
Framhaldsskólar

Hvar er kröfugerðin?
Félagsmenn sex aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa samþykkt skæruverkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Kosið var um verkföll og þau samþykkt án þess að skýr kröfugerð hafi verið lögð fram.

Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín
Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir sér þykja það leitt að ummæli sem hann lét falla á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna fyrir helgi hafi verið túlkuð á þann veg að hann beri ekki virðingu fyrir störfum kennara.

Kraumar í kennurum vegna ummæla Einars
Kennarastéttin er æf út í borgarstjóra eftir ummæli hans á ráðstefnu um helgina. Grunnskólakennari spyr sig hvort sveitarfélögin ráði við rekstur grunnskólanna ef aðrir yfirmenn deila skoðunum borgarstjóra.

Vonast til að ná árangri áður en aðgerðir hefjast
„Auðvitað verðum við vör við umræðu um það að fólk sé uggandi út af aðgerðum en við vissum það nú fyrir fram. Það vill enginn fara í aðgerðir og alla síst þeir sem hafa hagsmuni af því að mæta í skólann sinn.“

Þögull sem gröfin um aðgerðir í öðrum framhaldsskóla
Formaður Félags framhaldsskóla segir annan framhaldsskóla nú undirbúa verkfallsaðgerðir. Hann vill ekkert frekar gefa upp um aðgerðir.

Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn
Boðað hefur verið til verkfalla í átta skólum en ekki er útilokað að verkfallið muni ná yfir fleiri. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið. Verkföllin hafa áhrif á hátt í þrjú þúsund börn víðs vegar um landið.

Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“
Krakkar í Laugalækjaskóla í Reykjavík og Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eru misspenntir fyrir yfirvofandi verkfalli kennara við skólana. Sumir óttast að missa of mikið úr á meðan aðrir eru spenntir fyrir smá auka fríi.

Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir að verkfallsaðgerðir Kennarasambands Ísland hafi verið samþykktar með miklum meirihluta. Hann útilokar ekki að fleiri skólar grípi til aðgerða. Hann segir að það sé þörf á að fjárfesta í fagmennsku til að tryggja góða menntun innan skólanna.

Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi
Tveir nemendur við Menntaskólann á Akureyri berjast fyrir því að nemendur þurfi ekki að lesa ítarlegar og grófar lýsingar á kynferðisofbeldi í námsefni í skólanum. Þeim berst stuðningur úr mörgum áttum en kveikjan að málinu er bókin Blóðberg sem fjallar um unga stúlku sem verður fyrir nauðgun.

Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli
Foreldrar barna í Laugalækjarskóla eru ósáttir við það að börn þeirra muni mögulega missa úr skóla verði verkfall í skólanum. Formaður foreldrafélagsins segist hafa heyrt háværan orðróm um að skólinn sé einn þeirra níu þar sem greidd eru atkvæði um verkfall.

Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag
Magnús Þór Jónsson formaður KÍ er þögull sem gröfin um nöfn þeirra skóla þar sem verkfall gæti hafist í lok mánaðar. Greidd verða atkvæði um verkfall í níu skólum og atkvæðagreiðslu lýkur á fimmtudag.

Kennarar greiða atkvæði um verkfall
Félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla greiða atkvæði um verkföll sem hefjast eiga í lok mánaðar. Atkvæðagreiðslurnar hófust á hádegi í dag en ekki er greint frá í hvaða skólum er greitt atkvæði um verkföll.

Stytting námstíma til stúdentsprófs: Sjónarhorn menntarannsókna
Veigamikil ákvörðun var tekin árið 2014 um að bóknám til stúdentsprófs í framhaldsskólum skyldi stytt úr fjórum árum í þrjú. Mikil og mikilvæg umræða hefur átt sér stað undanfarin misseri um áhrif þessara breytinga.

Bein útsending: Forseti Íslands og landlæknir á Forvarnardeginum
Forvarnardagurinn verður haldinn í nítjánda skipti í grunn- og framhaldsskólum landsins í dag. Málþing verður frá Ingunnarskóla í Reykjavík klukkan 10 í beinu streymi hér á Vísi.

Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir sambandið styðja nýjan matsferil stjórnvalda heilshugar. Það sé mikil þörf á bæta bæði innra og ytra mat skólakerfisins. Námsmatið verði að vera byggt á námsskrá og endurspegla að skólinn er án aðgreiningar, og fyrir alla.

Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini
Ítalska þingið samþykkti á miðvikudag nýtt frumvarp um menntamál sem meðal annars felur í sér heimild til handa skólum að fella nemendur sökum slæmrar hegðunar.

Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“
Góðgerðarnefnd Verzlunarskóla Íslands heldur á fimmtudaginn minningartónleika um Bryndísi Klöru Birgisdóttur. Á tónleikunum koma fram Bubbi Morthens, GDRN, Aron Can, Friðrik Dór og Páll Óskar. Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi
Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir ráðstefnu í dag þar sem reynt verður að greina stöðuna í menntakerfinu og hvaða leiðir eru færar til úrbóta. Fundurinn stendur milli klukkan 13 og 16 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Forvarnir í 20 ár fyrir unga ökumenn í Reykjanesbæ
Það gekk mikið á hjá nemendum Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbær þegar þeir fengu að verða vitni að sviðsettu bílslysi. Einn lést í slysinu og nokkrir slösuðust. Um var að ræða forvarnardag, sem var nú haldin í tuttugasta sinn í skólanum.

Lögreglan endurtekið kölluð til vegna slagsmála nemenda FS
Lögreglufólk á tveimur bílum sinnti útkalli í Fjölbrautarskóla Suðurnesja í hádeginu vegna slagsmála. Þrjár vikur eru liðnar síðan lögregla stöðvaði átök á nýnemakvöldi í skólanum.

Vilja sýna hluttekningu með frestun á stóru balli
Skólameistari Fjölbrautarskólans við Ármúla hefur ekki orðið var við hnífaburð nemenda í skólanum. Hann telur nemendur orðna það þroskaða að átta sig á afleiðingum sem slíkt gæti haft í för með sér. Stóru nýnemaballi hefur verið frestað um eina til tvær vikur.

Nýnemaballi fimm skóla frestað
Sameiginlegu nýnemaballi fimm framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu hefur verið frestað vegna hnífstunguárásarinnar mannskæðu sem framin var á menningarnótt.

Málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum
Málmleitartæki verða notuð í öryggisgæslu á framhaldsskólaböllum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forsvarsmanns Go öryggi. Fyrirtækið hafi séð um öryggi á slíkum böllum um árabil og leitast sé við að nemendum líða vel. Tónlistarhátíð í Árbæ hefur verið frestað vegna álags hjá lögreglu.

Nota málmleitartæki á busaballi MR
Notast verður við málmleitartæki í öryggisgæslu á busaballi Menntaskólans í Reykjavík sem fer fram á fimmtudag. Rektor skólans segir viðbótina gerða til að ungmenni á ballinu upplifi sig örugg.

InfoMentor kaupir INNU og Völu
Advania og InfoMentor hafa gengið frá kaupsamningi um kaup InfoMentor á framhaldsskólalausninni INNU og leikskóla- og frístundalausninni Völu.

Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru
Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu.

Made in Germany
Einhver vissi af mér og kom þeirri hugmynd inn hjá stjórnendum Menntaskólans á Akureyri að ég gæti hugsanlega leyst af í þýskunni þetta árið meðan ein kennaranna færi í fæðingarorlof.

Hnignun menntakerfisins og rétturinn til að fullnýta hæfileika sína
Það er ekki nýtt að við fáum upplýsingar um lélegan árangur íslenskra nemenda í PISA-könnunum og árangurinn versnar. Viðkvæðið hefur verið að PISA mæli ekki ýmsa þætti sem máli skipta í námi og sé því ekki fyllilega marktæk mæling. Því sé lélegur árangur íslenskra nemenda í raun ekki áhyggjuefni. Þetta er að mínu mati ábyrgðarlaus afstaða.

Börn með skólatöskur
Ég er kennari og það er alltaf sérstök tilfinning þegar haustar að. Skáldið og kennarinn Vilborg Dagbjartsdóttir orðaði það svo:

Áfram kennarar!
Ég ætlaði aldrei að verða kennari – ekki frekar en svo margir aðrir í stéttinni. En eftir langa setu á skólabekk sem teygði sig fram á fertugsaldurinn sótti ég vorið 2001 um auglýstar kennarastöður í nánast öllum framhaldsskólum höfuðborgarsvæðisins og var svo heppinn að fá ráðningu í ungum og framsæknum skóla.