
Grunnskólar

Þessi bölvaði hagvöxtur, þurfum við kannski bara annað hrun?
Við athuganir á kennaraskortinum alræmda, tók ég eftir því að á ákveðnu tímabili dró úr honum. Tímabili sem hófst haustið 2008, þegar hér varð fjármálahrun sem er greypt í þjóðarsálina. Þá jókst hlutfall kennara við störf í skólum landsins. Aðföngin spruttu fram.

Verkfall kennara skollið á
Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember.

„Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum“
Vinnustöðvun kennara í níu skólum víða um land hefst á miðnætti. Leikskólastjóri og foreldri barns þar segjast bæði taka einn dag í einu en vonast til þess að hægt verði að semja sem fyrst.

Verkföll hefjast á morgun: „Þetta er þvílíkur ómöguleiki“
Að öllu óbreyttu hefjast verkföll kennara í níu skólum á morgun. Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir stöðuna grafalvarlega og er afar svartsýn á að samningar náist í dag.

Umsókn um stöðu kennara í (vonandi) nálægri framtíð
Ég undirrituð sótti um og fékk starf í grunnskóla. Eftir tvö ítarleg viðtöl við mannauðsstjóra annars vegar og svo skólastjórnendur hins vegar, varð starfið loks mitt! Ég ræð mér varla fyrir kæti. Það er góð tilfinning að vera metin að verðleikum, enda hef ég þá einu hugsjón að kenna nemendum mínum og gera það vel.

Eru móttökuskólar málið?
Kennarar eru verðmætur hópur í okkar samfélagi. Þau taka við okkar dýrustu djásnum og vinna að því að skapa þeim öruggt rými til náms og leiks. Á kennara hefur ýmist dunið í gegnum tíðina, kjarabarátta, sífelld endurnýjun matsviðmiða, covid, og ekki síst þessa dagana vegna fyrirhugaðs verkfalls.

Verkföll í tveimur skólum til viðbótar
Verkfallsaðgerðir hafa verið boðaðar í tveimur skólum til viðbótar í október og í nóvember. Það eru Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Árbæjarskóli í Reykjavík sem bætast í hóp skóla þar sem til stendur að fara í verkfallsagðerðir.

Segir kennara fagna hugmyndinni
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir umdeildri hugmynd hennar um móttökuskóla fyrir erlend börn hafa verið tekið vel af kennurum og skólastjórnendum. Ráðherra og frambjóðandi til Alþingis hafa sagt hugmynd hennar hættulega og í anda aðskilnaðarstefnu.

Er best að gera ekki neitt þegar börn búa ekki við jöfn tækifæri?
Grein mín um móttökuskóla vakti mikla athygli. Mestan stuðning við hugmyndina fékk ég frá kennurum og skólastjórnendum úr fjölda sveitarfélaga sem hafa með mikilli útsjónarsemi og góðum vilja reynt að styðja við fjölbreyttan hóp nemenda með mismunandi þarfir og móðurmál.

„Hættulegar“ hugmyndir og „aðskilnaðarstefna“
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri, eru meðal þeirra sem gagnrýna hugmyndir um móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna.

Höfnum gamaldags aðgreiningu
Árið 1974 var fyrst talað um í lögum að skólinn væri fyrir öll börn. Allar götur síðan hafa íslenskir stjórnmálamenn, að mestu, sammælst um þá framtíðarsýn. Í umræðum undanfarið hafa verið settar fram hugmyndir um að aðgreina eigi skóla eftir uppruna barna.

Meirihluti starfsfólks leikskólans í vinnu í verkfallinu
Þeim fjórum leikskólum þar sem boðað hefur verið til verkfalla í næstu viku verður lokað á meðan verkföllunum stendur. Af 38 starfsmönnum á leikskólanum Drafnarsteini fara 15 í verkfall og verða því 23 enn í vinnu. Þau mega ekki ganga í störf kennara á meðan verkfalli stendur.

„Alls ekki bjartsýn“ á að verkföllum verði afstýrt
Formaður samninganefndar sveitarfélaga í kjaraviðræðum við Kennarasamband Íslands er ekki bjartsýnn á að samningar náist fyrir þriðjudag, þegar fyrirhugað er að fyrstu verkföll skelli á. Hún segir mikilvægt að hafa í huga muninn á kjörum og réttindum opinberra starfsmanna og þeirra sem starfi á almennum markaði. Kennarar hafa nefnt rúma milljón á mánuði sem eðlileg grunnlaun.

Taldi kennara hafa komið kröfum sínum ítrekað á framfæri
Félagsdómur taldi að Kennarasamband Íslands hefði ítrekað komið kröfum sínum á framfæri við Samband íslenskra sveitarfélaga áður en það boðaði til verkfallsaðgerða. Kennarasambandið var sýknað af kröfu sveitarfélaganna um að verkfallsboðunin væri lýst ólögmæt.

Kennarar telja rúma milljón í grunnlaun sanngjarna
Formaður Félags grunnskólakennara segir sanngjarnt að miða við að kennarar hafi rúma milljóna króna í grunnlaun. Verkfallsaðgerðir kennara hefjast eftir helgi að óbreyttu eftir að félagsdómur dæmdi boðun þeirra löglega í morgun.

Verkfallsboðun kennara dæmd lögleg
Félagsdómur sýknaði Kennarasamband Íslands af kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem taldi verkfallsboðun kennara ólöglega í morgun.

Raunveruleiki íslenskra skóla miðað við niðurstöður úttektar Viðskiptaráðs
Árið er 2002. Ég er nýútskrifuð sem stúdent. Full tilhlökkunar að takast á við háskólanám. Á þessum tíma vissi ég ekki við hvað ég vildi starfa. Ég sótti um nám í viðskiptafræðideild við Háskóla Ísland og grunnskólakennarafræði við Kennaraháskóla Íslands.

Vill setja á fót móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segist sannfærð um að „almennilegir og vel skipulagðir“ móttökuskólar fyrir börn af erlendum uppruna gætu skipt sköpum í því að leysa úr vanda grunnskólanna.

„Flókin staða“ í kjaradeilum kennara
Samband íslenskra sveitarfélaga telur rétt að gefa kennurum færi á að bæta kjör sín með því að auka kennsluskyldu. Fundi í kjaradeildu Kennarasambandsins og sveitarfélaga var aflýst í morgun þar sem beðið er niðurstöðu félagsdóms um lögmæti verkfallsboðunar í fyrramálið.

Samþykkja verkfall í Garðaskóla
Verkfall hefur verið samþykkt í Garðaskóla í Garðabæ með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkfallsaðgerðir verið samþykktar í ellefu skólum; fjórum grunnskólum, fjórum leikskólum, tveimur framhaldsskólum og einum tónlistarskóla.

Svandís tekur upp hanskann fyrir kennara
Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna segist standa með kennurum í kjarabaráttu sinni. Hún varar við því að menntakerfið sé einkavætt og að stétt fari þannig að hafa áhrif á aðgengi að menntun. Hún segir síðustu mánuði hafi verið hart sótt að kennurum.

Einkareknir grunnskólar möguleg lausn á brotnu kerfi
Framkvæmdastjóri viðskiptaráðs segir grunnskólakerfið hérlendis brotið og einsleitt. Lausnin við því sé ekki að setja meira fjármagn inn í kerfið heldur að laga það innan frá. Hann segir einkarekna grunnskóla mögulega lausn við vandanum.

Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum
Kostnaður við snaga sem settir voru upp í Álftamýrarskóla var 1,7 milljónir en ekki 12 milljónir eins og haldið hafði verið fram í fréttum. Milljónirnar tólf voru heildarkostnaður við umfangsmikið viðgerðarverkefni sem snagarnir voru aðeins hluti af.

Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra
Undirritaðar, fulltrúar kennara í Reykjavík, áttu fund með Einari Þorsteinssyni borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær, vegna ummæla hans á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um kennara. Ummælin vöktu mikla reiði kennarasamfélagsins og kennarar mótmæltu þeim við Ráðhús Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag.

Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman
Kennari segir suma kollega sína ekki ná endum saman og þurfi að vera í nokkrum vinnum. Þá séu fjölmargir sem hrökklist úr starfi vegna álags.

Kennarastarfið
Í 30 ár hef ég helgað líf mitt því að vinna með börnum og unglingum. Fyrir mér er kennarastarfið besta starf í heimi. Ég hef, ásamt mínum teymum, lagt á mig ómælda og óeigingjarna vinnu við að hlúa að börnum og unglingum. Kenna þeim og styðja, taka utan um þau og peppa, leiðbeina og hugga í lífsins ólgu sjó og jafnvel hjálpað sumum þeirra að lifa af daginn vegna ömurlegs lífs utan skólans og tilrauna til að enda líf sitt.

Að halda niðri launum og lifa á loftinu
Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ritaði grein á Vísi þann 17. október 2024 þar sem hún furðar sig á hvar kröfugerð KÍ er.

Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ritaði grein á Vísi þar sem hún amaðist við fyrirhuguðum verkföllum kennara. Greinina hóf hún á því að benda á að kennarar væru öfundsverðir af störfum sínum.

Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi?
Í sumar birti OECD ráðleggingar samhliða niðurstöðum PISA prófs í fjármálalæsi meðal 15 ára ungmenna í tuttugu löndum víða um heim. Þar benti OECD á að of algengt sé að börn og ungmenni á þessum aldri byrji að feta sig á sviði sinna persónulegu fjármála án þess að hafa grunnskilning á hvað felst í fjármálum einstaklingsins, t.d. með verslun á netinu og þátttöku á vinnumarkaði. Þá séu aðstæður á heimilum til að fá þessa fræðslu misjafnar.

Dagur í grunnskóla
Ég kenni í fremur stórum grunnskóla í Reykjavík. Ég hef reyndar verið með marga hatta í þessum skóla gegnum árin, byrjaði þar sem nemandi, vann í frístundaheimilinu, gerðist kennari, varð deildarstýra, leysti af aðstoðarskólastjóra og er núna aftur komin með þann hatt sem mér finnst fara mér best, sem kennslukona.