Verðlag
1 2 3 4 5 6 … 31 ›
Verðbólgan komin undir fimm prósent Verðbólga mælist nú 4,8 prósent og hefur ekki verið minni síðan í október árið 2021. Hún hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 28.11.2024 09:05
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22
Stærra skref hefði gefið röng skilaboð um að Seðlabankinn vildi minnka aðhaldið Raunvaxtaaðhaldið hefur hækkað lítilega frá síðustu mælingu í ágúst en ekki er „endilega heppilegt“ að það aukist enn frekar, að sögn seðlabankastjóra, og mögulega mun það fara minnkandi á næsta ári þegar framleiðsluspennan í hagkerfinu snýst í slaka. Hann segir flesta þætti núna vera að falla með Seðlabankanum og hefur ekki sömu áhyggjur og áður af framboðsskorti á íbúðamarkaði litið til allra næstu ára. Innherji 20.11.2024 18:04
Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna. Viðskipti innlent 20.11.2024 12:03
Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið Óheppinn viðskiptavinur Nettós var rukkaður um 542 þúsund krónur fyrir 380 grömm af hreindýrakjöti á sjálfsafgreiðslukassa. Að sögn forsvarsmanna Nettó má rekja þetta til þess að rétt strikamerki hafi dottið af vörunni og erlent strikamerki skannað þess í stað. Neytendur 19.11.2024 07:00
Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13 prósent á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1 prósentum í 4,5 prósent. Viðskipti innlent 14.11.2024 10:38
Viðreisn boðar jafnvægi, forgangsröðun og ábyrgð Kaupmáttur launa hefur sveiflast þrisvar sinnum meira á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum undanfarna tvo áratug. Fólk finnur fyrir þessum sveiflum og þessu ójafnvægi, ekki síst ungt fólk sem nýlega hefur stofnað heimili. Skoðun 13.11.2024 06:32
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43
Bjarni segir vinnumarkaðslöggjöfina vera í „ákveðnum ógöngum“ Umbætur á vinnumarkaðsmódelinu myndu leiða af sér stöðugleika í ríkisfjármálunum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra telur of langt gengið þegar stéttarfélög geta tekið einstaka vinnustaði „í gíslingu“ og vill sjá breytingar á valdheimildum ríkissáttasemjara á meðan formaður Samfylkingarinnar er opin fyrir skrefum í þá átt í sátt við verkalýðshreyfinguna. Innherji 10.11.2024 17:14
Þarf að auka valdheimildir ríkissáttasemjara til að grípa inn í vinnudeilur Til að styrkja þjóðhagslega ábyrgð við gerð kjarasamninga væri réttast að breyta lögum þannig að ríkissáttasemjari geti komið fram með miðlunartillögu án samþykkis frá forystufólki launaþegahreyfingar, að mati hagfræðiprófessors og forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Þeir leggja sömuleiðis til, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum, að miða launasetningu við afkomu útflutningsgreina til að koma í veg fyrir kjarasamninga sem ýta undir verðbólgu. Innherji 10.11.2024 13:03
„Græni punkturinn“ allt að helmingi dýrari en í Bónus og Prís Fjöldi vara sem merktar eru lágvöruverði í Kjörbúðinni eru í raun þriðjungi til helmingi dýrari en í Bónus eða Prís samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ. Neytendur 5.11.2024 17:12
Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla aukist um 0,1% í ár. Samkvæmt þjóðhagsreikningum dróst verg landsframleiðsla saman um 1,9% á fyrri hluta ársins sem einkenndist af neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta og birgðabreytinga, meðal annars vegna loðnubrests. Viðskipti innlent 4.11.2024 10:26
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59
Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. Innherji 30.10.2024 16:48
Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi. Viðskipti innlent 30.10.2024 16:32
Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. Innherji 30.10.2024 11:15
Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Verðbólga hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,1 prósent. Hagstofan mun taka nýtt kílómetragjald inn í vísitöluna en yrði það ekki gert myndi mæld verðbólga hjaðna enn frekar. Viðskipti innlent 30.10.2024 09:06
Verðbólguhjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxtalækkun í nóvember Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun. Innherji 28.10.2024 18:00
Matvara hækkar með rykk eftir tveggja mánaða lækkun Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru. Neytendur 22.10.2024 14:44
Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Allir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,25 prósentur eins og var gert fyrir tveimur vikum. Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:41
Hvað verður um verðbólguna í janúar? Nokkuð miklar líkur eru á því að verðbólga muni lækka mjög hratt í upphafi næsta árs og það hraðar en bjartsýnustu verðbólguspár gera ráð fyrir. Sú þróun mun skapa umhverfi til skarpara og hraðara vaxtalækkunarferlis en flestir telja líklegt. Innherji 16.10.2024 09:19
Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Vísitala íbúðaverðs mældist 108,4 stig í september og lækkaði um 0,28 prósent á milli mánaða og er það í fyrsta skiptið sem íbúðaverð lækkar á milli mánaða frá því í janúarmánuði. Viðskipti innlent 15.10.2024 15:48
Spá minnstu verðbólgunni í þrjú ár Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki úr 5,4 prósentum í 5,1 prósent milli mánaða í október. Verðbólgan var síðast í 5,1 prósenti í desember árið 2021. Neytendur 10.10.2024 10:43
Betra að byrja en bíða þangað til hagkerfið er „sannarlega komið í kreppu“ Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum. Innherji 3.10.2024 07:50
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
Ræðst í fyrstu vaxtalækkunina í fjögur ár samhliða minnkandi verðbólguþrýstingi Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta, fyrsta vaxtalækkun nefndarinnar frá árslokum 2020, samhliða því að undirliggjandi verðbólga hefur minnkað, verðbólguálág lækkað og merki um frekari kólnun í efnahagslífinu. Mikil óvissa var um hvers mætti vænta við vaxtaákvörðun nefndarinnar, fjárfestar og markaðsaðilar skiptust í tvær fylkingar hvort hún myndi hefja vaxtalækkunarferlið, en nefndin undirstrikar hins vegar að kröftug innlend eftirspurn kalli á „varkárni.“ Innherji 2.10.2024 09:16
Markaðurinn klofinn hvers megi vænta nú þegar vextirnir eru á „snúningspunkti“ Flest hefur fallið með peningastefnunefnd frá síðustu ákvörðun með lækkandi verðbólgu og verðbólguvæntingum, sem hefur um leið þýtt enn hærra raunvaxtastig, og nefndin mun því velja á milli þessa að milda tóninn í yfirlýsingu sinni eða ráðast í sína fyrstu vaxtalækkun frá tímum faraldursins – sem gæti jafnvel orðið meiri en 25 punktar. Markaðsaðilar eru klofnir í afstöðu sinni til ákvörðunar nefndarinnar í vikunni, samkvæmt könnun Innherja, en þeir sem vænta óbreyttra vaxta telja að bankinn vilji sjá skýrari merki áður en hann breytir um kúrs en aðrir segja að aðhaldsstigið sé nú þegar mun meira en þurfi til að ná verðbólgu niður í markmið. Innherji 30.9.2024 11:08
Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Verðbólga hefur ekki mælst minni í tæp þrjú ár og hjaðnar á milli mánaða. Verðlækkun í mötuneytum vegna gjaldfrjálsra máltíða í grunnskólum hefur töluverð áhrif. Hagfræðingur hjá Viðskiptaráði telur þau eiga eftir að ganga til baka og raunar skila sér í aukinni verðbólgu. Viðskipti innlent 27.9.2024 12:01
Verulega minni verðbólga Verðbólga mælist nú 5,4 prósent og hefur minnkað um 0,6 prósentustig frá síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í september 2024 lækkar um 0,24 prósent frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 27.9.2024 09:17
Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins segir misskilnings gæta í ummælum Seðlabankastjóra um stöðu byggingageirans og hússnæðisskort. Seðlabankastjóri tali með skringilegum hætti um áhrif hárra vaxta á greinina, líklega í tilraun til að halda verðbólguvæntingum niðri. Viðskipti innlent 26.9.2024 12:17