyrstu umferð spænsku deildarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Framtíð norska leikmannsins Martins Ödegaard hjá Real Madrid er í óvissu þar sem leikmaðurinn fékk ekki treyjunúmer hjá Madrídar-liðinu og verður því ekki í leikmannahópi liðsins þegar La Liga, spænska úrvalsdeildin, fer af stað um helgina.
Guillem Balague, fréttamaður breska ríkisútvarpsins í spænska boltanum, fékk einkaviðtal við Lionel Messi eftir blaðamannafundinn á Parc des Princes í gær þar sem Messi var kynntur formlega sem nýr leikmaður Paris Saint Germain.
Forseti Real Madrid hafnar þeim ásökunum að hann hafi reynt að hjálpa til að koma Lionel Messi úr spænsku deildinni.
Andrés Iniesta, leikmaður Vissel Kobe í Japan og goðsögn hjá spænska stórveldinu Barcelona, segir synd og skömm að Lionel Messi hafi yfirgefið Katalóníurisann.
Chelsea vann Villarreal 6-5 í vítaspyrnukeppni til að tryggja sér Ofurbikar Evrópu í fótbolta á Windsor Park í Belfast í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, gerði skiptingu undir lok framlengingar sem hafði mikið að segja um úrslitin.
Nýtt tímabil í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta hefst eftir tvo daga með leik Valencia og Getafe á föstudagskvöld. Valencia er ásamt stórliðinu Barcelona á meðal nokkurra liða í deildinni sem ekki geta skráð nýja leikmenn sína til leiks vegna nýrra fjárhagsreglna í deildinni.
Lionel Messi hefur samþykkt tveggja ára samning við franska félagið Paris Saint Germain sem fær argentínska snillinginn á frjálsri sölu. PSG þarf hins vegar að borga honum stórar upphæðir fyrir þjónustu hans inn á vellinum.
Barcelona er búið að vinna fyrsta titilinn án Lionel Messi en einn af þeim sem vann hann lét ekki sjá sig í verðlaunaafhendinguna.